Réttur - 01.04.1974, Blaðsíða 61
Reykjanes: 3.747 atkvæði eða 17,9%.
Kjörinn Gils Guðmundsson. (3-056 atkv. —
17,1% og einn mann).
Vesturland: 1.179 atkvæði eða 16,3% og
einn mann kjörinn, Jónas Arnason. (932
atkv., 14% og einn mann).
Vestfirðir: 578 atkvæði og 11,3% atkv.,
engan mann kjörinn. (277 atkv. og 5,6%).
Þetta er hlutfallslega mesta aukning Al-
þýðubandalagsins í alþingiskosningunum í
einu kjördæmi. Kjartan Olafsson, efsti mað-
ur G-listans á Vestfjörðum, verður 1. vara-
maður landkjörinna þingmanna Alþýðu-
bandalagsins.
Norðurland vestra: 850 atkv. eða 15,6%
og Ragnar Arnalds kjörinn. (897 atkvæði,
17,4% og einn mann).
Norðurland eystra: 1.731 atkv. 14,1% og
einn mann kjörinn, Stefán Jónsson. (1.215
atkv. 10,7% og engan mann kjörinn).
Austurland: 1.594 atkv. eða 25,2% og
einn maður kjörinn, Lúðvík Jósepsson.
(1.435 atkv., 24,9% og einn mann kjörinn).
Suðurland: 1.369 atkvæði, 14,1% og einn
mann kjörinn, Garðar Sigurðsson. (1.392
atkv. og 15,0%, einn mann kjörinn.)
Alþýðubandalagið fékk því alls átta kjör-
dæmakosna þingmenn, en að auki þrjá upp-
bótarmenn: Svövu Jakobsdóttur, Helga F.
Seljan og Geir Gunnarsson, þá sömu og í
kosningunum 1971.
HERINN BURT
21. mars náðist fyrir forustu Alþýðubanda-
lagsins samkomulag í ríkisstjórninni um til-
lögur til Bandaríkjamanna um brottför hers-
ins. Meginatriði þeirra eru Jpessi:
1. Herinn fari í fjórum áföngum. Fyrsti
fjórðungur fyrir árslok 1974, annar
fjórðungur fyrir mitt ár 1975, þriðji
fjórðungur fyrir árslok 1975 og afgang-
urinn fyrir mitt ár 1976.
2. Til að fullnægja skuldbindingum íslands
við NATO leggur íslenska ríkisstjórnin
til að málum verði komið fyrir á þennan
hátt:
• Flugvélar á vegum NATO hafi lendingar-
leyfi á Keflavíkurflugvelli þegar þurfa
þykir að mati íslenskra stjórnarvalda. Þó
skal ekki vera hér föst bækistöð herflug-
véla.
• Vegna lendinganna hafi NATO heimild
til að hafa hér 100—200 manna hóp
flugvirkja og annarra tæknimanna sem
ekki eru hermenn til að sjá um eftirlit
með flugvélunum.
• Við brottför hersins taki Islendingar við
allri löggæslu á flugvellinum.
• íslendingar taki við radarstöðvunum á
Suðurnesjum og í Hornafirði ef þurfa
þykir.
Þetta voru aðalatriði tillagnanna. Jafnhliða
ákvörðun um tillögur þær sem að ofan er
greint frá tók ríkisstjórnin þær ákvarðanir,
sem ekki eru samningsatriði við Bandaríkja-
menn:
• Sjónvarp hersins verði þegar í stað tak-
markað við völlinn einan. Sjónvarpinu
verði alveg lokað á miðju næsta ári.
• Oll stjórnarfarsleg meðferð mála á vell-
inum falli undir stjórnarráð íslands og hin
einstöku ráðuneyti þess með venjulegum
hætti, eins og hvert annað íslenskt land-
svæði.
Og loks um málsmeðferð:
• Sendiherra Bandaríkjanna hefur verið
beðinn að koma tillögum ríkisstjórnarinn-
ar á framfæri við stjórn sína. Síðan mun
utanríkisráðherra ræða við fulltrúa Banda-
ríkjastjórnar. Náist þá ekki samkomulag
verður lögð fyrir það þing er nú situr —
þ. e. á næstu vikum, tillaga ríkisstjórnar-
innar um uppsögn herstöðvasamningsins.
Sv. G.
133