Réttur - 01.04.1974, Blaðsíða 54
enginn annar að fá að reyna að mynda stjórn
en Stefán Jóhann.
★
En nú er Bandaríkjastjórn búin að taka
nýjar ákvarðanir í „stríðinu gegn kommún-
ismanum" og skulu nú hungur-tökin á
Evrópu hagnýtt til fulls.
Þegar de Gasperí, hinn kaþólski forsæt-
isráðherra Italíu, er í heimsókn í Banda-
ríkjunum í janúar 1947 fær hann auðsjá-
anlega fyrirmæli Bandaríkjastjórnar um að
losa sig við kommúnista og sósíaldemókrata
úr ríkisstjórninni. Er heim kemur tilkynnir
de Gasperí afsögn ríkisstjórnarinnar án þess
að kalla hana saman áður eða skýra frá ferð
sinni. Eitt aðalblað kaþólska flokksins skýr-
ir svo frá áætlunum hans: „Aðstoð Banda-
ríkjanna við Italiu byggist á festu innri
mála vorra. Akvörðun herra de Gasperí
byggist á nauðsyn þess að veita tryggingu
fyrir slíkri festu." En verklýðsflokkarnir voru
mjög sterkir á Italíu, svo það tókst ekki að
koma þeim út úr ríkisstjórninni fyr en í
miðjum maí. Næst kom röðin að Frakk-
landi, þar sem kommúnistaflokkurinn var
mjög sterkur og áhrifamikill í ríkisstjórninni.
Amerísku blöðin sögðu í maí 1947 að „Tru-
manskenningin" yrði nú látin ná til Frakk-
lands á óbeinan hátt, þannig að bandaríski
„Alþjóðaendurreisnar- og þróunarbankinn"
lánaði Frakklandi 250 miljónir dollara með
því skilyrði að kommúnistarnir færu úr ríkis-
stjórninni. I fyrstu viku maímánaðar 1947
voru ráðherrar kommúnista settir út úr
frönsku stjórninni og nokkrum dögum síðar,
9. maí, veitti ameríski bankinn Frakklandi
lán að upphæð 62,5 miljónir punda (= 250
miljónir dollara).
„Trumans-kenningin," hvað var það?
Þann 24. febrúar 1947 hafði breska ríkis-
stjórnin ákveðið að gefast upp við að reyna
lengur að berja niður þjóðfrelsisher Grikk-
lands og þvinga upp á grísku þjóðina aftur-
haldsstjórn. Þá lýsti Truman því yfir að
Grikkland og Tyrkland yrði héðan í frá
raunveruleg verndarsvæði Bandaríkjanna.
Hvar í heiminum sem róttæk öfl, er Banda-
ríkin teldu sósíalistísk (kommúnistísk), væru
að brjótast til valda, þar skyldu Bandaríkin
berja þau niður. Bandaríkin ákváðu að gerast
hinn andkommúnistíski lögregluþjónn heims-
ms. '
Og það var meiningin að halda þannig á-
fram að koma kommúnistum úr ríkisstjórn-
um í Evrópu. I febrúar 1948 sprengdu borg-
araflokkarnir ríkisstjórn Tékkóslóvakíu og
ætluðu að koma kommúnistum, sem voru
sterkasti flokkur landsins með 40% kjósenda
að baki í kosningunum 1946, út úr ríkis-
stjórn. En þeim varð ekki kápan úr því klæð-
inu: verkalýður Tékkóslóvakíu var á verði
og verklýðsflokkarnir voru í meirihluta á
þinginu, er á reyndi.
★
En víkjum nú afmr sögunni heim til ís-
lands.
Myllur Kanans mala hægt. Allan janúar
er Stefán Jóhann með „einkaumboðið" til
að mynda stjórn á Islandi og loks 4. febrúar
1947 kemst hún saman. Hvorki Hermann
Jónasson né Olafur Thors eru í henni. Sósíal-
istaflokkurinn er einn í stjórnarandstöðu.
Fjandanum hafði nú verið réttur litli fing-
urinn. Hann bjó sig til að taka alla höndina.
Allar flóðgáttir eru nú opnaðar fyrir áhrif-
um Bandaríkjastjórnar á Islandi. Efnahagslíf
landsins lagt undir ameríska yfirstjórn með
Marshall-„aðstoð" og eítirlitsmaður Amerík-
ana settur yfir ísland.10) Hvert móðursýkis-
kastið „gegn kommúnismanum" rekur annað.
126