Morgunblaðið - 16.05.2002, Qupperneq 24
SUÐURNES
24 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMBJÓÐENDUR í sveitarfélög-
unum fimm á Suðurnesjum vegna
kosninganna 25. maí næstkomandi
eru alls 236 á 16 listum, þar af 143
karlar og 93 konur. Er það svipað
kynjahlutfall og var á landsvísu í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum. Af
þessum 16 listum eru karlar í efsta
sæti á 14, aðeins eru konur í efsta sæti
á V-lista í Vatnsleysustrandarhreppi
og H-lista í Gerðahreppi. Fjöldi kjör-
inna fulltrúa í þessum sveitarfélögum
er 37 en fyrir síðustu kosningar voru
15 listar í boði. Kjörstjórnir sveitarfé-
laganna eru þessa dagana að ganga
frá kjörskrám.
Hlutfall kvenna er hæst af þeim
fjórum listum sem eru í boði í Sand-
gerði, eða 46,4% á móti 53,6% hlutfalli
karla. Svipað kynjahlutfall er á list-
unum í Grindavík og Reykjanesbæ,
eða um 60% karlar og 40% konur.
Hlutfallslega fæstar konur hafa gefið
kost á sér í Vatnsleysustrandar-
hreppi og Gerðahreppi, eða 33,3% á
móti 66,7% hjá körlum. Hér verður
litið á tölfræðina í hverju sveitarfélagi
fyrir sig.
Reykjanesbær
Í Reykjanesbæ bjóða alls 66 ein-
staklingar sig fram á þremur listum,
þar af 40 karlar og 26 konur. Íbúar í
sveitarfélaginu voru 10.942 hinn 1.
desember sl. þannig að 0,6% íbúa
bjóða sig fram en kjörnir fulltrúar eru
11.
Listarnir sem eru í boði eru B-listi
Framsóknarflokks, D-listi Sjálfstæð-
isflokks og S-listi Samfylkingarinnar.
Framsóknarmenn með tvo fulltrúa og
Sjálfstæðismenn með fimm fulltrúa
hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn
á móti J-lista jafnaðar- og félags-
hyggjufólks.
Grindavík
Frambjóðendur í Grindavík eru
alls 42 á þremur listum, þar af 25
karlar og 17 konur. Íbúafjöldi í
Grindavík 1. des. sl. var 2.339 manns
þannig að 1,8% íbúa eru í kjöri.
Fulltrúar í bæjarstjórn eru sjö og við
síðustu kosningar fengu framsóknar-
menn tvo, sjálfstæðismenn tvo og J-
listi þrjá, sem eru í minnihluta.
Listarnir sem nú eru í boði eru B-
listi Framsóknarflokks, D-listi Sjálf-
stæðisflokks og S-listi Samfylkingar-
innar.
Sandgerði
Fjórir listar eru í boði í Sandgerð-
isbæ með alls 56 manns, þar af eru
karlarnir 30 og konurnar 26. Miðað
við fjölda íbúa 1. des. sl. upp á 1.400
eru um 4% þeirra í framboði nú, sem
er hæsta hlutfallið af sveitarfélögun-
um á Suðurnesjum. Sjö fulltrúar eru í
bæjarstjórn, K-listi Alþýðuflokks og
óháðra hefur verið í meirihluta með
fjóra, sjálfstæðismenn með tvo og
framsóknarmenn með einn.
Listarnir fjórir fyrir kosningarnar
nú eru B-listi Framsóknarflokks, D-
listi Sjálfstæðisflokks og óháðra, K-
listi óháðra borgara og Samfylking-
arinnar og Þ-listi Sandgerðislistans.
Gerðahreppur
Í Gerðahreppi eru 3 listar í boði
með alls 42 frambjóðendum, þar af 28
körlum og 14 konum. Íbúar í hreppn-
um voru alls 1.207 hinn 1. desember
2001 sem þýðir að 3,5% þeirra gefa
kost á sér á lista. F-listi framfarasinn-
aðra kjósenda hefur verið með meiri-
hlutann í sjö manna hreppsnefnd, eða
fjóra fulltrúa, en H-listi sjálfstæðis-
manna og annarra frjálslynda kjós-
enda verið með tvo og I-listi Félags
óháðra borgara verið með einn.
Þessir listar bjóða nú fram aftur
með sömu bókstöfum.
Vatnsleysustrandarhreppur
Frambjóðendur í Vatnsleysu-
strandarhreppi eru 30 á þremur list-
um, þar af 20 karlar og 10 konur.
Hinn 1. des. sl. voru 837 íbúar skráðir
með lögheimili í Vogunum þannig að
3,6% þeirra eru nú í framboði. Fimm
fulltrúar eru í hreppsnefnd og skipar
H-listi óháðra borgara meirihlutann
og T-listi nýrra viðhorfa verið með
tvo fulltrúa.
H-listinn býður einnig fram nú,
sem og T-listi sem nefnir sig lista
fólksins. Þriðja framboðið hefur nú
bæst við, V-listi áhugafólks um vel-
ferð Vatnsleysustrandarhrepps.
!
"
!
##
$
$
!
!!
"
#!"
$%
$%
$ ( )
"
"
"
,
--
,-
!
,
!
#
-
"
-
% !&'(
)
)$
! ""#$ "%"
#"&'(" ! '
*+'!
',-*
! '.
'$
'
! '
!
