Morgunblaðið - 08.12.2001, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 08.12.2001, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞETTA hefur verið bæði við-burðaríkur og skemmtilegurtími sem ég hef setið sem land-búnaðarráðherra,“ segir Guðni Ágústsson en hann hefur nú gegnt emb- ætti landbúnaðarráðherra í hálft þriðja ár. ,,Ef horft er almennt á landbúnaðinn, þá má sjá nýjan og gríðarlegan þrótt í mörg- um greinum, sem gefur mér vonir um að hagur bænda sé að batna og ég finn það, sem mestu máli skiptir, að bændastéttin vill halda áfram að efla landbúnaðinn og ekki síður er samstaða þjóðfélagsins um mikilvægi landbúnaðarins og bóndans meiri en áður var,“ segir Guðni. ,,Hins vegar er það svo, að þrátt fyrir að þrótturinn sé mikill og margir séu að gera mjög góða hluti, þá eru menn ekki alveg komnir út úr þeirri kreppu sem skall á landbúnaðinn um 1990. Bændur hafa ekki nægilega góða afkomu, sem stafar kannski fyrst og fremst af því að búin eru of lítil til þess að gefa af sér nægilegar tekjur, og ekki síður að menn sjá það fyrir sér að í smæstu búunum er ekki framtíð. Hitt er annað mál að mér finnst mikil sam- staða um hið fjölþætta hlutverk landbún- aðarins. Bóndinn er mikilvægur hlekkur í hverju landi og gegnir ákveðnu lykilhlut- verki í náttúru landsins og hér erum við að fela bændum og landbúnaðinum ný og stór verkefni, t.d. í landgræðslu og skóg- rækt. Bændur eru líka lykilmenn í ferða- þjónustu, sem er orðin annar aðalatvinnu- vegur Íslendinga. Það var mikilvæg ákvörðun að koma á fót landbúnaðarhá- skóla, og aðsókn að landbúnaðarskólunum þremur er góð. Ég er því tiltölulega sáttur og bjartsýnn,“ segir hann. Hlutur ríkisins í Stofnfiski seldur Guðni segist einnig binda miklar vonir við ýmsar nýjar búgreinar framtíðarinnar og bendir m.a. á fiskeldið í því sambandi. ,,Fiskeldið er að fara af stað á ný með þróttmiklum hætti og kannski af meiri al- vöru og raunsæi en um árið. Nú hef ég sem landbúnaðarráðherra markað þá stefnu að sjókvíaeldið fari ekki ofan í firði nálægt okkar gjöfulustu laxveiðiám til að vernda þá auðlind. Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að velgengni fiskeldisins byggist ekki síst á því að landbúnaðar- ráðuneytið stóð fyrir því fyrir nokkrum árum að byggja upp fyrirtækið Stofnfisk til þess að rækta upp sterk an laxastofn. Þetta verkefni var í höndum ráðuneytis- ins, en einnig komu þar að einsklingar og fyrir tæki. Stofnfiskur stækkaði ört og í dag er fyrirtækið að selja mikið af sínum afurðum erlendis auk þess að vera grunn- urinn að öflugu fiskeldi í landinu. Á dög- unum seldi ég fyrir hönd ríksins 34% eft- irstandandi hlut ríkisins í fyrirtækinu, fyrir 270 milljónir kr. Kaupendur voru nú- verandi hluthafar auk annarra íslenskra athafnamanna,“ segir Guðni. Að hans sögn verður söluandvirðinu varið til frekari uppbyggingar landbúnað- arskólanna. Leita sátta um nýjar leiðir – Það hefur átt sér stað samþjöppun í mjólkurframleiðslunni, kúabúum fækkar og þau stækka og verða sífellt tæknivædd- ari. Telurðu að þessi þróun muni halda áfram, jafnvel svo að hin hefðbundnu fjöl- skyldubú muni brátt heyra sögunni til? ,,Ég tel mjög mikilvægt að halda utan um hefðbundnu fjölskyldubúin og fara ekki út í slíka stóriðju, en tæknin og krafa fólksins um að hafa bærilega vinnuað- stöðu, hafa gert þetta að verkum. Búin eru að stækka og auðvitað eru þau ekkert verulega stór á mælikvarða heimsins. Ég held að þessari þróun sé ekki lokið en við þurf- um auðvitað að staldra við og velta því fyrir okk- ur, hversu langt við eigum að ganga í þess- um efnum. Ég er þeirrar skoðunar að fjöl- skyldubúskapurinn