Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 11
inn að baki, m.a. innan Heimdallar, og situr nú í miðstjórn flokksins. Jóhann Páll Símonarson sjómaður stefnir á 6. sæti. Hann hefur um langt árabil verið virkur í kosninga- starfi Sjálfstæðisflokksins. Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrver- andi landsliðsþjálfari í handknattleik og varaborgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins árin 1994–1998, sækist eftir 9. sætinu. Það gerir líka Gra- zyna Maria Okuniewska, hjúkr- unarfræðingur, en hún átti sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarð- arbæ í kosningunum 1992. Prófkjör eða uppstilling Sjálfstæðismenn ætla ekki að hafa prófkjör í Norðvesturkjördæmi, þar sem flokkurinn fékk 3 menn kjörna síðast. Þingmenn þeirra þar ætla að gefa kost á sér áfram, en yngra fólk vill líka fá að komast að. Bergþór Ólason, aðstoðarmaður Sturlu Böðv- arssonar, sem leiddi listann í síðustu kosningum, vill fá sæti, sem og Borg- ar Þór Einarsson, formaður SUS. Þá hefur Birna Lárusdóttir, forseti bæj- arstjórnar Ísafjarðarbæjar, einnig gefið kost á sér. Allt hefur þetta fólk unnið töluvert fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Í Norðausturkjördæmi verður prófkjör hjá sjálfstæðismönnum og stefnir í töluverða baráttu eftir að fyrrum oddviti listans, Halldór Blön- dal, ákvað að sækjast ekki eftir end- urkjöri. Tveir þingmenn voru kjörnir á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæminu 2003. Arnbjörg Sveins- dóttir þingmaður vill fá 1. sætið, en það vilja líka Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Þorvaldur Ingvarsson, lækningaforstjóri FSA. Þorvaldur hefur starfað töluvert fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn og var m.a. í 6. sæti listans við síðustu kosningar. Varaþingmaðurinn Sigríður Ingv- arsdóttir sækir í 2.–3. sæti og það gerir Kristinn Pétursson, fiskverk- andi á Bakkafirði, líka. Hann sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1988– 1991. Á fimmtudag tilkynnti Ólöf Nordal að hún sæktist eftir 2. sætinu. Hún er formaður Sjálfstæðiskvenna- félagsins Auðar á Austurlandi. Ljóst er því að allir sem vilja komast á lista flokksins í kjördæminu eiga sér ein- hverja fortíð innan flokksins. Tíu vilja í fjögur sæti á Suðurlandi Í Suðurkjördæmi, þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn á 3 þingmenn, verð- ur einnig hart barizt um efstu sæti. Þar fer fram Árni M. Mathiesen ráð- herra og vill 1. sætið, Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, stefnir á 1.–2. sætið, Drífa Hjartardóttir stefnir á 2. sæti eins og Kjartan Ólafsson og það gerir líka Kristján Pálsson, fyrrverandi alþingismaður. Guðjón Hjörleifsson vill 2.–3. sæti. Þar fyrir neðan koma svo Gunnar Örlygsson, Kári Sölmundarson, sölu- stjóri HB Granda, og Björk Guðjóns- dóttir sem vilja 3.–4. sæti. Björk er núna forseti bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar. Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur gefur kost á sér í 4. sætið og þær Unnur Brá Kon- ráðsdóttir, sveitarstjóri í Rang- árþingi eystra, og Halldóra Bergljót Jónsdóttir, bæjarfulltrúi á Höfn, sækjast eftir 5. sætinu. Allt á þetta fólk mikið flokksstarf að baki. Birg- itta Jónsdóttir Klasen stefnir á 5.