Réttur - 01.04.1972, Blaðsíða 38
GESTUR GUÐMUNDSSON:
Athyglisverðir
atburðir
úr íslenzku
skólalífi
Undanfarna mánuði hefur borið nokkuð á
kröfugerð menntaskólanema um húsnæði o.
fl. Hæfir vel Rétti að taka það mál nokkuð
til umræðu, þar sem það gefur nokkra vís-
bendingu um það sem er að gerast í íslenzku
menntakerfi.
Þróun menntamála síðusm áratugi leiðir
glöggt í ljós ýmsa þætti þjóðfélagsgerðarinn-
ar. A meðan skólabyggingar, einkum fyrir
menntaskólastigið, lágu að mestu niðri, reis
hvert mammonsmusterið á fætur öðru í líki
banka og stórhýsa verzlunarauðvaldsins við
Suðurlandsbraut. Fyrir nokkrum árum voru
horfur á því, að þrísetja yrði í Menntaskólan-
um í Reykjavík, og renndu þá margir von-
araugum til auðrar lóðar við skólann og
héldu að þar myndi rísa það viðbótarhús-
næði, sem þurfti. Þar stendur nú veglegt
musteri Mammons. (Þess sakar ekki að geta,
að þetta gerðist meðan Gylfi Þ. Gíslason var
ráðherra viðskipta og menntamála).
Einna hlálegasti þáttur þessa máls er þó
afskipti rektora M.R. Þru fjögur ár sem und-
irritaður dvaldist í þeim skóla, réðu þar ríkj-
um tveir rektorar, báðir flokksbræður áður-
nefnds menntamálaráðherra. Þá var ástand
húsnæðismála slíkt, að ávallt mátti búast við
algjöru öngþveiti, svipuðu því sem nú er að
verða. En aldrei heyrðust óánægjuorð frá
rektorunum. Það er ekki fyrr en flokksbróðir-
inn hefur vikið úr ráðherrastóli, að rektor
M.R. gengur bíspertur í broddi kröfugöngu,
sem heimtar aukið húsnæði.
Islenzkir sósíalistar gera sér auðvitað grein
fyrir, að hér er um annað og meira að ræða
en slappleika einnar ríkisstjórnar. Einhver
kynni að segja, að hér sé á ferð getuleysi
kapítalísks þjóðfélags til að fullnægja félags-
legum þörfum; á meðan ógrynni bíla, sjón-
varpa og annars þess sem hægt er að græða
86