sé langbesta fyrir- komulagið. Ef kúabúskapurinn fer á örfá stór bú, þá er gríðarlega stór hluti land- búnaðarins í landinu kominn á allt of fáar hendur. Í dag eru kúabúin um 1.000 tals- ins. Sumir spá því að þau verði ekki nema 150 til 200 en mér stendur ógn af þeirri sýn og tel að það þyrftu að vera kannski 700 til 800 kúabú hér á landi. En þessari þróun er ekki lokið og það er mikilvægt að setja ekki fótinn fyrir þá sem kappsamir eru. Þetta líf snýst líka um hvort menn standast þá samkeppni sem framundan er. Í þessu felst hagræðing. Innflutningur er hafinn og hann getur aukist í nýjum samningum, sem eru komnir af stað á al- þjóðavettvangi, og eiga að taka þrjú ár. Sem betur fer sýnist mér að þessi þróun sé að gefa okkur kraftmiklar fjölskyldur sem geti keppt við þennan innflutning,“ segir Guðni. ,,Það sem ég hef mestar áhyggjur af og þarf að taka á, snýr bæði að mjólkurfram- leiðslunni og ekki síður að sauðfénu, en enn eru um 2.000 sauðfjárbú í landinu. Framundan er frelsi í greiðslumarki og við þurfum að fara yfir það með bænda- samtökunum og forystumönnum lands- sambanda sauðfjárbænda og kúabænda hversu dýru verði greiðslumark hefur ver- ið að seljast. Þótt það sé gott fyrir þann sem er að fara úr búskap að fá sem hæst verð, þá verður líka að hugsa um þá sem ætla að sitja eftir og framleiða og stunda þessa atvinnugrein í samkeppni. Ég held því að við þurfum að velta því mjög vel fyr- ir okkur á næstunni, hvort þetta fyrir- komulag, sem verið hefur í mjólkinni, sé það fyrirkomulag sem við eigum að búa við áfram eða að reyna að leita sátta um nýjar leiðir, þar sem raunverulegur mark- aður ræður ferðinni, og þar með að rétt- urinn til að framleiða mjólk eða kjöt verði seldur á sanngjörnu verði manna á milli. Það hægir kannski á einhverri þróun, en styrkir þá sem við þetta vinna,“ segir Guðni. – Ertu þá að tala um að skipta alveg um kerfi og taka upp nýtt? ,,Ég sé það ekki fyrir mér. Ég held að það sé alltaf erfitt að komast út úr þessum kerfum. En menn verða að setjast yfir þetta og meta kosti þessara kerfa. Ég tel að þau hafi reynst okkur nokkuð þokka- lega og að við eigum að styðjast við þau áfram, þótt enginn geti ábyrgst að þau verði við lýði um aldur og ævi,“ svarar Guðni. – Í nýlegri úttekt Rannsóknarráðs Ís- lands, Rannís, kemur fram að kostnaður við mjólkurframleiðslu sé 2,5 sinnum meiri hér en í Danmörku og er mælt með enn frekari stækkun kúabúa því auka þurfi framleiðni og arðsemi í greininni svo við stöndumst erlenda samkeppni. Ertu sammála þessu? ,,Ég tek auðvitað undir að framtíðarinn- ar vegna verði menn að ganga eitthvað áfram þessa götu. Við erum ekki með nema 28 kýr að meðaltali á hvern bónda en Danir eru með 68 kýr á hvert bú. Danir eru að vísu á heimsmarkaði með sína framleiðslu.“ – Sama þróun hefur orðið í mjólkuriðn- aðinum, vinnslustöðvum fækkar, mjólkur- samlög sameinast og sér- hæfing fer vaxandi. Ertu ánægður með þessar breytingar? ,,Það er mjög ánægju- legt að sjá hvað mjólkur- iðnaðurinn hefur spjarað sig, ekki bara hér innan- lands, heldur á heims- markaði, eins og sjá má m.a. af þeim verð- launum sem okkar fólk í mjólkuriðnaðinum hefur verið að fá. Við eigum að vera stolt af því, en það er hins vegar mikilvægt að hagræða í milliliða- kerfinu bæði vegna samþjöppunar í smá- sölu og ekki síður þeirrar samkeppni er- lendis frá sem menn mæta. Ég er þeirrar skoðunar að sú samvinna og verkaskipt- ing sem hefur ríkt á milli mjólkurbúanna hafi sparað mikla peninga og gert að verk- um, að okkur er það skipulag mikilvægt. Ég tel þó samt sem áður að þeir sem nú stýra mjólkuriðnaðinum og bændurnir