Morgunblaðið - 26.01.2003, Síða 42
MINNINGAR
42 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
tvíburabróðir, afi og langafi,
VALDEMAR HALLDÓRSSON,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri föstu-
daginn 17. janúar, verður jarðsunginn frá Gler-
árkirkju miðvikudaginn 29. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
styrktarsjóð Þroskahjálpar Norðurlands eystra.
Helga Sigurlaug Baldvinsdóttir,
Ásgeir Valdemarsson,
Baldvin Valdemarsson, Magnea Steingrímsdóttir,
Soffía Valdemarsdóttir, Eyþór Gunnþórsson,
Páll Helgi Valdemarsson, Bjarnfríður Jónudóttir,
Björn Valdemarsson, Berglind Rafnsdóttir,
Soffía Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
fjölskyldunni hluttekningu og hlýhug vegna
andláts okkar ástkæru
JÓHÖNNU GUÐRÚNAR DAVÍÐSDÓTTUR
frá Patreksfirði,
til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
12-G á Landspítala Hringbraut fyrir umönnun
við hana af virðingu og hlýhug.
Einnig kærar þakkir og kveðjur til starfsfólks og heimilisfólks á Hrafnistu í
Reykjavík.
Hrefna Sesselja Pétursdóttir,
Hugrún Pétursdóttir, Marteinn E. Geirsson,
Pétur Kúld Pétursson, Anna S. Einarsdóttir,
Ólína Björk Pétursdóttir,
Pétur Hafliði Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR FRIÐRIKS JÓNSSONAR
fyrrverandi lögregluþjóns,
Hringbraut 50,
Reykjavík.
Innilegar þakkir til lögreglunnar í Reykjavík fyrir
sýnda virðingu og samúð við útför hins látna.
Þökkum innilega starfsfólki á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir hlýju
og alúð.
Júlíus Sigurðsson, Jóhanna Ellý Sigurðardóttir,
Sigurður Sigurðsson, Guðríður Einarsdóttir,
Jórunn Sigurðardóttir, Sigurður K. Eggertsson,
Sigrún Sigurðardóttir, Gísli Már Gíslason,
Jón Sigurðsson, Jónína Arnardóttir,
Hilmar Steinar Sigurðsson, Þórdís Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ELÍSABET AXELSDÓTTIR DAY
lést í Los Angeles, Kaliforníu, mánudaginn 20. janúar sl.
Jarðarför fór fram föstudaginn 24. janúar.
Harvey Thomas,
Axel Axelsson,
Soffía Ó. Axelsdóttir,
Björn Axelsson,
Ólöf Axelsdóttir.
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
MARGRÉTAR MÖLLER,
sem lést 18. janúar, fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 28. janúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Stykkishólmi.
Agnar Möller, Lea Rakel Möller,
Kristín Möller, Kristján Ragnarsson,
William Thomas Möller, Anna N. Möller,
Óttarr Möller, Arnþrúður Möller,
Jóhann Möller, Elísabet Á. Möller,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Að alast upp með
barngóðu fólki er eitt
það mikilvægasta sem
hægt er að auðnast. At-
læti það sem börn fá eða gjafir hinna
fullorðnu gefur þeim veganesti út í
lífið, sorgir þess og gleðistundir.
Minningin um Steingrím Birgis-
son er sterk og þegar ég lít til baka
vil ég þakka fyrir það mest að hann
kenndi mér að skilja á milli merki-
legra athafna og ómerkilegra hluta.
Mér fannst hegðun hans öll lík því að
hann væri að undirbúa ferðalag á
æðri slóðir. Hann helgaði líf sitt
gyðjum í ýmsum myndum.
Himinninn bíður allra þeirra sem
vilja þiggja aðgang.„Hver sem vill
fær ókeypis lífsins vatn“ (Op.22.17).
Steini minn, merkilegustu athafnirn-
ar voru þegar þú sast við orgelið á
STEINGRÍMUR JÓN
BIRGISSON
✝ Steingrímur JónBirgisson hús-
gagnasmíðameistari
og tónskáld fæddist
á Húsavík 14. októ-
ber 1924. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga 16. jan-
úar síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Húsavíkurkirkju
25. janúar.
dimmum kvöldum og
við börnin að leika. Svo
kallaðir þú okkur til
þín; börnin eiga að vera
með og syngja eða
spila. Þetta var gott
uppeldi, uppbyggilegt
og ekkert verið að bás-
úna yfir því þó allir
næðu ekki rétta tónin-
um.
Það að hvetja börn til
dáða, sýna þeim mögu-
leikana í listum og leik
og kenna þeim að tjá og
sýna tilfinningar er það
veganesti sem þú send-
ir okkur krakkaklíkuna þína með út í
lífið. Alltaf tónlist, alltaf söngur, allt-
af klapp á kinnina og endalausar
spurningar um tilgang lífsins og
mikilvægi ástarinnar. Spurningum
sem engum hefur enn tekist að
svara.
