Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fataskápar
Náttborð
Kommóður
Glerskápar
BORÐ OG SKÁPAR
Í ÚRVALI
Skenkar
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
KRAKKAR í 7. bekkjum grunnskóla í Reykjavík etja
kappi í knattspyrnu í Egilshöll nú um helgina, og var
greinilega hart barist á vellinum við upphaf mótsins í
gær. Steinn Halldórsson, formaður Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur, segir að obbinn af grunnskólunum í
Reykjavík sendi lið til keppni, en eins og áður séu fleiri
lið skráð til keppni í drengjaflokki en í stúlknaflokki,
þótt hlutfallið verði æ jafnara.
Steinn segir mikið af ungu hæfileikafólki taka þátt í
mótinu: „Maður sér alveg að sumir skólarnir eru með
félagsbúningana í sínu hverfi,“ segir hann kíminn.
Hartnær tveir áratugir eru liðnir frá því fyrsta
grunnskólamótið var haldið, en Steinn segir að vin-
sældirnar hafi aukist mjög eftir að farið var að halda
mótin í Egilshöll, þar sem öll aðstaða sé til fyrirmyndar.
Um næstu helgi fer svo grunnskólamót 10. bekkinga
fram í Egilshöll, og má þá búast við enn meiri átökum á
knattspyrnuvellinum í höllinni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Átök á grunnskólamóti í Egilshöll
HJÓLREIÐAKLÚBBURINN Hjólamenn hefur
sent Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra bréf
til að biðja hann að beita sér fyrir því að láta hjól-
reiðavegi fylgja með í kaupunum við mögulega
breikkun vegarins milli Selfoss og Reykjavíkur.
Guðni tjáði sig um vegamál í Sunnlenska frétta-
blaðinu í vikunni og sagði þar að fyrir lægi að rík-
isstjórnin hefði tekið þá ákvörðun að ganga sem
fyrst í „að ljúka stórvegagerð til og frá höfuðborg-
arsvæðinu. Þetta þýðir að leiðin úr Reykjavík til
Selfoss verður tvöfölduð á næstu árum og vonandi
á sem allra skemmstum tíma. Þetta mun auðvitað
ný vegaáætlun staðfesta í vetur samkvæmt þess-
ari yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar“, sagði Guðni í
blaðinu.
Mörg hundruð manns á hjólum
Hjólamenn benda á að mikill fjöldi erlendra
hjólreiðamanna heimsækir landið á hverju ári og
starfandi eru tvö hjólreiðafélög sem stunda
keppnishjólreiðar og með aðild að ÍSÍ. Eitt félag
stundar þá þríþraut og einn klúbbur er utan um
ferðalög. „Samtals eru þetta mörg hundruð manns
og hafa hjólalestir undanfarinna ára sýnt fram á
fjölda þeirra sem nota hjólið,“ segir í bréfinu.
Hjólamenn óttast hins vegar þá miklu umferð sem
er á vegum.
Í samtali við Morgunblaðið segir Elvar Örn
Reynisson, formaður Hjólamanna, að leiðin til
Hveragerðis sé hræðileg fyrir hjólreiðafólk vegna
þess að þar eru þrjár akbrautir á vegi sem er
hannaður fyrir tvær akbrautir.
„Í miðjunni er víragirðing sem minnkar mögu-
leika bíla til að gefa hjólamönnum meira pláss,“
bendir Elvar á. „Það er enginn hjólreiðamaður
sem hreinlega þorir að hjóla þarna.“ Á Keflavík-
urveginum sé ekki betra ástand og miklar líkur
séu á því að hjólreiðar verði bannaðar þar í fram-
tíðinni.
„Að mínu mati þarf í upphafi að gera ráð fyrir
hjólandi vegfarendum þegar vegir eru lagðir,“
segir Elvar. Hann bendir ennfremur á að gera
þurfi hjólreiðaveg meðfram Vesturlandsvegi upp í
Hvalfjörð enda sé fjörðurinn mikil perla fyrir hjól-
reiðafólk. „Og það er líka mikill straumur ís-
lenskra sem erlendra hjólreiðamanna upp að Gull-
fossi og Geysi og þaðan yfir Kjöl. En hring-
vegurinn er þannig að það er nánast ekki þorandi
að hjóla á honum.“
Hræðileg leið fyrir hjólafólk
Gera þarf í upphafi ráð fyrir hjólandi vegfarendum þegar vegir eru lagðir,
segir Elvar Örn Reynisson, formaður Hjólreiðaklúbbsins Hjólamanna
Morgunblaðið/Golli
LÖGREGLAN í Reykjavík sektaði
40 áhorfendur landsleiks Íslendinga
og Svía fyrir að leggja ólöglega á
gangstéttum við
Reykjaveg. Á
sama tíma var
mikið af lausum
og löglegum
stæðum fyrir
framan austur-
stúku vallarins.
Í tilkynningu
frá lögreglunni í
Reykjavík segir
að óheimilt sé að leggja á gang-
stéttum og ekki skipti máli þó að
bannið sé ekki gefið til kynna með
umferðarmerki.
Þrátt fyrir að 40 bílum hafi verið
lagt á gangstéttina gekk umferð frá
vellinum almennt vel fyrir sig. Lög-
reglan ítrekar þó beiðni sína til öku-
manna um að virða svokallaðar
neyðarbrautir en þær verða alltaf
að vera greiðfærar fyrir umferð lög-
reglu, sjúkraflutningamanna og
slíkra aðila ef eitthvað ber út af.
Aldrei eigi að nota neyðarbrautir
sem bílastæði.