þurfi að meta þessa stöðu og komast að niðurstöðu um hvort þetta fyrirkomulag getur staðist til framtíðar eða hvort þeir þurfa enn að fækka mjólkurbúum og jafn- vel að sameina þau undir einni yfirstjórn. Ég hef þó fundið að neytandinn vill hafa ákveðna samke séu að keppa í v – Formaður miklar líkur á a tvö fyrirtæki í þ anlandsmarkað ,,Mér er sag keppa á heimsm sín mjólkurbú fyrirtækin séu eitthvað sem mj ur að velta fyrir verra ef allur m undir eitt fyrir neytendur yrðu þetta er spurni ina,“ segir Guðn Bændur f og fari m – Öðru hverj aðila á að kom Gæti ekki verið aðrir drykkjarv ust hlut eða kæ lögin? ,,Mjólkuriðna inn fyrir því að allra best í þágu áherslu á að bæ og fari með mj huga að þessu Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra s Mikilv í mi Landbúnaðurinn þarf að geta staðist a hagræða í milliliðakerfinu vegna samþ Í samtali við Ómar Friðriksson gagnrý og segir Framsó „Framundan bændasamtök bænda hvers ’ Uppstokkunheppileg fyrir báða stjórn- arflokkana ‘ 30 ÁR FRÁ MYNDUN STJÓRN- MÁLASAMBANDS VIÐ KÍNA Þrjátíu ár eru í dag liðin frá því aðstjórnmálasamband komst á milliÍslands og Kína. Þá höfðu komm- únistar verið við völd í Kína frá árinu 1949, en á Taívan, sem þá var kallað Formósa, höfðust við forystumenn Kuomintang, sem barist hafði gegn kommúnistum um yfirráð yfir Kína með Chiang Kai-shek í broddi fylkingar. Stjórnvöld í Kína höfðu verið litin hornauga víðast hvar á Vesturlöndum og margir vildu líta á Kuomintang sem hin réttu yfirvöld Kína. Árið 1971 var hins vegar vendipunktur. Þá um sumarið hafði Henry Kissinger farið í leynilega heimsókn til Kína. Í október það ár fékk stjórn Kínverska alþýðulýðveldisins að- ild að Sameinuðu þjóðunum í stað stjórn- ar Taívan. Í fréttatilkynningu, sem rík- isstjórn Íslands undir forystu Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra gaf þá út, sagði að hún hefði það markmið að Kínverska alþýðulýðveldið tæki sæti Kína í Sameinuðu þjóðunum og myndi styðja tillögur í þá veru án þess þó að gerast flytjandi þeirra. Ísland studdi síðan inngöngu Kínverska alþýðulýð- veldisins í S.þ. en greiddi atkvæði gegn tillögu Bandaríkjanna og Japans um að meina Alþýðulýðveldinu inngöngu. Sigurður Bjarnason, sendiherra Ís- lands í Kaupmannahöfn, lék stórt hlut- verk í að koma á stjórnmálasambandi við Kína. Í byrjun nóvember 1971 gekk hann á fund Yueh Siang, sendiherra Kína í Kaupmannahöfn, og tilkynnti honum að Íslendingar vildu semja við Kínverja um stjórnmálasamband. Þar sem engin tengsl voru við ríkisstjórnina á Formósu gekk vel að ganga frá samningum í við- ræðum sendiráða ríkjanna í Kaup- mannahöfn. 8. desember var stofnað stjórnmálasamband og 14. desember undirrituðu Sigurður Bjarnason og Yueh Siang samkomulag um það í Kaup- mannahöfn. Af því tilefni birti Dagblað alþýðunnar í Peking leiðara þar sem vitnað var í þau orð Maós formanns að sérhver þjóð, stór eða smá, hefði sínar sterku og veiku hliðar og síðan sagði: „Við munum ávallt, eins og fyrr og nú, berjast með smærri þjóðum gegn valda- stefnu og yfirdrottnun risaþjóðanna.“ Wang Ronghua, sendiherra Kína á Ís- landi, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að margt sé ólíkt með Íslandi og Kína, en verslun og viðskipti hafi aukist og muni enn aukast vegna inngöngu Kína í Heimsviðskiptastofnunina. Stjórnarfari í Kína er að mörgu leyti ábótavant, en ástandið þar er þó allt annað á okkar dögum en það var fyrir þrjátíu árum. Því hefur löngum verið haldið fram að það sé betri kostur að eiga samskipti við ríki heims, hvernig sem stjórnarfarinu er háttað, en að ein- angra þau. Með samskiptunum skapist þrýstingur, sem