Réttur


Réttur - 01.04.1974, Page 21

Réttur - 01.04.1974, Page 21
1 1 ; « t íí il i i i*| * i* -> *»k' Íslenskur verkalýður einbeitti sér undir forustu Sósialistaflokksins i sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar gegn Keflavíkursamningnum haustið 1946. Þessi mynd er frá mótmælafundi i Barnaskólaportinu í Reykjavik þá. þátt i rikisstjórnum innan hins borgaralega þjóð- félags, til þess að reyna að bæta aðstæður alþýðu og lifskjör öll, — hættur ánetjunar og innlimunar i borgaralegt stjórnkerfi, — en vissulega er hægt af góðum marxist skum flokki að reka frjóa sósíal- istíska starfsemi á þennan hátt, — sem sé með þátttöku i þorgaralegri rikisstjórn, eins og dæmin hér á landi sanna. Hinsvegar er óttinn við slíkt rikur í hinni sósíal stísku hreyfingu, svo rikur að hann er oft hættulegur, verður að einangrunar- stefnu, sem sviftir verkalýðinn margháttuðum möguleikum, sem auðvelda sigur hans. Það er að- eins eitt sem er þessum ótta hættulegra: og það er að ganga borgaraflokki á hönd og reka hans pólitik, aðeins 11 að fá að lafa í ríkisstjórn með honum. Um það er vera Alþýðuflokksins í viðreisn- arstjórninni skýrasta vítið til varnaðar, — en hins- vegar samstarf Sósialistaflokksins við Sjálfstæð'.s- flokkurinn 1944—46 dæmið um hvernig sjálfstæður marxistiskur verklýðsflokkur getur unnið hið árang- ursríkasta starf, jafnvel með belnum andstæðingi. Það er enginn sjálfsagður hlutur að sósialistiskur flokkur hafi eða nái forustu verkalýðsins af því hann kallar sig kommúnistaflokk, sósíalistaflokk eða öðrum marxistiskum nöfnum, — eða skráir siikt forustuhlutverk í stefnuskrá sina. Forustuna fyrir allri alþýðu verður sósialistaflokkur að ávinna sér með ötulu og trúu, forsjálu og fórnfreku starfi, með langvarandi baráttu, sem getur krafist hinna dýrustu fórna, en skapar flokknum traust og ást þeirra vinnandi stétta, sem hann er hluti af, og ávinnur honum þannig að lokum fylgi meirihlutans hjá alþýðunni og svo þjóðinni i heild. Slik forusta hans, — forræðið, eins og ítalski hugsuðurinn og 93

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.