Réttur - 01.04.1974, Blaðsíða 12
EINAR OLGEIRSSON
ÞRJÚ
MEGINVERKEFNI
Hugleiðingar um hlutverk sósíalistisks
flokks á íslandi
Alþýðubandalagið kemur sem sterk hreyfing verkalýðs og menntamanna út úr
orrahríð bæjarstjórna- og alþingiskosninganna 1974. Því hefur tekist að sigrast á
klofningstilraunum og innri erfiðleikum áranna 1967—74. Það sameinar í sókn sinni
stéttabaráttu aiþýðu og þjóðfrelsisbaráttu íslendinga. Því hefur nú tekist að ná næst-
um því kosningafylgi, sem Sósíalistaflokkurinn fékk mest (1946—49: 19,5%), með því
að fá í alþingiskosningunum 30. júní 18,3% atkvæða.
Eitt af þeim verkefnum, sem nú bíða Alþýðubandalagsins er að efla það sjálft sem
sósíalistískan flokk: fjölga stórum í flokknum og þroska hann pólitiskt. Hér fara á
eftir nokkrar hugleiðingar um höfuðverkefni sósíalistísks flokks á Islandi.
Það er nauðsynlegt hverjum flokki eigi síður en
hverjum manni að vita hvað hann vill, setja sér
verkefni og vinna kerfisbundið að framkvæmd
þeirra.
Þær hugleiðingar, sem hér eru settar fram, miða
að því að Aþýðubandalagið geri sér sem besta
grein fyrir verkefnum sinum sem sósíalistiskum
flokki, Þær taka eðlilega mið af reynslu sósíal-
istískrar verklýðshreyfingar á Islandi og af ástandi
því, sem á Islandi ríkir, þar með þeim styrkleika-
hlutföllum, sem hér eru milli höfuðstéttanna: at-
vinnurekenda og verkalýðs, — af þeirri lýðræðis-
erfð, sem verkalýðshreyfingin og fleiri framsækn-
ir aðilar hafa skapað í harðri baráttu vð afturhalds-
öflin. Reynt verður út frá þessari reynslu og á-
standinu, er skapast hefur, að draga almennar
ályktanir um þrjú aðalverkefni sósialisks flokks,
einkum hvað stjórnlist snertir. Þessar hugleiðingar
eru hugsaðar út frá íslenskum aðstæðum — og
þótt eitthvað af þeim kynni að eiga við annarsstað-
ar, þá er ætið rétt að fara varlega í að yfirfæra
reynslu einnar þjóðar á aðra. I því efni hefur al-
84