Réttur


Réttur - 01.04.1974, Page 38

Réttur - 01.04.1974, Page 38
Roosevelt verður því 1940—1941 að taka mikið tillit til þessarar afstöðu amerísku auð- mannastéttarinnar, þar sem einangrunar- stefnan óð uppi, og láta þetta auðvald sjá hve rækilega hann noti tækifærin til að stór- efla völd og áhrif Bandaríkjanna — og þar með gróðamöguleika hringanna —, en beita samtímis allri kænsku sinni til að hjálpa Bretum — og láta þá borga þá hjálp dýrt — og vinna með því gegn Þýskalandi nas- ismans og færa þannig Bandaríkin nær þátt- töku í stríðinu. Það, sem gerðist 1940/41 er að breska auðvaldið glatar forustunni í heimsvaldapóli- tík til Bandaríkjanna. Churchill vill eðlilega heldur gefast upp fyrir Roosevelt en Hitler. 2. september 1940 afsalar Bretland í hendur Bandaríkjunum til 99 ára öllum herstöðvum sínum í Vesturheimi: í Nýfundnalandi, Ber- muda-eyjum, Bahama-eyjum, Jamaica, Santa Lucia, Trinidad, Antigua og á strönd bresku Guyana. Ennfremur afhenda Bretar þeim hráefni og vísindalegar uppfinningar viðvíkj- andi kjarnorkusprengju o. fl. — I staðinn fá Bretar 50 gamla tundurspilla, en tæma alla gjaldeyrissjóði sína við greiðslur til USA. Auðvitað gat ameríska auðvaldið ekki annað en dáðst að þessu sem harla góðum „business" Nú var röðin komin að Islandi. ☆ o ☆ Sú hætta vofði nú yfir íslenskri þjóð, hvernig sem menn svo vildu líta á sjálft stríðsástandið, að hún yrði, — þegar hún loksins losnaði við leyfar danska valdsins og undan hrammi gamla, hrörlega breska ljóns- ins — framseld með húð og hári í klær ameríska arnarins, í helgreipar hins sam- tvinnaða bandaríska her- og auðvalds, og það til frambúðar, máski svo yfir lyki. Arnas Arnæus segir svo í „Islandsklukk- unni": „Ef varnarlans smáþjóð hefur mitt í ógœfu sinni horið gcefu til að eignast mátu- lega sterkan óvin mun tíminn ganga í lið með henni eins og því dýri sem ég tók dcemi af. Ef hún í neyð sinni játast undir tröllsvernd mun hún verða gleyþt í einum munnbita Nú var svo komið að eitt minnsta og varn- arlausasta smáríki heims stóð andspænis vél- væddasta auðtrölli veraldar, er með hverjum mánuðinum færði sig nær. Sósíalistaflokkurinn var hinsvegar á verði hvað framtíðarhættuna snerti. I blaði hans, Þjóðviljanum, er 20. september 1940 fjög- urra dálka fyrirsögn á forsíðu: „Er verið að innlima Island í hervarna- kerfi Bandaríkjanna og Kanada?" 110

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.