Réttur


Réttur - 01.04.1974, Side 15

Réttur - 01.04.1974, Side 15
sem hún lærir slikt í og æfist á að breyta rétt gagnvart hinum ýmsu aðilum innan sinna vébanda og kenna þeim að taka rétt tillit hvor til annars. Þegar þessi samstaða þarf svo lika að ná til vinn- andi stétta, sem ekki eru beinir launþegar, en v nn- andi menn, sem verkalýðurinn þarf að ná banda- lagi við til þess að sigra, — svo sem vinnandi bænda og annarra vinnandi sjálfseignarmanna, — þá reynir til þrautar á sósíalistiskan flokk verka- lýðsins og verklýðsstéttina alla um hvort hann er hæfur til að fylkja saman hinum vinnandi stéttum. Dæmin um ,,sex-manna-nefndar"-samkomulagið 1943 var gott dæmi um rétta bardagaaðferð i þeim efnum. En höfuðatriðið og aðaltilgangurinn með því að skapa og þroska þessa samheldni, sjálfstæði, þekkingu og sjálfstjórn hjá verkalýðnum, er og hlýtur að vera að sósialistískur flokkur — eða flokkar — verkalýðsins nái eigi aðeins forustu verkalýðsins heldur og forustunni i sjálfu þjóð- félaginu, — að innan hins borgaralega þjóðfélags öðllst sósíalistískur flokkur slikt vald, slika yfirburði á hinum ýmsu sviðum að forræði borgarastéttar- innar sé bókstaflega hnekkt. Ég segi ,,eða flokk- ar", því vissulega er það vel hugsanlegt að fleiri en einn sósíalistískur flokkur vrnni slikt hlutverk, en skilyrði til þess er auðvitað að um aðalatrið n sé samkomulag og samstarf á milli flokkanna, þó þá svo greini á um önnur mál. (Hér verður orðið „flokkur" notað, en hafa skal þetta i huga). Forsendurnar og möguleikarn'r fyrir slíku forræði og forustu verkalýðsins og verklýðsheyfingarinnar, pólitískrar og faglegrar, eru vissulega miklir eins og nú er komið i þjóðfélagi voru fyrir baráttu og sigra á undanförnum áratugum, ef pólitískur þroski og vilji verkalýðshreyfingarinnar vex í sama hlut- falli og vald hennar og auður. Verkalýðshreyfingin er nógu sterk til þess að sigra atvinnurekendastéttina í verkföllum, — verk- lýðssamtökin eru orðin ósigrandi afl, — en hún verður að geta sigrað borgaraflokkana jafn ger- samlega í kosningum til þess að þeir geti ekki beitt brögðum verðbólgu og dýrtíðar til að snúa á hana að verkfallssigri loknum (sbr. 1961-). Verklýðsstéttin verður að ráða sjálf hinum miklu eignum sínum: atvinnuleysistryggingasjóðum, sem nú eru orðnir 2500 miljónir króna, — lifeyris- sjóðum, sem nú eru 4000 milj. kr. og giskað er á að verði i lok þessa áratugs 8000 miljónir króna. Þetta er mesta lausa fjármagnið, sem til er í land- inu.:l) Með því að ráða þvi og stjórna þvi ein, fær verkalýðshreyfingin óhemju vald, — annarsvegar til þess að beita því til hagsbóta fyrir sjálfa sig (hús- næðislán, bygging orlofsheimila, verklýðs- og menn- ingarhúsa o. s. frv.) og hinsvegar til að hafa úr- slitaáhrif á uppbyggingu atvinnulifs undir eigin áhrifum. En þá verður verkalýðurinn um leið að setja sér að ná svo sterkum áhrifum í þjóðfélag- inu að hann geti nokkurnveginn varðveitt gildi þessara miklu sjóða, en hindri að þeim sé kastað i braskara, sem afskrifa þá síðan með verðbólgu- aðferð sinni, svo sem borgaraflokkarnir hafa gert með lán atvinnurekenda á undanförnum þrem ára- tugum og munu gera enn hraðar nú, ef verka- lýðshreyfingin ekki tekur í taumana. Sá verkalýður, sem orðinn er svona vald hvað verkföll og fjársjóði snertir, á ekki að sætta sig við að vera andleg hornreka i þjóðfélaginu, hvað menningaráhrif snertir. Verklýðshreyfingin, fagleg og pólitísk, á að verða voldugasti aðili landsins um blaða- og bókaútgáfu og hverskonar menningar- starfsemi. En t:i þess að geta orðið aflið í menningar- sókn, þarf verklýðshreyfingin að vita hvað hún vill: eiga sér hugsjón, stefna út fyrir litilsigld gróða- sjónarmið braskþjóðfélagsins. Slíka hugsjón — sósíalismann — átti verkalýðurinn í baráttunni fyrir afnámi fátæktarinnar. Hugsjónaþáttur þeirrar frels- isbaráttu dróg til sín fremstu skáld og menningar- frömuði þjóðarnnar. Og þeir juku enn reisn hennar í krafti listar sinnar og snilli. Jóhannes úr Kötlum, mesti maðurinn í þessari róttæku skáldakynslóð, orðaði svo köllun alþjóðar þá: — ,,Að slá skjaldborg um réttlætið maður við mann, það er menningin íslenska þjóðl" Og hann lýsti þvi hverjum hann treysti með þessum orðum: .... Þú rauða lið, sem hófst á hæsta stig hið helga frelsiskall — ég treysti á þig!" Sósialisminn sem hugsjón framtíðarþjóðfélags frelsis og jafnréttis þarf að verða sameign verka- lýðsins. Þeir þættir i þróuninni þangað, sem nú þarf að knýja fram, eru m.a.: 1. Vaxandi samstjórn verkalýðs á atvinnulifinu i skjóli vaxandi pólitiskra valda hans. 87

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.