Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 72
KIRKJUSTARF
72 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Með smá aðstoð…
…kemst blaðið örugglega í réttar hendur!
Fjölmargir blaðberar víðsvegar um landið bera til þín Morgunblaðið á hverjum útgáfudegi.
Harðduglegir og ráðagóðir blaðberar okkar gera kleift að fréttirnar berist heim til
landsmanna með þessum hætti. Því er mikilvægt að:
Merkja póstkassa og lúgur vel
Hafa útiljósin kveikt
Hreinsa burtu snjó og klaka af tröppum
flytja helgileik. Kirkjukór kirkj-
unnar syngur undir stjórn Steinars
Guðmundssonar organista. Systra-
félag kirkjunnar býður öllum að
þiggja veitingar í safnaðarheim-
ilinu að samkomunni lokinni.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarprestur og sóknarnefnd.
Bandarískir
jólasöngvar
í Fríkirkjunni
í Reykjavík
Í DAG laugardaginn 8. desember
klukkan 17:00 heldur samkór
bandaríska hersins í Keflavík tón-
leika. Verk þessa árs er verkið Ferð
vonarinnar eftir Camp Kirkland og
Tom Fettke. Það er ekki að ástæðu-
lausu sem þetta verk er valið. Á
þessum tímum höfum við ríka þörf
fyrir von. Þessir tónleikar tala
beint inn í þessa þörf okkar „Ferð
vonarinnar“.
Í kórnum eru um 40 félagar sem
hafa á undanförnum vikum lagt
nótt við dag við að setja upp þessa
tónleika. Taktu frá tíma til að njóta
góðrar tónlistar, taktu þér tíma til
að leita að voninni.
Allir velkomnir.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í
Reykjavík.
Aðventuhátíð
í Glæsibæjarkirkju
AÐVENTUHÁTÍÐ verður í Glæsi-
bæjarkirkju á 2. sunnudegi í að-
ventu 9. desember kl. 20:30. Þá
verður kveikt á tveimur kertum á
aðventukransinum
Aðalræðumaður kvöldsins verð-
urJón Oddgeir Guðmundsson.
Börn úr Þelamerkurskóla munu
syngja Lúsíu undir stjórn sr. Gylfa
Jónssonar og fermingarbörn munu
lesa helgileik, sem byggður er upp
af ritningarlestrum aðventunnar.
Kór Möðruvallaklausturspresta-
kalls syngur aðventulög og munu
þær Sigrún Jónsdóttir og Ingunn
Aradóttir syngja tvísöng með kórn-
um.
Að lokum verður helgistund í
umsjá sóknarprestsins sr. Solveigar
Láru Guðmundsdóttur.
Kór Hrafnistu
í Hafnarfjarðarkirkju
Á ÖÐRUM sunnudegi í aðventu
mun kór eldri borgara á Hrafnistu í
Hafnarfirði sækja heim Hafn-
arfjarðarkirkju. Kórinn syngur tvö
verk við guðsþjónustu sunnudags-
ins sem hefst kl.11.00. Stjórnandi
Hrafnistukórsins er Böðvar Magn-
ússon. Böðvar stofnaði kórinn og
hefur kórinn sungið víða og hlotið
góða dóma hvar sem hann hefur
komið fram. Þetta er í annað sinn
sem kór Hrafnistu sækir heim
Hafnarfjarðarkirkju. Hið fyrra
sinnið var einmitt á öðrum sunnu-
degi í aðventu árið 2000.
Eru Hafnfirðingar hvattir til að
fjölmenna til kirkju til að sjá og
heyra hinn dugmikla kór sem hefur
á að skipa félögum er hafa tekið
þátt í kórastarfi um langan aldur.
Elstu félagar kórsins eru á tíræð-
isaldri og syngja þeir líka við viku-
legar helgistundir á Hrafnistu.
Prestur guðsþjónustunnar er
sr.Þórhallur Heimisson en kór
Hafnarfjarðarkirkju leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Natalíu
Chow.
Færeysk messa verður kl.17.00.
