Morgunblaðið - 26.01.2003, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.01.2003, Blaðsíða 3
TRYGGINGAFRÆÐILEG STAÐA Tryggingafræðileg úttekt sem miðast við árslok 2002 sýnir að skuldbindingar nema 8% umfram eignir. Þar af hafa nýjar töflur um dánarlíkur, sem sýna auknar lífslíkur sjóðfélaga, áhrif til hækkunar skuldbindinga sjóðsins um 2%. LÍFEYRISGREIÐSLUR OG VERÐTRYGGING LÍFEYRIS Á árinu 2002 nutu 6.012 lífeyrisþegar lífeyrisgreiðslna úr sjóðnum að fjárhæð 2.095 milljónir samanborið við 1.828 milljónir árið áður, en það er hækkun um 15%. Allar lífeyrisgreiðslur sjóðsins eru verðtryggðar og taka mánaðarlega breytingum vísitölu neysluverðs. Elli-, örorku og makalífeyrisgreiðslur eru í réttu hlutfalli við þau iðgjöld sem sjóðfélagarnir greiddu til sjóðsins, þ.e. hærri iðgjöld gefa hærri lífeyri. EIGNIR 102 MILLJARÐAR Eignir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna námu 102,0 mill- jörðum í árslok og hækkaði eignin um 4,5 milljarða á árinu eða um tæp 5%. Á árinu 2002 greiddu 41.243 sjóðfélagar til sjóðsins. Iðgjaldagreiðslur til sjóðsins námu 7.383 mkr. og er það aukning um rúm 8%. Jafnframt greiddu 5.936 fyrirtæki til sjóðsins vegna starfsmanna sinna. ÁVÖXTUN Ávöxtun sjóðsins á árinu 2002 var -0,8% sem samsvarar -2,7% raunávöxtun samanborið við -0,7% raunávöxtun á árinu 2001. Með hækkandi hlutfalli innlendra og erlendra hlutabréfa í verðbréfasafni sjóðsins mun verða vart meiri sveiflna í ávöxtun sjóðsins á komandi árum. Til lengri tíma litið mun hærra hlutfall hlutabréfa skila sjóðnum betri raunávöxtun en ef eingöngu hefði verið fjárfest í skuldabréfum. Það má til að mynda sjá af raunávöxtun innlendrar hlutabréfaeignar lífeyrissjóðsins á liðnum árum. Meðalraunávöxtun sjóðsins síðustu 5 árin er 3,2% og meðalraunávöxtun síðustu 10 ára er 5,4%. Ávöxtun sjóðsins skiptist þannig eftir verðbréfaflokkum: Innlend hlutabréf: Raunávöxtun innlendu hlutabréfa- eignarinnar var 17,7% og nafnávöxtun 20,0% en til samanburðar hækkaði Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands um 16,7% á árinu 2002. Heildararðsemi innlendu hlutabréfaeignarinnar yfir tímabilið 1980 til ársloka 2002 er 11,1%. Erlend hlutabréf: Ávöxtun erlendu hlutabréfaeignar sjóðsins í dollurum var -19,9% á árinu 2002 en á sama tíma lækkaði heimsvísitala Morgan Stanley um 21,1%, en hún er helsti mælikvarði á breytingu hlutabréfaverðs í heiminum. Að auki styrktist íslenska krónan um 13,5% á árinu gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Skuldabréf: Raunávöxtun innlendrar skuldabréfaeignar nam 5,9% á liðnu ári sem er óbreytt raunávöxtun frá árinu 2001. VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI OG RÁÐSTÖFUNARFÉ Ráðstöfunarfé sjóðsins á árinu 2002 var 20.155 mkr. og nemur aukningin 26% frá fyrra ári. Innlend hlutabréfakaup umfram sölu námu 804 mkr. Skuldabréfaviðskipti sjóðsins námu 12.017 mkr. Þar af námu kaup skuldabréfa 10.887 mkr. og sala skuldabréfa 1.130. Erlend verðbréfakaup umfram sölu námu 2.689 mkr. LÍFEYRISRÉTTINDI Sjóðurinn skiptist í sameignar- og