Réttur


Réttur - 01.04.1974, Side 20

Réttur - 01.04.1974, Side 20
ustuna í baráttu fyrr 12 mílna og 50 mílna fiskveiðilögsögu, — og stóð jafnvel einn um að vara við inngöngu í Efnahagsbandalag Evrópu, þegar borgaraflokkarnir höfðu enn ekki áttað sig á hvað þar var á seyði. Meðan auðvaldsskipulagið stendur og imperíal- isminn enn er sterkur í heiminum, er sjálfstæði — ekki síst smáþjóðar eins og okkar — alltaf í hættu. Það verður því ætið eitt meginverkefni góðs marxistísks flokks á islandi að hafa forustu þjóðarinnar í sjálfstæðisþaráttu hennar gegn er- lendri ásælni og imperíalisma, hver sem hann er á hverjum tíma — og þótt flelri séu en einn eins og nú, þegar við eigum i höggi bæði við breska og bandaríska heimsvaldastefnu í senn og viss borg- araleg öfl eru jafn svikul á báðum vigstöðvum eins og landráðasamningarnir 1951 og 1961 sýna. En reynslan sýnir að einn'g eftir að sósíalisminn hefur sigrað í enn fleiri löndum en nú, þá er nauð- synin á slíkri varðstöðu marxistísks flokks brýn. Þótt alþýðan hafi náð völdum og byrjað að byggja sitt sósíalistíska þjóðfélag, þá geta þeir menn, sem eru handhafar valds hennar verið breyskir menn, þrátt fyrir ýmsa kosti, og haldnir áráttu, sem er erfð frá yfirdrottnunarkerfi stéttaþjóðfélagsins. Það getur því einnig orðið um ásælni í einhverri mynd að ræða frá stjórn sósialistísks þjóðfélags. Það sanna máski sovésku og kinversku kommúnista- flokkarnir best að hugsanlegt sé, er þeir bera hvor öðrum slíkt á brýn — og gæta þá lítt hófs í ásök- unum. — En hitt er rétt að gera sér fyllilega Ijóst að slikar hættur stafa ekki af eðli sósialismans, — eins og ágengni auðvaldsríkja í okkar garð og annara er bein afleiðing af eðli auðvaldsins, — heldur stafa þær af misbeitingu valds í fullri and- stöðu við hugsjón og meginreglur sósialismans, — misbeitingu handhafa rikisvaldsins á því valdi, meðan það enn er t'l. Við verðum ætíð að muna að menn geta breytst — oft til hins verra — við völd, og því verður andlega sjálfstæður, pólitiskt þroskaður verkalýður ætið að vera á verði uns rikisvaldið að lokum er ,,dáið út". Þvi þarf verka- lýðurinn á sjálfstæði sínu, samheldni og frjálsum umræðum að halda til þess að geta valdið því verkefni sínu að hafa forustuna í sjálfstæð sbaráttu þjóðar vorrar. Og þvi má islenskur verkalýður held- ur ekki gleyma, þótt hann hafi augun opin, hvað hugsanlega misnotkun valds af hálfu sósíalista snertir, — að nú eru hin núverandi sósialistisku ríki það afl, sem fsland og alþýða þess fyrst og fremst verður að treysta á í viðureign sinni við imperíalismann ameriska og breska og auðhringi hans — og hafa reynst oss drengilega hvað eftir annað og það eins þótt afturhaldssöm stjórn væri við völd á Islandi eins og 1952, er Bretar settu á sölubann, sem Sovétrikin hjálpuðu okkur til að brjóta. ☆ O ☆ Það verkefni að hafa áhrif á þróun þjóðfélagsins, — lika auðvaldsþjóðfélagsins, — er mikilvægara fyrir Island en flest önnur lönd. Það er hægt að gerbreyta þjóðfélaginu hér með ráðstöfunum hinn- ar þægu og óforsjálu yfirstéttar á Islandi, þótt samsvarandi ráðstafanir hjá erlendum rikisstjórnum t.d. á Norðurlöndum kæmu ým'st ekki til mála eða hefðu engin svipuð áhrif. Þannig hefði vart nokkur rikisstjórn slíkra landa tekið í mál að ræða um að veita Bandaríkjunum herstöðvar til 99 ára, — en frá þvi forðaði Sósialistaflokkurinn Islandi 1945, — og hinsvegar hefði bygging einnar álverksmiðju — eins og nú í Straumsvík, — ekki haft nein úr- slitaáhrif á efnahagshlutföll t.d. i Noregi, en hér á landi breytir hún, vegna smæðar þjóðarinnar, hlutföllum þannig, að þar sem ekkert útlent auð- magn var í íslenskum iðnaði frá 1945—68, þá verður nú allt í einu me'rihluti alls fjármagns í iðnaði á Islandi á erlendum höndum. Þessi dæmi sýna hve mikið er í húfi að íslenskir sósialistar reyni að hafa áhrif á þróun landsins, 11 þess að forða frá aðstæðum, er síðar meir myndu gera framkvæmd sósialismans margfalt erfiðari en ella. Hver úrslitaáhrif það hefur haft að sterkur sósí- alistiskur flokkur hefur hvað eftir annað megnað að móta þróun lands vors og þjóðar til heilla á ör- lagastundum, sést máski best, ef menn reyna að gera sér í hugarlund hvernig út liti á Islandi án þe'rra afreka, er sósíalisminn hér hefur unnið. Island hefði þá máski verið álíka fátækt land og fyrir stríð, með fá úrelt fiskiskip eins og þá, út- lendir flotar hefðu eytt fiskistofnunum eins og þeir voru á góðri leið með, „hnípin þjóð i vanda" hefði máski selt þrjár herstöðvar til 99 ára erlendum herra, er eitthvað léti af hendi rakna fyrir, vinna í þjónustu hermangara væri fríðindi fyrir kjósendur hernámsflokka (eins og 1954 og 1955), en þorri duglegustu verkamanna hefðu flú'ð land og sest að i Svíþjóð eða öðrum hálaunalöndum til að forð- ast ,,viðreisnar"-land gerðardóma og atvinnuskorts. Það eru vissulega hættur því samfara að taka 92

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.