Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 63
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 63 ÁRIÐ 1994 hóf nú- verandi borgarstjórn- armeirihluti mikið uppbyggingarstarf með það að markmiði að auka lífsgæði allra borgarbúa. Við lögð- um upp með skýra sýn um hvers konar borg við vildum eiga þátt í að móta og síðustu ár hefur það verið okkar viðfangsefni að stýra borginni í samræmi við þá sýn. Einn er sá málaflokkur sem ekki fer hátt í umræðu um borgarmál og það eru jafnréttismálin. Því er stundum haldið fram í umræðum um jafnréttismál að óskaplega langt sé í land á öllum vígstöðvum. Auðvitað á þetta rétt á sér í sum- um tilfellum og ekki ætla ég að halda því fram að allt sé í himna- lagi og öllum áföngum náð. Það gleymist hins vegar stundum að mikill árangur hefur náðst víða. Kvennapólitískir vindar Það hefur mikil áhrif á sveit- arstjórnarmálin hér í Reykjavík að kvennapólitískir vindar blása þar. Feminísk sýn stjórnenda borgar- innar hefur haft þau áhrif að veru- lega hefur tekist að fjölga konum í yfirstjórn borgarinnar, og gleym- um því ekki að Reykjavíkurborg er annar stærsti launagreiðandi landsins á eftir ríkinu. Starfs- mannastefnan ber þess merki að í þessu stóra fyrirtæki hafa áhersl- urnar orðið aðrar en ella og for- gangsröðunin önnur og ég held því fram að kvennapólitísk sýn ráði þar miklu um. Ég nefni sem dæmi þær áherslur sem lagðar hafa verið í leikskólamálum, skólamálum og jafn- réttismálum á síðustu árum. Ég vil líka full- yrða að umræða um þjónustu borgarinnar innan kerfisins sjálfs hefur gerbreyst. Allar borgarstofnanir gera nú starfsáætlanir í jafnréttismálum og reynt hefur verið að skoða ýmsa þætti borgarrekstursins m.t.t. kynjasamþætt- ingar. Sérstaða Reykjavíkur Það er stundum nefnt að hlutur kvenna í nefndum á sveitarstjórn- arstiginu sé aðeins um 30 prósent. Að þessu leyti er Reykjavík með algera sérstöðu því formennska í 22 nefndum hér skiptist hnífjafnt milli kynja, 11 formenn eru konur og 11 karlar. Það er einnig athygl- isvert að skoða hlutfallið milli fylk- inganna í borgarstjórninni þar sem 53 prósent af sætum Reykjavík- urlistans í nefndum voru skipuð konum en 33 prósent af sætum Sjálfstæðisflokks voru skipuð kon- um. Það má því álykta að það sé fyrst og fremst áhersla Reykjavík- urlistans á jafnrétti kynja og áhrif kvenna innan hans sem hefur tryggt þennan einstæða árangur á þessu sviði. Á þessu ári náðist einnig sá árangur að hlutur kvenna í stjórnunarstöðum í Ráðhúsinu fór yfir 50 prósent. Ekki er heldur hægt að halda því fram að hér hafi konur verið ráðnar bara af því þær voru konur. Þær voru fremstar meðal jafningja og margar þeirra hafa sagt að þær hafi sótt um starf hjá borginni vitandi að þeim yrði ekki hafnað vegna kynferðis, held- ur yrði hæfni látin ráða. Við getum því sagt með nokkru stolti að Reykjavíkurborg hafi náð því markmiði að jafna hlut kvenna í pólitískum trúnaðarstörfum í sveit- arfélaginu og einnig í stjórnunar- stöðum. Ekki bara „af því bara“ Og auðvitað gerist þetta ekki „af því bara“ eða af sjálfu sér. Þetta gerist vegna þess að strax árið 1994 var mörkuð skýr stefna með ákveðnum kvennapólitískum markmiðum og árangur hefur náðst vegna þessarar skýru póli- tísku stefnumörkunar. Þetta stað- festir að þar sem konur komast til valda og hafa skýra feminíska framtíðarsýn er hægt að fjölga konum í stjórnunarstöðum, í nefndum og setja réttan jafnrétt- iskúrs. Vilji og skýr sýn er allt sem þarf. Vilji og skýr sýn er allt sem þarf Steinunn Valdís Óskarsdóttir Jafnréttismál Reykjavíkurborg hefur náð því markmiði, segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, að jafna hlut kvenna í pólitískum trúnaðarstörfum í sveitarfélaginu og í stjórnunarstöðum. Höfundur er borgarfulltrúi. fulla ábyrgð á. Ég ætla að fram- kvæmdastjórinn viti eitthvað um eðli samkeppninnar. Best þekkir almenningur heiðarlega samkeppni í íþróttum. Eitt hundrað metra hlauparar hlaupa allir eitt hundrað metra. Einn eða tveir hlauparar fá ekki 50 metra forskot á aðra hlaup- ara. Nei, kæri framkvæmdastjóri, það telst ekki heiðarleg samkeppni að gefa einhverjum aðilum forskot í samkeppninni. Vel á minnst, hversu stór er hlutur bankakerf- isins í þeim tveimur risum sem eru samanlagt með um 70–80% dag- vörumarkaðarins? Þátttaka bankakerfisins í atvinnulífinu Annars vegar höfum við hinn al- menna viðskiptamann kerfisins sem bera fulla ábyrgð á sínum rekstri án öryggisneta. Hann greið- ir fulla okurvexti til kerfisins. Hann er kúgaður til að greiða þjónustu- gjöld samkvæmt efstu mörkum gjaldskrár kerfisins og horfir síðan á samkeppnisaðilana njóta forskots í samkeppninni. Hins vegar höfum við síðan elít- una sem hefur öryggisnet sem bankakerfið hefur ofið. Þessir að- ilar fá fjármagn frá kerfinu inn í sinn rekstur í formi hlutafjárfram- laga. Á móti annast þeir innheimtu- störf fyrir kerfið af fúsum og frjáls- um vilja. Fórnarkostnaður er mikill en þó enn meiri hjá keppinautun- um. Þessir aðilar geta samið um hagstæð vaxtakjör og hafa auk þess forskot í samkeppninni vegna þess að þeir greiða einungis brota- brot af þjónustugjöldum í saman- burði við hinn almenna viðskipta- mann. Síðast en ekki síst geta síðan þessir aðilar, sem náð hafa mark- aðsráðandi stöðu í samstarfi við bankakerfið, misnotað þess stöðu sína og náð fram mun hagstæðari kjörum í viðskiptum við birgja en almennt gerist „þökk sé“ banka- kerfinu. Kæri framkvæmdastjóri; Ekki segja draugasögur í björtu. Höfundur er kaupmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.