'
/
$
Sextán listar í boði á Suðurnesjum með 236 frambjóðendum
4% íbúa í Sandgerði
bjóða sig fram á lista
Suðurnes
UMRÆÐAN um fordóma og einelti
hefur verið mikil að undanförnu og
ekki að ástæðulausu. Einelti þrífst
víða og reynist sumum erfitt að láta
af þeim ósið. Nemendur í Holtaskóla
í Keflavík hafa upplifað einelti í sín-
um skóla og vildu leggja hönd á plóg
í viðleitninni við að uppræta einelti.
Þegar farið var að viðra hugmyndir
um að setja leikverk á svið í skól-
anum í byrjun annarinnar lögðu þau
til að Ávaxtakarfan yrði fyrir val-
inu, enda tekur söngleikurinn mjög
skemmtilega á vandamálinu.
Ávaxtakarfan var frumsýnd sl.
mánudag og lauk sýningum í gær.
Alls tóku tíu nemendur úr 7., 8. og 9.
bekk þátt í uppfærslunni, ásamt
fimm dönsurum úr 3. bekk. Leik-
ritið breyttist í meðförum hópsins
þó að grunnhugmyndin hefði verið
sú sama.
Þessi Ávaxtakarfa var fé-
lagsmiðstöð unglinga og þegar skáti
villist þangað inn einn daginn varð
uppi fótur og fit, hann var ekki vel-
kominn í þessa félagsmiðstöð. Það
þarf ekki að tíunda þá meðferð sem
skátinn mátti að þola fyrst um sinn
en ásamt Mæju, sem allir ungling-
arnir höfðu útskúfað úr hópnum,
reis skátinn upp til varnar og tókst
að sameina unglingana í einn vina-
hóp undir kjörorðinu „allir eru sér-
stakir á sinn hátt.“ Nemendurnir
gerðu þetta listavel, hugmyndin
gekk vel upp og það var mikil leik-
gleði í hópnum.
Sigríður Aðalsteinsdóttir, óp-
erusöngkona og kennari við Holta-
skóla, leikstýrði verkinu sem er eft-
ir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur.
Hún sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera mjög ánægð með
frammistöðu krakkanna.
„Þetta er mjög krefjandi verk og
mikið sem þarf að læra, bæði í sam-
bandi við leikinn og sönginn. Þessir
krakkar hafa orðið vitni að einelti
hér í skólanum og einelti viðgengst
því miður í öllum skólunum hér í
Reykjanesbæ, þannig að mér finnst
þetta framlag þeirra mjög gott og
þarft. Þau hafa ennfremur fært
þetta í búning sem færir verkið nær
þeim. Ég vona að þeim hafi tekist að
vekja áhorfendur til umhugsunar
um þessi mál,“ sagði Sigríður.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
„Immi best, Immi best,“ syngur hópurinn enda stendur til að krýna unglingsdrenginn Imma foringja fé-
lagsmiðstöðvarinnar. Gedda og Maja koma í veg fyrir það og tekst að sannfæra hópinn um gildi vináttu.
Nemendur Holtaskóla tóku einelti fyrir í uppfærslu á Ávaxtakörfunni
„Allir eru
sérstakir á
sinn hátt“
Keflavík
FERÐAMÁLAFÉLAG Grindavík-
ur var stofnað nýlega. Hlutverk fé-
lagsins er að efla ferðaþjónustu í
Grindavík og efla samstarf einstak-
linga og fyrirtækja sem starfa í
ferðaþjónustu í bænum. Einkum er
horft til samstarfs í kynningar- og
sölumálum auk þess að stefna að
því að bæta þjónustu við ferðamenn
í bænum. Á fundinum var á þriðja
tug manna sem teljast stofnfélagar.
Sigurður Ágústsson flutti fróð-
legt erindi þar sem hann fór í hug-
anum með fundargesti í ferð um
sögu Grindavíkur og kom þar víða
við.
Á fundinum urðu einnig fjörlegar
umræður um nauðsyn þess að leið-
sögumenn væru starfandi í Grinda-
vík.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Sigurður Ágústsson flutti erindi um sögu Grindavíkur á stofnfundinum.
Ferðamálafélag stofnað
Grindavík
SAMEIGINLEGUR framboðsfund-
ur á vegum framboðanna í Reykja-
nesbæ verður í Félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík í kvöld kl. 20 og er
áætlað að hann standi í tvo tíma.
Hvert framboð fær 10 mínútna fram-
sögu sem má skipta milli frambjóð-
enda. Að loknum framsöguerindum
verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Hvert framboð tilnefnir einn fulltrúa
sem situr fyrir svörum. Allir bæj-
arbúar eru hvattir til að mæta og
kynna sér betur stefnumál framboð-
anna. Fundarstjóri verður Jóhann
Hlíðar Harðarson fréttamaður.
Framboðs-
fundur í Stapa
Reykjanesbær
FRAMSÓKNARFLOKKURINN í
Reykjanesbæ og Skákfélag Reykja-
nesbæjar hafa gert með sér sam-
komulag sem felur í sér að Skák-
félagið fær afnot af félagsheimili
framsóknarmanna á Hafnargötu 62
í Keflavík einu sinni í viku fyrir
sína starfsemi, endurgjaldslaust.
Í tilefni undirritunar samningsins
var efnt til sérstaks skákdags síð-
astliðinn sunnudag og meðal gesta
var Þröstur Þórhallsson, stórmeist-
ari í skák, sem tók nokkrar léttar
skákir við gesti – með forgjöf.
Skákmenn
fá aðstöðu
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