Þarna var fjölskyldan á Garðars-
braut 45 akkeri og skjól og er reynd-
ar enn með Steinunni og Birgi við
stjórnvölinn. Þar var mikið hlegið og
hátt enda hafa konurnar á þessu
heimilið verið skörungar og þurft að
láta í sér heyra. Að minnsta kosti
hafðir þú vit á því að vera ekkert að
trana þér fram í viðræðum við eig-
inkonu og vinkonur hennar. Þú lékst
undir á orgel þegar þær ræddu mik-
ilvægar aðgerðir í bæjarfélaginu í
eldhúsinu hjá Kaju.
Öll þessi lífsgildi þín, Steini minn,
varðveiti ég í minningunni eins og
gullmola úr æskunni. Verst fannst
mér hvað þér var alltaf kalt. Dróst
upp buxurnar og hristir þig. Nú er
þér líklega funheitt í fanginu á kon-
unni þinni og mömmu, þær voru nú
alltaf holdmiklar, þessar elskur, og
það kunnir þú að meta eins og sannir
karlmenn gera.
Konur með stóran barm og mjúk-
ar lendar, þær voru þínar enda átti
rómantíkin greiðan aðgang að hjarta
þínu sem sést í tónlistinni sem þú
samdir og ég sit nú og hlusta á.
Þær blésu nú stundum í þig hita
og Guð einn veit að þær hafa beðið
endurfundanna með óþreyju. Ég öf-
unda þig að hafa þær hjá þér því
betra skjól er ekki til. Þannig er það í
minningunni að minnsta kosti. Láttu
þær samt ekki plata þig út í neina
vitleysu eins og þær áttu vanda til.
Þeim gat dottið ýmislegt í hug sem
ekki hæfir listamanni eins og þér, þú
veist hvað ég meina.
Þið Kaja tengdust foreldrum mín-
um órjúfanlegum böndum og á milli
ykkar var skilyrðislaus vinátta sem
við börnin nutum góðs af. Án efa hef-
ur ekki allt verið dans á rósum en
Pollíana vill ekki muna neitt nema
það góða og þannig verður það.
Ég man þegar ég gifti mig og þú
sagðir að ég mætti velja mér hvað
sem ég vildi úr búðinni. Svo spilaðir
þú í brúðkaupinu mínu ásamt pabba
og Didda Hall og þið voruð flottastir.
Ég man hvað ég var stolt af ykkur,
gömlu körlunum frá Húsavík, þegar
þið tókuð sveiflurnar. Vildi svo
gjarnan hafa fylgst með ykkur töff-
urunum, tvítugum á böllunum.
Ég kveð þig, elsku Steini minn, og
bið þig aftur og enn að passa stelp-
urnar.
Húsvíkingar kveðja nú listamann
og tryggan vin.
Blessuð sé minning þeirra hjóna,
Karítasar Hermannsdóttur og
Steingríms Birgissonar frá Hlyn.
Þau skemmtilegu heiðurshjón skil-
uðu dagsverki sínu vel.
Jónína Ben.
✝ Steindór Guð-mundsson fædd-
ist í Firði í Lóni 5.
nóvember 1922.
Hann lést á hjúkrun-
ardeild HSSA á Höfn
16. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðmundur
Halldórsson, f. 19.12.
1889, d. 14.12. 1974,
og Ingibjörg Einars-
dóttir, f. 3.6. 1890, d.
1.11. 1962. Árið 1933
fluttust þau að Þor-
geirsstöðum í Lóni
ásamt börnum sín-
um. Börn þeirra eru auk Stein-
dórs, Karl Guðjón, f. 27.1. 1920,
Eiríkur, f. 26.4. 1927, d. 9.1. 1985,
og Signý, f. 15.5. 1929.
Eiginkona Steindórs er Stein-
unn Margrét Sigurðardóttir, f.
16.5. 1925. Foreldrar hennar voru
Sigurður Snjólfsson, f. 17.1. 1893,
d. 19.3. 1949, og Guðrún Halldórs-
dóttir, f. 7.4. 1892, d. 3.5. 1988.
Steindór og Steinunn hófu búskap
í Hvammi 1950 og giftust 13. des-
ember 1952. Börn þeirra eru: 1)
Sigrún, f. 1.5. 1951, maki Jóhann
Páll Stefánsson, f. 18.1. 1941. Þau
eiga þrjú börn og eitt barnabarn.
2) Aðalbjörg, f. 12.4. 1952, maki
Pálmi Sigurðsson, f. 6.8. 1945.
Eiga þau einn son. 3) Eyrún, f.
27.6. 1953, maki Þorkell Kolbeins,
f. 8.1. 1961. Þau eiga þrjú börn. 4)
Ragna, f. 16.7. 1954, maki Bjarni
Bergþórsson, f. 3.9. 1951. Þau
eiga tvö börn. 5) Guðný, f. 18.6.