Fjörutíu
gestir lögðu
ólöglega
Nóg af bílastæðum
en margir fengu sekt
GANGI kaup íslenskra fjárfesta á
enska knattspyrnuliðinu West Ham
eftir verður einn þriðji liðanna í
efstu deild enska boltans kominn í
eigu erlendra auðmanna, en Ful-
ham, Portsmouth, Chelsea, Aston
Villa og Manchester United eru nú
þegar í erlendri eigu. Fjallað er um
þetta ástand í grein í breska
blaðinu Daily Telegraph og segir
þar að bilið milli úrvalsdeildarinnar
og neðri deilda fari sífellt breikk-
andi. Á meðan úrvalsdeildarliðin
fái gríðarlegar upphæðir fjár í
gegnum sölu sjónvarpsréttar, að-
göngumiða og sölu á varningi ýmiss
konar, eigi neðrideildarliðin gjarn-
an í miklum fjárhagslegum erf-
iðleikum. Greinarhöfundur bendir
hins vegar á þann mun á efri- og
neðrideildarliðum að þátttaka
aðdáenda í rekstri knattspyrnu-
félaganna er gjarnan mun meiri í
neðri deildunum, og þar segir hann
hina raunverulegu sál knattspyrn-
unnar búa.
Þriðjungur
liðanna í
erlendri eigu
FJÓRAR líkamsárásir voru til-
kynntar til lögreglunnar í Reykja-
vík í miðborginni aðfaranótt laug-
ardags. Að sögn lögreglu var engin
þeirra alvarlegri en gengur og ger-
ist í miðbænum um helgar, og voru
þeir sem fyrir árásunum urðu flutt-
ir á bráðamóttöku Landspítala –
háskólasjúkrahúss.
Lögreglan var kölluð að húsi í
austurborginni aðfaranótt laug-
ardags vegna hávaða frá sam-
kvæmi. Þar var lagt hald á smáræði
af ætluðum fíkniefnum, og voru
tveir handteknir vegna málsins.
Fremur rólegt var annars í höf-
uðborginni, lítilræði af ætluðum
fíkniefnum fannst á einum öku-
manni sem stöðvaður var grunaður
um ölvun við akstur. Hann reyndist
að auki vera réttindalaus við akst-
urinn, og var hann látinn sofa úr
sér í fangageymslu lögreglu.
Fjórar árásir
í miðborginni
Í FYRRINÓTT kl. 2.42, mældist
skjálfti að stærð 3,5 á Richter um
13 km norðvestur af Gjögurtá.
Nokkur virkni hefur verið þarna
síðustu vikuna og hafa alls mælst
um 100 skjálftar síðan á sunnudag,
þar af um 30 frá því á miðnætti í
fyrrinótt, samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar. Næststærsti
skjálftinn mældist um 2,5 að stærð.
Búast má við áframhaldandi virkni.
Þrjátíu jarðskjálft-
ar á einni viku
Skjálftar Hrina jarðskjálfta hefur
gengið yfir undanfarna daga.
LÖGREGLAN á Akureyri hafði af-
skipti af karlmanni á veitingastað í
bænum um eittleytið aðfaranótt
laugardags. Reyndist hann vera
með átta grömm af ætluðu amfeta-
míni, tvær e-töflur og eitthvað af
hassi í fórum sínum. Í framhaldinu
var gerð húsleit á heimili mannsins,
og fann lögregla loftbyssu og tvo
ólöglega hnífa. Manninum var
sleppt að yfirheyrslum loknum.
Í nótt var einnig brotist inn í
verslunina Síðu í Bugðusíðu. Að
sögn lögreglu höfðu þjófarnir á
brott með sér eitthvað af tóbaki og
peningum. Málið er í rannsókn.
Hald lagt á fíkni-
efni og vopn
SAMI aðili má að hámarki vera
handhafi réttar til beingreiðslna sem
svara til 1% af heildargreiðslumarki
mjólkur, ef frumvarp sem Jón
Bjarnason, þingmaður VG, hefur
lagt fram á Alþingi í annað skipti
nær fram að ganga.
Í greinargerð með frumvarpinu er
það rakið að á árabilinu 1996–2004
hafi mjólkurbúum fækkað úr tæp-
lega 1.300 í 850 eða um 34% á sama
tíma og meðalframleiðsla á bú hafi
aukist um 67%. Þessari þróun hafi
fylgt mikil tilfærsla á greiðslumarki
á sama tíma og það hafi hækkað gíf-
urlega í verði. Það séu stærstu búin
sem hafi stækkað mest. Margvísleg-
ar ástæður séu fyrir þessari þróun,
hagræðing, gæðakröfur o.fl.
„Á hinn bóginn verður ekki fram
hjá því litið að réttur til bein-
greiðslna vegna mjólkurframleiðslu
er takmörkuð auðlind. Mikil eftir-
spurn og hátt verð hafa að undan-
förnu breytt miklu um möguleika
þeirra sem vilja starfa við kúabú-
skap til að hasla sér völl í greininni.
Ekki er einungis að nýliðun sé nær
útilokuð, svo mikið fjármagn þarf til
að bæta verulega við greiðslumark
hvers starfandi bús að sífellt færri
eiga þess kost nema með mikilli
skuldsetningu. Þróunin minnir því
óneitanlega sífellt meir á framvindu
mála í sjávarútvegi eftir að verslun
með aflamark var gefin frjáls.“
Segir einnig að sú sátt sem ríkt
hafi um íslenskan landbúnað hvíli
fyrst og fremst á þeim grunni að
framleiðslan sé í höndum fjölskyldu-
búa en ekki verksmiðjubúa, sem
þekkt séu frá öðrum löndum.
1% hámark á
beingreiðslur
Kúabúum hefur fækkað um 34%