séreignardeild. Sameignardeild sjóðsins greiðir ellilífeyri, örorkulífeyri og maka- og barnalífeyri. Greiðsla í séreignardeild sjóðsins veitir góða viðbót við þau réttindi sem sameignardeildin veitir. SÉREIGNARDEILD Séreignardeild sjóðsins hefur nú starfað í 4 ár. Á árinu 2002 námu iðgjöld til séreignardeildarinnar 465 mkr. samanborið við 252 mkr. árið 2001 sem er aukning um 85% og nema eignir sjóðfélaga hennar í árslok 1.069 mkr. sem er hækkun um 71% frá fyrra ári. Ávöxtun séreignardeildarinnar nam -0,8% á liðnu ári. Í árslok 2002 áttu 18.553 einstaklingar inneignir í séreignardeildinni. Heimasíða: www.live.is LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA Upplýsingar um starfsemi á árinu 2002 Netfang: skrifstofa@live.is SKIPTING VERÐBRÉFAEIGNARHÖFUÐSTÓLL Í MILLJÖRÐUM 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 1998 1999 2000 2001 2002 110 0 200 400 600 800 1.000 1999 2000 2001 2002 1.200 SÉREIGN Í MILLJÓNUM Veðskuldabréf önnur 2% Íbúðalánasjóður 4% Markaðsbréf 16% Fjárfestinga- lánasjóðir 3% Innlend hlutabréf 13% Sjóðfélagar 18% Spariskírteini 2% Erlend verðbréf 16% Húsbréf 20% Húsnæðisbréf 6% YFIRLIT YFIR BREYTINGAR Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS 2002 EFNAHAGSREIKNINGUR 31. 12. 2002 KENNITÖLUR Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Magnús L. Sveinsson, formaður Víglundur Þorsteinsson, varaformaður Benedikt Kristjánsson Birgir R. Jónsson Gunnar P. Pálsson Ingibjörg R. Guðmundsdóttir Jóhanna E. Vilhelmsdóttir Tryggvi Jónsson Forstjóri sjóðsins er Þorgeir Eyjólfsson ÁRSFUNDUR Ársfundur sjóðsins verður haldinn mánudaginn 19. maí nk. kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar. Í milljónum króna 2002 2001 Verðtryggð innlend skuldabréf 52.479 49.070 Sjóðfélagalán 17.674 15.140 Innlend hlutabréf 13.202 10.427 Erlend hlutabréf 16.241 21.985 Verðbréf samtals 99.596 96.622 Bankainnistæður 1.337 436 Eignarhluti í Húsi verslunarinnar 232 234 Rekstrarfjármunir og aðrar eignir 73 76 Skammtímakröfur 939 1.018 Skammtímaskuldir -220 -874 Hrein eign sameignardeild 100.888 96.887 Hrein eign séreignardeild 1.069 625 Samtals hrein eign 101.957 97.512 Í milljónum króna 2002 2001 Iðgjöld 7.383 6.808 Lífeyrir -2.095 -1.828 Fjárfestingartekjur -640 6.988 Fjárfestingargjöld -121 -102 Rekstrarkostnaður -123 -104 Aðrar tekjur 41 38 Endurmatshækkun rekstrarfjárm. 0 25 Hækkun á hreinni eign á árinu 4.445 11.825 Hrein eign frá fyrra ári 97.512 85.687 Hrein eign til greiðslu lífeyris 101.957 97.512 2002 2001 Raunávöxtun -2,7% -0,7% Hrein raunávöxtun -2,8% -0,8% Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 3,2% 5,9% Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 5,4% 6,3% Rekstrarkostnaður í % af iðgjöldum 1,18% 1,01% Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,08% 0,07% Lífeyrir í % af iðgjöldum 30,1% 27,7% Fjöldi greiðandi sjóðfélaga 41.243 41.142 Fjöldi lífeyrisþega 5.640 5.170 Fjöldi greiðandi fyrirtækja 5.936 5.687 Stöðugildi 26,5 23,2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.