Morgunblaðið - 08.12.2001, Page 37

Morgunblaðið - 08.12.2001, Page 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 37 ÆVISÖGUR þekktra borgara vekja jafnan athygli. Úlfar Þórðarson er í þeirra hópi. Þegar hann hóf lækn- isstörf í Reykjavík fyrir rösklega sex áratugum vissu höfuðstaðarbúar nöfn allra sinna lækna og þekktu þá líka í sjón þar sem þá bar fyrir augu á götunni. Óhætt er að fullyrða að engin stétt hafi þá verið meira metin í þjóðfélaginu. Þegar þar við bættist að Úlfar kom úr þekktri fjölskyldu og ávann sér sjálfur vinsældir með látlausri en traustvekjandi fram- komu var síst að furða þó borgarbú- ar litu strax upp til þessa unga manns. Síðan hefur mikið vatn runn- ið til sjávar. Maðurinn, sem eitt sinn var svona ungur, er orðinn níræður. Og borgarbúar þekkja ekki lengur lækna sína. Dóttir Úlfars hefur tekið sér fyrir hendur að skrásetja ævisögu föður síns. Varla gat það orðið létt verk. Eflaust hefði sagan orðið öðruvísi ef óskyldur hefði skráð. Tilfinninga- samband feðgina er svo náið að bæði hljóta að haga orðum og gerðum eft- ir því. Hentast er að skrásetjari haldi sig í nokkurri fjarlægð frá sögu- manni. Hann verður að vera hlutlaus og leyfa sögumanni að tala út. En hann verður jafnframt að koma með vinnulag sitt og dómgreind að verk- inu, vinsa úr, tengja saman, ganga frá heildinni og bera endanlega ábyrgð á textanum. Ennfremur er æskilegt – og í sumum dæmum nauðsynlegt – að hann kanni annars konar heimildir. Úlfar fór víða á yngri árum, kynntist mannlífinu frá ótal- mörgum hliðum, komst oft í hann krappann og upplifði ótrúleg ævin- týr. Ef það er ekki efni í sögu? Hvað er þá frá- sagnarvert? Þar við bætist að hann er sjálfur ágætur sögumaður. Ljóst er og að í sögum sínum leggur hann meg- ináherslu á skemmti- gildið. Hann er einatt að segja frá einhverju skrítnu og skondnu, ein- hverju sem hlýtur að teljast óvenjulegt, jafnvel ótrúlegt en umfram allt frásagnarvert. Sum tilvikin eru svo sérstæð að frásögnin minnir á Munchausen-sögu. Til dæmis saga af þeysireið um Skaga- fjörð í fylgd með Guðmundi knapa. Lesandinn veit þá ekki fyrr til en hann er farinn að hlæja upphátt yfir bókinni. En ekki eru allar sögur Úlf- ars svo viðburðaríkar. Sögurnar af bernskubrekum þeirra bræðranna heima í Kleppsvíkinni eru t.d. alltof margar og langtum of einhæfar. Ærsl barna eru alltaf og alstaðar lík og sjaldnast frásagnarverð. Þar, eins og miklu víðar, hefði skrásetjari þurft að skera niður, sníða til, fækka sögunum og strika út óþörf orð og setningar. Það sem flýtur með í munnlegri frásögn á ekki allt heima í rituðum texta. Þar með taldar end- urtekningar sem hafðar eru beint eftir sögumanni en skrásetjari neyð- ist síðan til að afsaka með »eins og fyrr segir«. En endurtekningar eru því miður of margar í bókinni. Bernskuárin líða og við taka skólaárin. Og þau liðu að sama skapi ljúft og létt. Sem betur fór þurfti sögumaður ekki að hafa áhyggjur af heimi þeim sem stóð álengdar í skugganum – langt að baki hins ljúfa lífs. En sá heimur var harður – þá ekki síður en nú – og síst friðvæn- legri en nú um stundir. Úlfar gekk í flokk þjóð- ernissinna. Og það gerðu fleiri. En frásögn hans og þeirra eru nán- ast allar á sama veg. Menn hafi einhvern veginn álpast í flokkinn, hugsunarlaust að kalla. Síðan kemur hörð og margorð ádrepa um grimmdaræði nasismans sem þeir hafi því miður ekki áttað sig á. Nærtækara væri að sjálfsögðu að minna á þá staðreynd að landslagið í heimspólitíkinni var á fjórða ára- tugnum svo gerólíkt sem framast má verða því sem síðar varð. Öfgastefn- ur munu kvikna svo lengi sem heim- ur stendur og draga til sín ungt fólk sem skilur ekki hvers vegna veröldin er svo rangsnúin sem hún einatt er. Flestir rífa sig upp úr farinu með aldri og þroska, þeirra á meðal sögu- maður. Úlfar valdi læknisfræði að loknu stúdentsprófi. Hann hélt svo til framhaldsnáms í Þýskalandi, fyrst í Königsberg í Austur-Prússlandi sem nú heitir Kaliningrad og er undir Rússlandi. Þar komst hann rækilega í kynni við veröld sem var. Fornar hefðir lifðu enn með Þjóðverjum þar um slóðir. Sem Íslendingi var honum tekið með kostum og kynjum. Til að mynda var honum boðin dvöl á að- alssetri þar sem honum var þjónað eins og væri hann barón eða greifi. Meira þótti honum samt vert hversu margt mátti læra af þýskum lækna- vísindum. En í Königsberg kynntist hann því sem þá var allra nýjast á þeim sviðum og beindi honum inn á þá sérgrein sem hann síðar valdi. Í framhaldinu komst hann inn á há- skólasjúkrahús í Berlín. Þar var hann vel haldinn í launum og atlæti, betur en þýskir stúdentar. Og í Berl- ín keppti hann á Ólympíuleikunum 1936, hinum fyrstu sem Íslendingar tóku þátt í sem sjálfstæð þjóð. Að lokum segir svo frá námsdvöl í Kaupmannahöfn og heimkomu það- an og ýmsu sem á dagana dreif á stríðsárunum og síðar, en þá er farið fljótt yfir sögu. Ljóst er að sögumaður hefur tekið vel eftir því sem fyrir augu og eyru bar á lífsleiðinni og fest sér í minni það sem honum þótti markverðast. Hann segir fjörlega og skipulega frá. Velgengni hans og þar með jákvæð afstaða til annarra skaðar ekki. Betri væri þó bókin ef skrásetjari hefði lagt meiri alúð við textann, vandað betur til verksins. Nafnaskrá fylgir sem er þakkar- vert út af fyrir sig. En hún hefði þurft að vera fyllri og ítarlegri. Ótækt ert að nefna ekki fólk með fullu nafni, einnig föður- eða ættar- nafni, allt eins þó skírnarnafnið eitt – eða jafnvel aðeins gælunafn – kunni að standa í textanum. Sama máli gegnir um útlendinga sem sumir eru einungis nefndir með ættarnafni. BÆKUR Endurminningar Æviminningar eftir Unni Úlfarsdóttur. 287 bls. Útg. Setberg. Prentun: Oddi hf. Reykjavík, 2001. ÚLFAR ÞÓRÐARSON LÆKNIR Bernskubrek og ævintýr Erlendur Jónsson Úlfar Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.