Morgunblaðið - 08.12.2001, Side 45
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 45
Opið frá kl. 10 til 14
10/40 5L brúsi
Áður 2.374 kr.
Nú 1.390 kr.
Gæða smurolía fyrir bifreiðina
Láttu hjólin snúast!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
IL
1
61
75
15
/2
00
1
Aðeins í dag!
skáldskapur
í fremstu röð
©
T
H
E
IC
EL
A
N
D
IC
A
D
A
G
EN
C
Y/
SI
A
.I
S
E
D
D
1
61
98
12
/2
00
1
„Fagurt verk“
„Kærkomið
ljóðaúrval“
Matthías
Johannessen
Hann nærist á góðum minningu er ný skáldsaga eftir
Matthías Johannessen sem hlotið hefur frábærar viðtökur
lesenda og gagnrýnenda.
„Í sögunni er Matthías Johannessen augsýnilega að vinna
úr eigin minningum ...
En úrvinnslan er óvenjuleg og lyftir sögunni langt upp úr
„venjulegri“ endurminningabók. Stíllinn er ljóðrænn og
heillandi“.
-Silja Aðalsteinsdóttir, DV
„... ljóðræn, frumleg og eftirminnileg“.
- Fríða Björk Ingvarsdóttir, Morgunblaðinu
„... gríðarlega fallega skrifuð bók, einlæg, hlý og angurvær
... það er í henni einhver mjög falleg von um það að lífið
sé þess virði að lifa því. ...
Skáldlegt og fagurt verk um sára reynslu þess að vera til.“
- Páll Baldvin Baldvinsson, Stöð 2
Úrval ljóða Matthíasar Johannessen í samantekt Silju
Aðalsteinsdóttur sem einnig ritar ýtarlegan inngang. Diskur
með lestri Matthíasar á eigin ljóðum fylgir. Bók sem er
mikill fengur öllum unnendum góðs skáldskapar!
„Matthías hefur verið óragur við að tjá sig og sköpunar-
kraftur hans virðist óþrjótandi. Ljóðaúrval hans er því
kærkomið og skemmtilegt að sjá bestu ljóð hans
samankomin í einni bók.“
- Guðbjörn Sigurmundsson, Morgunblaðinu
SYKURSÝKI er vaxandivandamál í heiminum, ekkisíst sykursýki af tegund 2,sem svo er kölluð og er talin
útbreiddasti velmegunarsjúkdómur
samtímans. Skoskur sérfræðingur á
þessu sviði hélt á dögunum erindi á
fundi sérfræðinga í sykursýki hér-
lendis, á vegum lyfjafyrirtækisins
GlaxoSmithKline (GSK), og í samtali
við Morgunblaðið sagði hann að ný-
legt lyf, Avandia (rósiglítazón), gæti í
framtíðinni hugsanlega komið í veg
fyrir sjúkdóminn.
Dr. Murray Stewart, sem er skosk-
ur, sérhæfði sig í lækningum við syk-
ursýki og starfaði við rannsóknir um
árabil, og var árið 1999 valinn læknir
ársins í Bretlandi á sínu sérsviði. Síð-
ustu misseri hefur hann gegnt stöðu
þróunarstjóra á sviði sykursýki hjá
Evrópudeild GSK.
Talið er að um 150 milljónir manna
þjáist af sykursýki 2 í veröldinni og að
fjöldi þeirra muni að óbreyttu tvöfald-
ast á næstu áratugum.
Ástæða hefðbundinnar sykursýki,
sem herjar á ungt fólk, er skortur á
insúlíni og lausnin því insúlíngjöf.
Miðaldra fólk og gamalt verður aftur
á móti fyrir barðinu á sykursýki 2 og
orsakir sjúkdómsins má í mörgum til-
fellum rekja til mataræðis og lífsstíls.
„Þrátt fyrir að þetta fólk framleiði
insúlín virkar það ekki og því verður
hlutfall glúkósa of hátt,“ sagði Stew-
art við Morgunblaðið. „Flestir þekkja
sykursýki 1, vegna þess að við því
þarf að sprauta sig og sjúkdómurinn
er þannig áberandi, en sannleikurinn
er sá að sykursýki 2 er orðin mun al-
gengari; af þeim sem eru með syk-
ursýki eru 90% með þá tegund.“
Stewart sagði að sykursýki 2 gæti
verið ættgeng en það væri ekkert
launungarmál að hún tengdist einnig
offitu og því yrði sjúkdómurinn sífellt
algengari, vegna þess að fólk væri
víða að þyngjast. Hann sagði um 4%
íbúa Evrópu með sykursýki 2 og þeim
færi fjölgandi, en í Mið-Austurlönd-
um, þar sem hlutfallið hefði verið það
sama fyrir nokkrum árum, væru nú
20% fólks með sjúkdóminn.
„Sykursýki 2 var áður talin vægur
sjúkdómur en hjartasjúkdómar eru
nú í ríkari mæli en áður tengdir hon-
um, og talið er líklegt að þrír fjórðu
þeirra sem fá það afbrigði muni deyja
úr hjartaslagi. Staðreyndin er sú að
þeir sem fá sykursýki eru fjórum
sinnum líklegri til að fá hjartaáfall en
þeir sem hafa ekki sjúkdóminn.“
Lyfið Avandia (rósiglítazón) kom á
markað fyrir um tveimur árum og
sagði Stewart rannsóknir hafa leitt í
ljós að lyfið dragi úr líkum á þeim
hættulegu aukaverkunum sem sykur-
sýkin hefur í för með sér fyrir hjarta
og æðakerfi.
Lyfið gerir það að verkum að insúl-
ínið virkar, það lækkar glúkósahlut-
fallið og dregur úr lífshættulegum
aukaverkunum sem sjúkdómurinn
hefur í för með sér; hefur t.d. áhrif á
blóðþrýsting og blóðfitu. Lyfið hefur
verið í notkun í Bandaríkjunum í tvö
ár, þar sem gefnar hafa verið út rúm-
lega tvær milljónir lyfseðla, og lyfið er
þegar mikið notað bæði á Bretlandi
og í Þýskalandi.
„Við erum enn að vinna að rann-
sóknum en teljum, í ljósi þess að lyfið
vinnur á helsta vandamálinu, að það
getu hugsanlega komið í veg fyrir
sykursýki 2 í framtíðinni. Ég get ekki
fullyrt ennþá að svo verði en rann-
sóknir benda eindregið til þess.“
Stewart sagði það verða heilbrigð-
iskerfinu mjög dýrt yrði ekkert að
gert. „Þar sem nú er komið lyf sem
reynist svona ætti það að draga veru-
lega úr kostnaði. Það gæti að vísu orð-
ið dýrt í fyrstu að nota lyfið en sparn-
aðurinn til lengri tíma litið verður
mikill vegna þess hve innlögnum á
sjúkrahús ætti að fækka.“
Lyf sem gæti komið í
veg fyrir sykursýki 2
Morgunblaðið/Golli
Dr. Murray
Stewart, þróun-
arstjóri á sviði
sykursýki
hjá Glaxo-
SmithKline.
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is