1956. 6) Sigurjón, f.
14.5. 1958, maki Ey-
rún Axelsdóttir, f.
3.12. 1962. Þau eiga
tvö börn. 7) Unn-
steinn, f. 7.8. 1959. 8)
Hildur, f. 5.7. 1961,
maki Ólafur Þór
Guðjónsson, f. 17.12.
1963. Þau eiga tvo
syni. 9) Ingibjörg, f.
8.4. 1963, maki
Kristján Garðar
Þórðarson, f. 14.6.
1968. Þau eiga tvær
dætur. 10) Jóna, f.
30.3. 1966. 11) Katr-
ín, f. 12.12. 1967, maki Þorleifur
Olsen, f. 4.11. 1960. Þau eiga þrjú
börn. Steindór bjó í Hvammi öll
sín búskapar ár, tók virkan þátt í
uppbyggingu sveitarinnar, ung-
mennafélagsstarfi og á síðari ár-
um keyrði hann oft ferðamönnum
inn á Lónsöræfi, þar sem miklar
náttúruperlur eru. Steindór
gegndi trúnaðarstörfum fyrir
Búnaðarfélag Bæjarhrepps í ein
28 ár og var formaður félagsins á
árunum 1985 til 1999. Hann sat í
hreppsnefnd Bæjarhrepps þrjú
kjörtímabil, frá 1986–1998 og var
forðagæslumaður í 24 ár. Hann
var fulltrúi og deildarstjóri Lón-
deildar KASK í 16 ár og fulltrúi
Sauðfjárræktarfélags Lónmanna
í mörg ár.
Útför Steindórs var gerð frá
Hafnarkirkju 24. janúar. Jarðsett
var í Stafafellskirkjugarði.
Elsku afi er dáinn. Þetta er svo
erfitt, því við hefðum viljað hafa þig
svo miklu lengur hjá okkur. Það á
örugglega eftir að verða erfitt og
skrýtið að fara upp í Hvamm og þú
ekki þar. Það verður skrýtið að sjá
stólinn þinn í stofunni auðan, þar
sitji enginn afi að ráða krossgátur
eins og þú gerðir svo mikið af. Það
var svo gaman að koma í heimsókn,
þú tókst alltaf svo vel á móti okkur.
Þegar við komum inn og þú varst
inni sagðir þú alltaf „ha, hæ ert þú
komin“ eða þá að þú komst inn og
sagðir „ha, hæ hver er nú komin“,
svo kysstir þú okkur og faðmaðir.
Þú sagðir þetta á svo sérstakan
hátt svo ánægður að sjá okkur.
Þegar ég var yngri vildi ég helst
alltaf vera hjá ykkur, helst allar
helgar og öll sumur og yfir sauð-
burðartímann. Ekki þótti mér leið-
inlegt þegar Kalli bróðir þinn kom
til að láta klippa sig. Þá sat ég
spennt og fylgdist með þér klippa
Kalla, svo klippti Kalli þig. Þið vor-
uð með gamaldags klippur, þetta
fannst mér gaman og þurfti að fá að
prufa allar græjunnar. Þarna hefur
kannski áhuginn á hárgreiðslunám-
inu kviknað.
Við hefðum ekki geta trúað því í
haust að þetta væru síðustu rétt-
irnar sem þú varst í. Það var líka
svo gaman og alveg ómetanlegt að
geta haldið upp á 80. ára afmælið
þitt í nóvember. Sérstakleg vegna
þess að öll börnin og barnabörnin
og barnabarnabarnið þitt komu og
við vorum öll saman og allir gest-
irnir sem komu líka. Daginn eftir
höfðum við svo fjölskyldumynda-
töku og tókum myndir af okkur öll-
um saman.
Þegar við vorum í Hvammi á jóla-
dag, fórum við barnabörnin að
skoða myndaalbúm, þar voru fullt
af ferðamyndum. Þú hafðir svo
gaman af því að ferðast. Það var
ósjaldan sem þú fórst inn í Lóns-
öræfi. Þið amma fóruð í ferðir með
félagi aldraðra, og þið fóruð oft á
Örkina, þar fannst ykkur gaman og
gott að hvíla ykkur.
Elsku afi, okkur þykir svo vænt
um þig, það er svo sárt að þú sért
farinn frá okkur. En við vitum að
þú ert kominn á góðan stað, þar
sem bróðir þinn og foreldrar þínir
taka vel á móti þér. Hvíldu í friði.
Kveðja, þín barnabörn
Jóna Margrét, Helgi Kristinn
og Hanna Guðrún.
STEINDÓR
GUÐMUNDSSON
AFMÆLIS- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á
útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum)
en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Frágangur afmælis-
og minningargreina