Réttur - 01.04.1974, Qupperneq 55
Kalda stríðið, sem Bandaríkin hófu, er sett
í algleyming. Inngangan í Atlantshafsbanda-
lagið er knúin fram undir fölsku yfirskyni,
til þess að Bandaríkin fái hér herstöðvar
tveim árum síðar. Lygaáróðrinum til að festa
þær hefur ekki linnt síðan.
☆ o ☆
Hætmlegra öllu hernámi lands og efna-
hagslegri yfirdrottnun varð sú kerfisbundna
forheimskvun og afmönnun þjóðar, er fjöl-
miðlar afturhaldsins síðan hafa rekið hátt í
þrjá áratugi. Valdaklíka blóðidrifinna herfor-
ingja og samviskulausra auðhringa Banda-
ríkjanna er fegruð í voldugustu fjölmiðlum
lands sem bjargvættur frelsis og fyrirmynd
lýðræðis. Þegar þessi valdaklíka heimtar,
jafnvel hótar, fremja íslenskir valdamenn
lögbrot og stjórnarskrárbrot til að þóknast
henni og svínbeygja síðan þægt lið sitt á Al-
þingi til að leggja blessun sína yfir drýgðan
ósómann. Fleiri og fleiri fylgjendur aftur-
haldsins forherðast og blindast. Vietnam-
morð og Watergateglæpir hætta að hrína á
þeim. Hver glæpur, sem amerískt auðvald
drýgir verður góðverk í augum þessa fólks.
Ef valdaklíku herforingja og auðmanna hent-
aði að koma á fasisma á morgun, myndi
Morgunblaðið og blindaðir fylgjendur þess
fagna honum sem nasisma Hitlers forðum
og jafnvel kalla hann , ,sigur lýðræðisins"
sem í Chile.
Þannig er stefnt að því og unnið öllum
árum af voldugustu fjölmiðlum að umhverfa
íslenskri þjóð, að gera smátt og smátt hina
stoltu, þrjósku þjóð vora að þægum, auð-
sveipum umskiptingi. Þetta ferli er samsvar-
andi því, sem Halldór Laxnes dró upp mynd
af — þjóðinni til aðvörunar, í „Silfurtungl-
inu," þegar Lóa, söngvari vögguvísunnar,
ímynd fjallkonunnar, umhverfist í „Konuna
með stóra samninginn, konuna, sem liggur
með drottni apanna."
Með öllu þessu er verið að framkvæma þá
langtíma-áætlun bandarísku herstjórnarinnar
að leggja þjóðina hægt og bítandi undir
bandarísk áhrif, til að geta svo síðar meir, er
á reyndi, látið hana afhenda land sitt sem her-
stöðvar fyrir Bandaríkin og — ef til stríðs
kæmi — fórna sjálfri sér sem augnablikshlífi-
skildi fyrir þau. Það þurfti að deyfa hana
hægt og hægt, eyða hjá þorra hennar öllu
þjóðarstolti, tilfinningunni fyrir sjálfstæði,
blinda menn svo að lokum að þeir bæðu
sjálfir herstjórn Bandaríkjanna um að setja
á þjóðina helgrímu herstöðvanna í nafni
sjálfstæðis og frelsis. Lýðræðið og vernd
þess var notað sem yfirvarp til þess að villa
hugi fólksins, eins og iúterskan forðum var
yfirvarpið til þess að klófesta kirkjujarðir
Islands handa konungi Dana.
Herseta Bandaríkjanna á íslandi stóð aldrei
né stendur í neinu sambandi við vörn Islands
eða vöm lýðrœðis, hún var og er einvörðungu
hernaðarleg ráðstöfun bandaríska herráðsins,
út frá hagsmunum og hugmyndum Banda-
ríkjastjórnar um aðstöðu og áhrif hennar í
heiminum, án tillits til þess hvort þar er
lýðrœðisleg stjórn eða einrceði, hvort til er
Nato eða ekki.
I tasp 30 ár hefur stór hluti íslensku þjóð-
arinnar, eins og miljónir annara manna, verið
blekktur og hafður að ginningarfífli með ó-
svífnasta áróðri, er þekkst hefur, orðið að
bráð þeirri blekkingarherferð, er bandarískir
auðhringir hrundu af stað til þess að tryggja
sér ofsagróða hergagnaframleiðslunnar og
drottnun yfir sem mestu af auðlindum heims
og bandarískir herforingjar hertu á eftir
mcetti, til þess að tryggja sér völd og met-
orð. Og með þessari geigvænlegustu og
gróðamestu blekkingu veraldarsögunnar hef-
127