Réttur


Réttur - 01.04.1974, Qupperneq 6

Réttur - 01.04.1974, Qupperneq 6
— 1971 11.020 — 10,5 — — 1974 10.345 — 9,1 — Þetta er mjög ískyggileg þróun hjá Al- þýðuflokknum, en hann er nú kominn niður í það kjörfylgi, sem Samtök frjálslyndra og vinstri manna komust upp í árið 1971, þegar þau fyrst buðu fram. I alþingiskosningunum 1956 nutu Alþýðu- flokkurinn og Alþýðubandalagið svipaðs fylgis . Alþýðuflokkurinn fékk þá 15.152 atkvæði og Alþýðubandalagið fékk 15.859 atkvæði. Nú hefur Alþýðuflokurinn tapað 5000 atkvæðum síðan þá en Alþýðubanda- lagið unnið 5000 atkvæði. Kosningaúrslitin nú urðu reiðarslag fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna þrátt fyrir stuðning M.öðruvallahreyfingarinnar. I kosningunum 1971 náðu Samtökin 8,9% kjörfylgi og 5 þingmenn út á 9-395 atkvæði. Þá var Bjarni Guðnason meðferðis og Sam- tökunum ætlað að sameina alla vinstri menn. I kosningunum nú misstu Samtökin helming þessa atkvæðamagns og fengu aðeins 5.245 atkvæði eða 4,6% greiddra atkvæða. Þetta er svipaður ferill og hjá Þjóðvarnarflokknum á árunum 1956 og 1959- Astæðurnar liggja í augum uppi. Þennan flokk stofnuðu þeir utan um sig, þeir Hanni- bal Valdimarsson og Björn Jónsson, sem báð- ir höfðu yfirgefið Alþýðubandalagið í kosn- ingum 1967 með I-lista framboðum sínum. Þessir forustumenn reyndu að hasla flokkn- um völl hægra megin við Alþýðubandalagið og vinstra megin við Alþýðuflokkinn en í því hengiflugi eru fótsyllur fáar, svo sem dæmin sanna. Eins og þessir forustumenn báðir fóru í víking gegn eigin flokki, Al- þýðubandalaginu 1967, fóru þeir báðir í víking gegn Samtökunum 1974 á framboðs- lista Alþýðuflokksins og til baráttu fyrir hann með hrapallegum árangri. Með þessu afli verða vinstri menn ekki sameinaðir á Islandi. Framsóknarflokkurinn má vel una kosn- ingaúrslitunum 1974. Kjörfylgi flokksins er um fjórðungur atkvæðisbærra manna og hef- ur hann mjög svipaða stöðu og hann fékk 1971. Atkvæðaaukning hans vegur þó ekki upp fjölgun kjósenda, svo að hlutfall flokks- ins lækkar lítið eitt svo sem hér segir: Árið 1971 26.645 atkv. 25,3% — 1974 28.381 — 24,9 — Yfirleitt var Framsóknarflokknum spáð tapi en hann hélt 17 þingmönnum sínum (sem að vísu eru 28,3% af þingmönnum öllum) og enginn þeirra virtist vera í teljandi hætm. Möðruvellingar höfðu um langan tíma verið með uppsteit og vinstri framsókn- armenn af yngri kynslóðinni lém ófriðlega. Fyrir þá sem utan Framsóknarflokksins standa voru þessar ýfingar með mönnum þar teikn og sannindamerki um óánægju flokks- manna með hægri tilhneigingar hjá flokks- forusmnni og undanslátt forustunnar fyrir svæsnum hægri öflum innan flokksins. En oddamenn þessarar óánægju innan Fram- sóknarflokksins reiknuðu skakkt, eða vom of bráðlátir, er þeir á seinusm smndu, fyrir kosningar sögðu sig úr lögum við Fram- sókn og skrifuðu upp á víxil Samtakanna, því að fáir framsóknarmenn fylgdu þeim á þá feigðarslóð. Vinstri menn í Framsókn- flokknum, sem ekki sögðu skilið við hann í þessum kosningum, lém hins vegar fram- bjóðendur flokksins vita það skýrt og af- dráttarlaust, að illa fari fyrir Framsóknar- flokknum, ef hann nú að loknum þessum kosningum gengi á mála hjá Sjálfstæðis- flokknum. Elcki verður annað sagt en að Olafi Jó- hannessyni, hafi tekist að koma flokki sín- um heilum að Iandi, þótt kjörfylgið 1971 78
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.