Morgunblaðið - 08.12.2001, Side 92

Morgunblaðið - 08.12.2001, Side 92
GUÐNI Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Fram- sóknarflokksins, segir að heppilegt væri fyrir framsóknarmenn og raunar báða stjórnarflokkana að uppstokkun fari fram í ríkisstjórn- inni. Þetta kemur fram í viðtali Morgunblaðsins við Guðna þar sem hann ræðir um landbúnaðarmál, Evrópumál og stöðu Framsóknar- flokksins. Guðni kveðst hafa áhyggj- ur af slakri stöðu Framsóknar- flokksins skv. fylgiskönnunum og segir flokkinn þurfa að skýra sína stefnu. ,,Það væri mjög heppilegt núna að reisa sig til nýrrar sóknar á síð- ari hluta kjörtímabilsins með því að endurskipuleggja stjórnarráðið með ákveðnum hætti...“ segir Guðni m.a. í viðtalinu. Aðild að ESB ekki á dagskrá næstu árin Guðni segist telja að aðild að Evr- ópusambandinu verði ekki á dag- skrá á Íslandi á næstu árum. Of stórir hagsmunir komi í veg fyrir það. ,,Það er þess vegna líka óþarfi að ræða um evruna eins og einhverja lausn eftir morgundaginn,“ segir hann. Í viðtalinu við Guðna kemur fram að hann hefur nýlega gengið frá sölu á 34% hlut ríkisins í fiskeld- isfyrirtækinu Stofnfiski. Söluverðið er 270 milljónir króna og kaupendur aðrir hluthafar í fyr- irtækinu auk annarra íslenskra at- hafnamanna. Þá segir Guðni að stjórnvöld þurfi að setjast niður með Bændasamtök- unum og landssamböndum kúa- bænda og sauðfjárbænda til að fara yfir það háa verð sem verið hefur í viðskiptum með greiðslumark og ræða þurfi hvort búa eigi við sama fyrirkomulag í framtíðinni eða leita sátta um nýjar leiðir. Mælir með uppstokkun í ríkisstjórninni  Mikilvægt/46–47 Guðni Ágústsson varaformaður Framsóknarflokksins MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. SJÓR komst í framlest Brúarfoss, skips Eimskipafélagsins, seinni partinn í gær er það var á leið frá Ís- landi til Evrópu og var ákveðið að snúa skipinu í öryggisskyni til Fær- eyja og er skipið væntanlegt þangað fyrir hádegi í dag. Ingimundur Sigurpálsson, for- stjóri Eimskipafélags Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöld að ákveðið hefði verið að snúa skipinu til Færeyja í öryggisskyni, þar sem sjónum yrði dælt úr skipinu. Veður væri að lægja á svæðinu og eftir því sem hann best vissi væri engin hætta á ferðum. Ingimundur sagði að slæmt veður hefði verið á þessum slóðum og talið væri líklegast að sjór hefði komist í lestina með akkerisfestingu. Brúarfoss er í föstum áætlunar- siglingum milli Íslands og Imming- ham í Englandi og Rotterdam í Hol- landi.      %! %! %& %& %& %&  %& %& %& %& %& )*#+%* ,-.  / 01 )#                    !"#$    %$  &&    Sjór komst í fram- lest Brúarfoss JÓLATRÉÐ, sem sett var upp við Tjarnargötutorg í Keflavík, brotnaði í óveðri sem gekk yfir síðdegis í gær. Sömuleiðis fuku jólatré í Garðinum og í Vogum. Tréð í Keflavík var gjöf frá Kristiansand í Noregi en það er vinabær Reykjanesbæjar. Til stóð að kveikja á ljósum trésins við hátíðlega athöfn síðdegis í dag og kom fulltrúi frá Kristiansand til landsins í þeim tilgangi. Heimamenn í Keflavík dóu þó ekki ráðalausir. Að sögn Halldórs Magnússonar hjá Áhaldahúsi Reykjanesbæjar var sent eftir nýju tré í Skorradal í gær, sem setja á upp fyrir kl. 18 í dag þegar ljósin verða kveikt. „Það verður allt komið í topplag þá og ég geri ráð fyrir því að dag- skráin verði óbreytt þó að svona óhapp eigi sér stað,“ sagði Hall- dór. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Jólatréð frá frændum okkar í Noregi varð að lúta í lægra haldi fyrir íslenskum veðurofsanum. Nýtt tré sótt í Skorradal Vinabæjarjólatréð í Keflavík brotnaði í tvennt AFTAKAVEÐUR var víða um land í gær og fór meðalvindhraðinn í rúm- lega 40 metra á sekúndu á Holta- vörðuheiði um kvöldmatarleytið. Veðrið virðist hafa skollið á nokkuð skyndilega á flestum stöðum á land- inu. Veðrið olli töluverðum usla vítt og breitt um landið. Flug féll að miklu leyti niður og þurftu nokkur hundruð flugfarþegar, sem voru að koma frá Evrópu, að bíða í vélunum á Keflavík- urflugvelli í allt að tvo klukkutíma eft- ir því að fá að fara frá borði, þar sem ekki var hægt að tengja landgöngu- brýr við vélarnar vegna hvassviðris. Fjölmargir ökumenn lentu í vand- ræðum á heiðum uppi þar sem fjöldi bíla fauk út af án þess þó að slys yrðu á fólki. Þá fauk rúta með 19 manns út af veginum um Fagradal þar sem maður hlaut áverka á andliti og kona kvartaði undan eymslum í baki. Meiðsli hinna farþega rútunnar voru ekki talin alvarleg. Víða var ófært um vegi vegna veð- ursins og var Suðurlandsvegi milli Kirkjubæjarklausturs og Víkur í Mýrdal lokað vegna sandstorms á Mýrdalssandi. Fljúgandi hálka var víða um land og voru dæmi um að mannlausir bílar fykju til á bílastæð- um vegna svellsins. Óveðrið skall á eins og hendi væri veifað Að sögn Haralds Eiríkssonar, veð- urfræðings hjá Veðurstofu Íslands, var veðrið af suðvestan um allt land. „Þetta byrjaði um kaffileytið sunnan- lands og svo breiddist þetta norður yfir landið. Það virðist hafa orðið einna hvassast á norðvestanverðu landinu, á Ströndunum og á Norður- landi vestra og svo á hálendinu.“ Hann segir að mestur hafi vindurinn orðið á Holtavörðuheiði. „Þar fór meðalvindhraðinn í rúmlega 40 metra á sekúndu um kvöldmatarleytið og al- mestu hviðurnar sem ég sá voru um það bil 47 metrar. Algengt var að sjá að meðalvindhraðinn færi í 25 metra og ég held að það hafi verið í öllum landshlutum.“ Haraldur segir það hafa verið ein- kennandi að veðurhamurinn skall mjög skyndilega á alls staðar á land- inu. „Það var hægur vindur og svo skall þetta á eins og hendi væri veifað í kjölfarið á lægð sem fór norður yfir landið.“ Um miðnætti hafði dregið töluvert úr vindinum sunnanlands þó að enn gengi á með hvössum éljum. Aftakaveður víða um land  Afleiðingar óveðursins/2, 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.