annars væri ekki til staðar, á þau ríki, sem ekki virða grund- vallarmannréttindi. Samskipti Íslands og Kína hafa verið góð frá því að stjórnmálasamband komst á. Kínverjar opnuðu þegar sendiráð í Reykjavík, en Íslendingar ekki í Peking fyrr en löngu síðar. Það fór ekki fram hjá þeim sem bjuggu nærri kínverska sendi- ráðinu við Víðimel, að komnir voru nýir nágrannar í hverfið, og vinalegt viðmót þeirra eyddi fljótt tortryggni. Samskiptin hafa þó ekki alltaf verið dans á rósum og nægir þar að minna á kröftug mótmæli kínverska sendiherr- ans í Reykjavík þegar varaforseti Taív- ans kom hingað í heimsókn fyrir nokkr- um árum. Slíkar uppákomur hafa þó fremur verið undantekning en regla og aukin þátttaka Kínverja í heimsviðskipt- um samfara aukinni hnattvæðingu mun væntanlega tryggja að samskipti þjóð- anna verði áfram vinsamleg. SKÓLAKERFI ÁN SVIGRÚMS Niðurstöður nýlegrar könnunar ánámsárangri nemenda í grunnskól- um OECD-ríkjanna vekja spurningar um uppbyggingu íslensks menntakerfis. Í könnuninni kemur í ljós að íslenskir nemendur standa þeim þjóðum sem best koma út úr henni nokkuð að baki. Hlut- fall nemenda sem sýndu hámarksgetu var töluvert lægra hér en í þeim löndum sem komu best út. Í Ástralíu, Kanada, Finnlandi, Nýja-Sjálandi og Bretlandi er hlutfall nemenda sem ná hámarksár- angri á milli 15 og 19%. Á Íslandi er það 9%. Júlíus K. Björnsson, forstöðumaður Námsmatsstofnunar, sagði þegar niður- stöðurnar voru kynntar í vikunni að þær bentu til þess að í íslenskum skólum fengi allstór hópur nemenda ekki nægi- lega verðug verkefni að kljást við eða fullnýtti ekki getu sína í grunnskólanum. Hann sagðist telja að skoða yrði hvort og hvernig hækka mætti þetta hlutfall með því að gera betur við bestu nemendurna. Björn Bjarnason menntamálaráðherra kvaðst þess jafnframt fullviss að Íslend- ingar gætu átt mun hærra hlutfall nem- enda í efsta þrepinu. Það þarf þó ekki að koma á óvart að hlutfall nemenda sem stóðu sig illa í prófinu á Íslandi er lægra en OECD- meðaltalið. Bilið á milli besta og lakasta árangurs var því fremur lítið á Íslandi og taldi Júlíus það endurspegla einsleitni íslenska skólakerfisins. Hann sagði það styðja þá hugmynd að á Íslandi væri ekki um að ræða marktæka mismunun í námi eftir skólum, hverfum, landshlut- um eða efnahag skóla. Það er mjög jákvætt að vita til þess að hérlendis býr æska landsins við jafnrétti til náms. Það er hins vegar áhyggjuefni að hér skuli ekki vera lögð áhersla á að draga fram það besta í hverjum einstak- lingi, og námsmenn sem sýna góðan ár- angur séu af þeim sökum hlutfallslega færri hér en í samanburðarlöndunum. Með því að sinna ekki þeim sem standa sig vel í grunnskóla og veita þeim nægi- legt aðhald og stuðning til að þroska hæfileika sína vanrækir samfélagið ákveðna auðlind. Menntun skiptir æ meira máli í nútímasamfélagi og nýsköp- un og hagvöxtur er víða drifinn áfram af hugvitssömu, vel menntuðu fólki. Viðleitni til að rétta hlut þessa hóps hefur þó verið fyrir hendi undanfarin ár og hefur m.a. verið stefnt að því að auka sveigjanleika íslensks skólakerfis. Grunnskólalög heimila að nemandi ljúki námi úr grunnskóla á skemmri tíma en venjulegt er, en framkvæmd þessarar heimildar er mjög óljós. Ýmislegt bendir til þess að skólayfirvöld hafi á undan- förnum árum gert sér grein fyrir ólíkum þörfum grunnskólanema og séu farin að taka mið af því í auknum mæli. Ekki hef- ur þó verið nóg að gert og taka verður af skarið um aðgerðir í þessum málum, svo að komið verði í veg fyrir að næstu kyn- slóðir lúti lögmálum meðalmennskunn- ar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.