Réttur - 01.04.1972, Page 76
Sendinefndin frá Rúmeniu: Frá vinstri til hægri: Florenta Munteanu, Pungan sendiherra, Gere formaður
nefndarinnar, Prodea, Dascalescu.
geta gegnt meðan þar er erlend herstöð
og erlendar hersveitir. Við teljum því frá-
leitt með öllu að tengja nýjar fram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli við svo-
kallaðar varnir á vegum Atlanzhafs-
bandalagsins, eins og gert er í tilboði
Bandaríkjastjórnar, og leggjum til að því
tilboði verði hafnað.
2. Við erum Jxdrrar skoðunar að tími sé
kominn til þess að Islendingar hætti að
sækjast eftir eða þiggja fjárframlög frá
erlendum ríkjum til framkvæmda hér á
landi. Þjóðartekjur Islendinga á mann eru
þær hæstu í heimi og því eigum við
sjálfir að leggja fram þá fjármuni sem
þarf til nauðsynlegra framkvæmda. Slík
stefna er forsenda þess að við getum í
verki framkvæmt sjálfstæða utanríkis-
stefnu" ".
Þegar þverbrautarmálið var afgreitt í ríkis-
stjórninni með fimm atkvæðum gegn tveim-
ur, lýsti ríkisstjórnin öll því yfir að ákvæði
málefnasáttmála stjórnarflokkanna um að
herinn skyldi hverfa úr landinu stendur ó-
haggað. Greindi Magnús Kjartansson frá
því í viðtali við Þjóðviljann að allir ráðherr-
ar ríkisstjórnarinnar væru staðráðnir í að
framfylgja þessu ákvæði enda þótt tilboði
Bandaríkjastjórnar um lengingu þverbraut-
anna hefði verið tekið.
SENDINEFND FRÁ
ROMENlU
Þann 21. maí kom sendinefnd frá Komm-
únistaflokki Rúmeníu í heimsókn til Alþýðu-
bandalagsins. Dvaldi sendinefndin hér á landi
124