Sr. Hans Eiler Hammer sókn-
arprestur í Klakksvík í Færeyjum
prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Gunnþóri Þ. Ingasyni,
sóknarpresti. Sungnir verða fær-
eyskir sálmar og horft til þýðing-
armikillar vináttu og samskipta
bræðraþjóðanna Færeyinga og Ís-
lendinga fyrr og nú. Organisti er
Natalía Chow. Eftir guðsþjón-
ustuna er boðið til kirkjukaffis í
Strandbergi, safnaðarheimili Hafn-
arfjarðarkirkju á vegum færeyska
sjómamannastarfsins og Fær-
eyingafélagsins.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Vídalínskirkja
á aðventu
HIÐ árlega aðventukvöld Garða-
sóknar er í Vídalínskirkju á annan
sunnudag í aðventu kl. 20.30. Þar
verður flutt vönduð dagskrá í tali
og tónum. Laufey Jóhannsdóttir,
forseti bæjarstjórnar, flytur ræðu
og innsiglar með henni lok hátíð-
arárs í tilefni 25 ára afmælis Garða-
bæjar, en það var sett með ræðu
bæjarstjórans, Ásdísar Höllu
Bragadóttur, í kirkjunni á nýárs-
dag.
Á aðventukvöldinu verður hljóð-
færaleikur og kórsöngur, bæði
kirkjukórinn og Hljómeyki syngja
valið efni, auk almenns söngs undir
stjórn organistans, Jóhanns Bald-
vinssonar. Þá verður einnig upp-
lestur og að lokinni stundinni verð-
ur boðið upp á súkkulaði og
smákökur.
Það er ómaksins vert að gera sér
ferð í Vídalínskirkju á aðventunni,
en þar hangir uppi myndlistarsýn-
ing með verkum eftir Kristínu G.
Gunnlaugsdóttur, Sigrúnu Ólöfu
Einarsdóttur, Sören S. Larsen,
Steinunni Þórarinsdóttur og Þor-
gerði Sigurðardóttur. Þessi verk
eru margvísleg að gerð og njóta sín
vel í kirkjunni. Þau skapa kirkjunni
nýjan og geðþekkan búning og
kalla á augað. Sýningin verður opin
fram á þrettándann, 6. janúar 2002.
Á næstu tveimur sunnudögum
munu Hofsstaðaskóli og Flataskóli
koma í heimsókn í fjölskylduguðs-
þjónustur, en nemendur þeirra
munu þar flytja ýmiss konar efni,
gamalt og frumsamið og syngja að-
ventu- og jólalög. Heimsóknir þess-
ar eru orðnar að föstum lið í kirkju-
starfinu. Sunnudagaskólinn mun
starfa eins og verið hefur, þrátt fyr-
ir þessar heimsóknir.
Á fjórða sunnudag í aðventu, sem
er á Þorláksmessu, verða Jóla-
söngvar fjölskyldunnar kl. 11.00.
Þar verður lögð áhersla á almenn-
an söng og sungið gamalt og nýtt
efni, sem annars vill verða útundan
og þannig sungin inn jólin fullum
hálsi.
Prestarnir.
Brúðubíllinn
í Laugarneskirkju
Á SUNNUDAGINN kemur, 9.12. kl.
11:00, verður sérstök stund í Laug-
arneskirkju, því að brúðubíllinn
mun heimsækja krakkana til þess
að segja þeim jólaævintýri. Við
göngum, svo sem vant er, inn um
aðaldyr kirkjunnar og tökum öll
þátt í upphafi messunnar, en áður
en kemur að prédikun munu sunnu-
dagaskólakrakkar ganga yfir í
safnaðarheimilið þar sem brúðu-
bíllinn verður mættur til leiks með
öllum sínum undrum og ánægju
undir stjórn Helgu Steffensen. Eng-
inn verður krafinn um greiðslu, en
mælst er til þess að hver fjölskylda
greiði kr. 500.- fyrir sýninguna.
Karlakór Reykjavíkur
í Hallgrímskirkju
KARLAKÓR Reykjavíkur mun
syngja við messu í Hallgrímskirkju
sunudag. Stjórnandi kórsins er
Friðrik Kristinsson. Karlakórinn
mun síðan halda þrenna tónleika í
kirkjunni um næstu helgi.
Sr. Sigurður Pálsson prédikar í
messunni og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni.