Morgunblaðið - 08.12.2001, Side 30

Morgunblaðið - 08.12.2001, Side 30
ERLENT 30 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ GULL OG GERSEMAR H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA tískuskartgripir Laugavegi 23 s. 511 4533 Kringlunni s. 533 4533 Smárinn s. 554 3960 LÁRA Margrét Ragnarsdóttir, al- þingismaður og formaður Íslands- deildar Evrópuráðsþingsins, segir eftir för til Tsjetsjníu í vik- unni að ástandið í héraðinu þokist hægt í rétta átt, en mjög miklu sé enn ábótavant. Lára Margrét á sæti í sérlegum starfshópi Evr- ópuráðsþingsins í málefnum Tsjetsjníu, sem var við fundahöld í Moskvu, Tsjetsjníu og Ingúsetíu fyrr í vikunni. Evrópuráðið hefur fylgst vel með þróun mannréttindamála í héraðinu og þrýst á Rússa að fara að skuldbindingum sínum gagnvart ráðinu um mannúðarmál. Lára Margrét sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Evrópuráðið teldi að unnt væri að komast að frið- samlegri lausn á átökunum í Tsjetsjn- íu og legði mikla áherslu á að allir deiluaðilar tækju þátt í friðarviðræð- um. Rússar þvertaka fyrir að verða við kröfum Tsjetsjena um fullt sjálf- stæði, en vilja hins vegar veita hér- aðinu stöðu sem sjálfstætt lýðveldi innan Rússlands, og hafa til þessa verið tregir til viðræðna við Aslan Maskhadov, sem kjörinn var forseti Tsjetsjníu. Fulltrúar Moskvustjórn- arinnar og Maskhadovs hafa þó hist á fundum nýlega. Að sögn Láru Margrétar hefur starfshópur Evrópuráðsþingsins átt gott samstarf við fulltrúa dúmunnar, neðri deildar rússneska þingsins, og kveðst hún merkja aukna jákveðni af hálfu Rússa gagnvart kröfum Evr- ópuráðsins. Erfiðar aðstæður Lára Margrét segir að sendinefnd- in hafi þurft að ferðast til Tsjetsjníu við mjög erfiðar aðstæður. Meðlimir nefndarinnar flugu með þyrlu frá Ingúsetíu til héraðshöfuðborgarinnar Grosní í afar slæmu veðri og var um tíma óvíst hvort þeir kæmust á leið- arenda, auk þess sem öryggisástand í héraðinu er ótryggt. Að sögn Láru Margrétar er ástandið enn mjög slæmt í Tsjetsjníu. Í flóttamannabúðum hafast þúsundir manna við í tjöldum, sem veita lítið skjól í vetrarkuldunum. Grosní var að miklu leyti lögð í rúst í átökunum 1999–2000 og þrátt fyrir að nokkur uppbygging hafi átt sér þar stað þora margir ekki að flytja aftur til borg- arinnar vegna þess hve ástandið er ótryggt. Lára Margrét segir að fólk í flóttamannabúðunum sé vannært og að börn þurfi oft að ganga langar vegalengdir í skóla án þess að eiga nauðsynlegar skjólflíkur. Þótt ým- islegt hafi færst til betri vegar í Tsjetsjníu berist enn fjölmargar kvartanir vegna framferðis rússneska hersins og sé það áhyggjuefni. Rússar hafi til dæmis heft ferðafrelsi, ráðist á fólk og handtekið fjölda manna, sem sumir hafi ekki sést síðan. Lára Margrét Ragnarsdóttir á ferð í Tsjetsjníu Ástandið þokast hægt í rétta átt Lára Margrét Ragnarsdóttir AÐILDARRÍKI Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) og Rússland ákváðu í gær að færa samstarf sitt upp á nýtt og æðra stig með stofnun sér- staks samstarfsráðs. Þessi gjörning- ur felur í sér að Rússar munu fram- vegis geta tjáð sig um ýmsa þætti NATO-samstarfsins en munu þó ekki fá neitunarvald um málefni bandalagsins. Þessi varð niðurstaðan af fundi ut- anríkisráðherra 19 aðildarríkja NATO og hins rússneska starfsbróð- ur þeirra, Ígors Ívanovs, í Brussel í gær. Embættismönnum verður nú falið að útfæra samkomulagið og er þess vænst að það verði staðfest á fundi utanríkisráðherra NATO í Reykjavík næsta vor. „Í dag höfum við skuldbundið okk- ur til að koma á nýjum tengslum á milli aðildarríkjanna og Rússlands. Með því aukum við getu okkar til að vinna saman á þeim sviðum þar sem hagsmunir eru sameiginlegir og til að mæta nýjum ógnunum og áhættu, sem snertir öryggi okkar,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu NATO- ráðherranna og Ígors Ívanovs. Með hinu nýja Fastaráði Rússlands og NATO yrði skapaður vettvangur þar sem ríkin 20 myndu koma saman til að ræða sameiginleg hagsmunamál og taka viðeigandi ákvarðanir. Ígor Ívanov sagði að samstarfið gæti tekið til ýmissa sviða og nefndi viðleitni til að hefta útbreiðslu ger- eyðingarvopna, viðbrögð við óvissu- og hættuástandi, vopnaeftirlit og borgaralegan varnarviðbúnað. Ekkert neitunarvald Robertson lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði á blaða- mannafundi með Ívanov að nú tæki við nokkurra mánaða vinna við nán- ari útfærslu þessa samkomulags. Aðildarríkin og Rússland væru hins vegar staðráðin í því að tryggja að þetta nýja samstarf skilaði árangri. Robertson tók fram að ekki væri ráðgert að Rússar fengju neitunar- vald í málefnum NATO með sama hætti og Bandaríkin, Kanada og Evrópuríkin 17, sem mynduðu bandalagið. „Ekkert ríki utan bandalagsins getur beitt neitunar- valdi gagnvart aðildarríkjunum og aðildarríkin munu ekki heldur fá beitt neitunarvaldi um þær einhliða ákvarðanir, sem Rússar kunna að taka.“ Ónefndir embættismenn sögðu í gær að kveðið hefði verið mun fastar að orði um samstarf Rússa og NATO í drögum að lokayfirlýsingu fundar- ins í Brussel. Hins vegar hefði orða- lagi verið breytt og úr því dregið að kröfu Bandaríkjamanna. Embættis- menn í varnarmálaráðuneytinu bandaríska og þjóðaröryggisráðinu hefðu talið drögin ganga of langt. Stækkun NATO „aukaatriði“ Ígor Ívanov sagði að Rússar hefðu engin áform uppi um að leita eftir að- ild að NATO, sem stofnað var 1949 sem varnarbandalag vestrænna lýð- ræðisríkja gegn útþenslustefnu Sov- ét-kommúnismans. Um mögulega aðild hefði ekkert verið rætt. Rússar myndu aukinheldur ekki áskilja sér rétt til að hafa afskipti af hugsan- legri aðild nágrannaríkja að NATO. Vísaði Ívanov þar til Eystrasaltsríkj- anna þriggja en fastlega er búist við því að þeim verði boðið að ganga í bandalagið á leiðtogafundi NATO í Prag næsta haust. Ívanov tók þó fram að hann sæi ekki hvers vegna nágrannaríki Rússa ættu að óska eftir aðild í ljósi þeirra „breyttu að- stæðna“, sem nú ríktu í alþjóðamál- um. „Við teljum að stækkun NATO komi málinu ekkert við,“ sagði rúss- neski utanríkisráðherrann. Ákveðið að stofna Fastaráð NATO og Rússlands Stefnt að staðfest- ingu í Reykjavík Rússar telja stækkun NATO „aukaatriði“ Brussel. AFP. LIÐSMENN herlögreglunnar í París lögðu í gær niður vinnu og gripu til mótmælaaðgerða til að krefjast bættrar starfsaðstöðu. Herlögreglumennirnir segja aukna glæpatíðni og fjölgun of- beldisverka ógna starfsöryggi þeirra. Á myndinni sjást her- lögreglumenn teppa umferð yfir Iéna-brúna við Eiffel-turninn í París gær, en starfsbræður þeirra hafa gripið til viðlíka aðgerða í fleiri borgum Frakklands í vik- unni. Reuters Lögreglumenn í verkfalli LÖGREGLAN í Amazon-ríki í Brasilíu skýrði frá því í gær að sjö menn hefðu verið hand- teknir, grunaðir um að hafa myrt Sir Peter Blake, þekktasta siglingakappa Nýja-Sjálands. Sir Peter, sem var 53 ára, var myrtur á fimmtudag er skúta hans var bundin við bryggju á Amazon-fljótinu. Voru þar á ferð sjó- ræningjar sem skutu Sir Peter er hann reyndi að verjast árás þeirra. Tveir skipverja særðust í ráninu. Sir Peter var í hópi þekktustu siglingakappa í heimi hér og hafði unnið margvísleg afrek á því sviði. Fór hann m.a. fyrir sveit Nýja- Sjálands þegar hún vann Ameríkubikarinn í siglingum árin 1995 og 2000. Sir Peter var þjóðhetja á Nýja-Sjálandi og er þungur harmur kveðinn að löndum hans. AP Sir Peter Blake við skútu sína „Seamaster“. Myndin var tek- in í Rio de Janeiro í Brasilíu í september. Myrtur á Amazon Rio de Janeiro. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.