Réttur - 01.04.1972, Blaðsíða 72
ERLEND
VIÐSJÁ
GIANGACOMO
FELTRINELLI
14. marz 1972 fannst lík Feltrinellis, eins
af merkustu mönnum Italíu, 15 kílómetra
utan við Mílanó sundurtætt af sprengju.
Næstum tvímælalaust er hér um að ræða
morð af hálfu hinnar vaxandi fasistahreyf-
ingar á Italíu. Regis Debray álítur CIA
standa bak við morðið.
Giangacomo Feltrinelli var 45 ára er hann
dó. Hann var margmiljónamæringur, 1926
var auður föður hans áætlaður 600 miljónir
dollara, nú er giskað á að eign G. F. hafi
verið allt að 25 miljörðum ísl. króna.
Feltrinelli var marxisti, löngum kommún-
isti og síðast talinn „vinstra" megin við þá.
En hið stórkostlega við afrek þessa manns
er vísindastarf það og bókaútgáfa, sem hann
hefur skipulagt.
Feltrinelli var marxisti, löngum kommún-
indastofnunina „Istituto G. G. Feltrinelli" í
Milano. Þessi stofnun er, við hlið þjóðfélags-
fræðastofnunarinnar í Amsterdam, hin
fremsta í sinni röð í vestrænum löndum. Þar
er að finna meir en eina miljón binda, allt
rita um þjóðfélagsmál, allt frá fullkomnasta
safni brautryðjenda frönsku byltingarinnar
(handrit, flugblöð, veggblöð auk alls annars)
og til nútímans. Þar er allt til, sem Marx og
Engels hafa ritað, og allt, sem um þá hefur
verið skrifað. Og þannig mætti lengi telja.
Safn þetta er til húsa í höll í miðhluta
Milano, er forðum var einkabanki Feltrinell-
Feltrinelli með son sinn
is. Eina skrautið er fáni Parísarkommúnunn-
ar. Safnið hefur Feltrinelli að öllu leyti kost-
að sjálfur. Það er talið ómetanlegt til fjár. Og
ítalska ríkið hefur lýst það „þjóðarstofnun",
sem eigi má selja úr landi.
I sambandi við þetta stendur svo ein stór-
fenglegasta bókaútgáfa Evrópu: Feltrinelli
Editore, Via Andegari 6, Milano. Þar eru ekki
aðeins gefin út vísindarit, sem snerta verk-
lýðshreyfinguna og sögu hennar, — eins og
t.d. ljósprentaðar útgáfur af öllum tímarimm
cg blöðum Alþjóðasambands kommúnista —
heldur var Feltrinelli og útgefandi þorra af
þekktusm rithöfundum heims, svo sem: Peter
Handke, Alberto Moravia, Gúnther Grasz,
James Baldwin, Samuel Beckett, Rolf Hock-
120