Réttur


Réttur - 01.04.1974, Side 28

Réttur - 01.04.1974, Side 28
Duncker, í janúar 1923, þá var það einmitt um Kommúnistaávarpið. Hann gleymdi því aldrei, er hann sá Duncker koma á fundinn, íklæddan slái og breiðum hatti og hóf að skýra fyrir þeim gildi ávarpsins og nauð- synina á að þeir væru óhræddir við að spyrja sig um allt mögulegt út frá því. — Og það eru ekki bara gamlir kommúnistar, sem kunna að meta þá bók. Prófessorinn í hag- fræði við háskólann í Berlín þá, íhaldsmað- urinn Werner Sombart, kvaðst hafa lesið Kommúnistaávarpið a.m.k. 100 sinnum og alltaf fundið eitthvað nýtt í því. — Það var frjótt andlegt líf í Berlín á þessum árum fyrst og fremst í kommúnistisku hreyf- ingunni. Og það voru ekki bara stúdentar frá Evrópu-löndum. Meðal þeirra, er þá voru í Berlín, var Chou-En-Lai, 25 ára gamall, er stjórnaði hópi kínverskra kommúnista, er lærði þar marxismann af krafti, og í október 1922 kom Tsu-De, síðar aðalleiðtogi rauða hersins í Kína við hlið Mao-Tse-Tungs, þang- að og bættist í hópinn. Hermann Duncker var ekki aðeins einhver besti kennari flokksins í marxistiskum fræð- um heldur var hann og mikill rithöfundur sjálfur og hinn óþreytandi útgefandi að rit- um marxismans og stóð fyrir og sá að miklu leyti um „Marxistische Arbeiterschule", sem var í senn kvöldskóli, er flokkurinn gekkst fyrir, og safn af kennsluheftum í sögu sósí- alistísku verklýðshreyfingarinnar og fleiru, sem kom út í 10.000 eintökum og sagan var t.d. yfir 200 blaðsíður. Og samtímis öllu þessu hafði hann svo sambönd við ótal fé- laga, líka erlenda, ma. við Martin Andersen Nexö, sem hann og heimsótti í Danmörku 1919. Hermann Duncker var félagi, er skyldi til fulls hvers virði þekking á marxismanum er verkalýðnum og hann kunni að veita þá þekkingu flestum öðrum bemr. Hermann Duncker var fæddur 24. maí 1974 í Hamborg. Stúdent 1896, nam heim- speki, sögu og hagfræði við háskólann í Leip- zig 1896—1900, doktor þaðan 1903. Gekk í úósíaldemokrataflokkinn 1893. Vann sem sjálfboðaliði við „Leipziger Volkszeitung", eitt besta blað þýska flokksins, frá 1903 og kynntist þá Rosu Luxemburg og Frans Mehr- ing. Ferðaðist á árunum eftir 1906 mikið um landið sem fyrirlesari og ræðumaður. 1912— 1914 kennari við aðalflokkskólann. Stendur með Rosu Luxemburg og Karl Liebknecht í baráttunni gegn heimsvaidastyrjöldinni 1914 —18 og vinnur með þeim að Spartakusbréf- unum. Er með í undirbúningi byltingarinnar 1918 og hefur forustuna fyrir þeim verka- mönnum, er taka prentsmiðju afturhalds- blaðsins „Lokal-Anzeiger" og hefja þá þar útgáfu „Rote Fahne" („Rauða fánans"). Asamt konu sinni, Káte Duncker (1871— 1953) sem var ein af fremstu baráttukon- um þýsku hreyfingarinnar, er Hermann kos- inn í stjórn Kommúnistaflokks Þýskalands (KPD), þegar hann er stofnaður í árslok 1918 og var allan þann tíma, er flokkurinn gat starfað frjálst einn af hans bestu foringj- um, einkum á sviði fræðslumálanna. Þegar nasistar kveiktu í ríkisþinghúsinu 27. febrúar 1933 var hann tekinn fasmr, um nóttina og setmr í fangelsi. 1936 fór hann úr landi og var víða, fyrst í Danmörku, að lokum í Bandaríkjunum og hélt þar ásamt konu sinni barátmnni áfram, Eftir fall fasismans var Hermann Duncker 1947—49 prófessor í þjóðfélagsfræðum við háskólann í Rostock, síðar við skóla verklýðsfélaganna í Bernau og í stjórn þess skóla. Þar dó hann 22. júní 1960. E.O. 100

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.