–6. sæti. Hún flutti hingað til lands fyrir sex árum frá Þýskalandi, en var við- loðandi stjórnmálastarf þar í landi allt frá 1978. Breytingar í Kraganum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ætlar að leiða lista sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi, eða Kraganum svokallaða, en þar á flokkurinn nú 6 þingmenn. Árni M. Mathiesen er far- inn í Suðurkjördæmið og Sigríður A. Þórðardóttir ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Bjarni Bene- diktsson stefnir á 2. sætið, en rýmið á listanum vekur áhuga margra. Tveir sveitarstjórnarmenn vilja komast í 3. sætið, þau Ármann Kr. Ólafsson, for- seti bæjarstjórnar Kópavogs, og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjar- stjóri í Mosfellsbæ, og Sigurrós Þor- grímsdóttir, þingmaður og bæjar- fulltrúi í Kópavogi, vill 4. sætið. Ragnheiður E. Árnadóttir, aðstoðar- maður forsætisráðherra, sækist líka eftir því sæti og Bryndís Haralds- dóttir, varaþingmaður og varaborg- arfulltrúi í Mosfellsbæ, vill færast upp í 4.–5. sæti. Þarna er því sama sagan og svo víða, að fólk leitar eftir sæti á lista eftir langt starf fyrir flokkinn heima í héraði. Nýtt blóð í bland við eldra Frambjóðendur Samfylkingar- innar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur verða valdir í einu prófkjöri 11. nóvember. Þeir, sem hljóta bind- andi kosningu, skulu sjálfir velja í hvort kjördæmið þeir vilja fara og á sá atkvæðahæsti fyrsta val. Samfylk- ingin er nú með 8 þingmenn í Reykjavíkurkjördæmunum norður og suður. Fimm þingmannanna hafa lýst yfir framboði sínu; Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í fyrsta sæti, Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir og Helgi Hjörvar í fjórða og Guðrún Ög- mundsdóttir í 4.-5. Ágúst Ólafur Ágústsson vill áfram vera í forystu- sveit flokksins, en hann skipaði síðast 4. sætið í suðurkjördæminu. Ekki er annað talið en að Jóhanna Sigurðar- dóttir, Mörður Árnason og Össur Skarphéðinsson sækist áfram eftir því að vera í forystusveit flokksins í Reykjavík. Nýr á opinberum vettvangi stjórn- málanna er Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, sem sækist eftir 3.–4. sæti listans og annar nýliði er Valgerður Bjarnadóttir, sviðs- stjóri hjá Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi, sem býður sig fram í 3.–5. sæti. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, hefur til- kynnt þátttöku sína í prófkjörinu og sækist eftir 4. sætinu. Kristrún Heimisdóttir varaþingmaður stefnir á 5. sætið og Bryndís Ísfold Hlöð- versdóttir á það sjötta, en hún hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sam- fylkinguna og var á lista flokksins við síðustu borgarstjórnarkosningar. Nítján keppa um sex sæti Mikil gerjun er í Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi þar sem nítján, þar af sjö konur, stefna að sex efstu sætunum í prófkjöri flokksins, sem fer fram 4. nóvember. Tveir oddvitar flokksins í kjördæminu eru ekki í framboði; Rannveig Guðmunds- dóttir, sem nú lætur af þingmennsku, og Guðmundur Árni Stefánsson, sem hætti á þingi í september 2005 og er nú sendiherra í Svíþjóð. Samfylk- ingin er með fjóra þingmenn í þessu kjördæmi. Þrír þingmenn sækjast eftir efstu sætunum og stefnir hver á sitt í bróð- erni; Þórunn Sveinbjarnardóttir vill leiða listann, Katrín Júlíusdóttir sækist eftir öðru sæti og Valdimar Leó Friðriksson stefnir á 3. sætið. En þeir eru fleiri, sem hafa áhuga á þessum sætum, bæði pólitískir reynsluboltar og menn, sem í fyrsta skipti hasla sér pólitískan völl. Gunn- ar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði og formaður fram- kvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, býður sig fram í fyrsta sætið og Árni Páll Árnason, lögmaður og sérfræð- ingur í Evrópurétti, orðar það svo, að hann gefi kost á sér í forystusveitina. Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ, býður sig fram í 2.–3. sæti, en hann var einn stofn- enda Samfylkingarinnar á sínum tíma. Tryggvi Harðarson, sem m.a. sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í 16 ár, sækist eftir þriðja sætinu og það gera líka þrír frambjóðendur með varaþingmannsreynslu; Jakob Frí- mann Magnússon, tónlistarmaður og útgefandi, sem hefur verið varaþing- maður flokksins síðan 1999, Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, sem var varaþingmaður Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi og sat í nefnd- um fyrir Alþýðubandalagið í Kópa- vogi og síðar Samfylkinguna, og Sandra Franks stjórnmálafræðingur sem reyndar gefur kost á sér í 3.–4. sæti listans. Hún stundar nú meist- aranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Kristján Sveinbjörnsson, forseti bæjarstjórnar Álftaness, gef- ur kost á sér í „eitt af efstu sætum“ en áður en hann tók þátt í sveitar- stjórnarmálum á Álftanesi starfaði hann á þeim vettvangi í Kópavogi. Guðmundur Steingrímsson, blaða- maður og tónlistarmaður, er nýr þátttakandi í stjórnmálum, og óskar eftir fjórða sætinu. Þar etur hann kappi við Jens Sigurðsson, formann Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi, og þrjá aðra frambjóðendur; bæði ný- liða og aðra með stjórnmálastarf að baki, sem stefna á 4.–5. sætið; Önnu Sigríði Gunnarsdóttur, varaformann Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ og varabæjarfulltrúa, Gunnar Axel Ax- elsson, séfræðing í launa- og kjara- málum hjá Hagstofu Íslands, og Sonju B. Jónsdóttur, myndlistar- kennara og kvikmyndagerðarmann. Bragi Jens Sigurvinsson býður sig fram til fimmta sætis, en hann er varaformaður Samfylkingarinnar á Álftanesi og hefur starfað að sveitar- stjórnamálum í 20 ár. Guðrún Bjarnadóttir sálfræðingur býður sig fram til 5.–6. sætis, en hún hefur tek- ið þátt í stjórnmálum frá 1974 og set- ið í nefndum og ráðum hjá Hafnar- fjarðarbæ. Bjarni Gaukur Þórmundsson íþróttakennari sækist eftir sjötta sætinu, en hann hefur starfað í nefndum í Kópavogi og sat á framboðslista Samfylkingarinnar í síðustu sveitarstjórnakosningum. Sautján keppa um fimm sæti Í Suðurkjördæmi gefa 17, þar af fimm konur, kost á sér í fimm efstu sætin á lista Samfylkingarinnar, en prófkjörið verður haldið 4. nóv- ember. Öfugt við þingmenn suðvest- urkjördæmisins bjóða þingmenn suðurkjördæmis sig ekki fram í bróð- erni, heldur stefna allir á fyrsta sæt- ið, sem Margrét Frímannsdóttir stendur nú upp úr. Einn nýliði gefur líka kost á sér til að leiða listann, en Samfylkingin er með fjóra þingmenn í þessu kjördæmi. Þingmennirnir þrír eru; Björgvin G. Sigurðsson, Jón Gunnarsson og Lúðvík Bergvinsson og nýliðinn á vettvangi stjórnmálanna er Róbert Marshall, sem kemur úr blaða- mennsku og stjórnunarstörfum henni tengdum. Róbert gefur kost á sér í 1.–2. sæti og annar nýliði í opin- beru stjórnmálastarfi, Hlynur Sig- marsson, starfsmaður Fiskistofu í Vestmannaeyjum, býður sig fram í 2. sætið. Aðrir frambjóðendur eru allir með reynslu úr stjórnmálastarfi, mismikla, en yngsti frambjóðandinn stendur á tvítugu. Þrír frambjóðendur með reynslu af sveitarstjórnarmálum og setu á Alþingi stefna á 2.–3. sætið; Ragn- heiður Hergeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi í Ár- borg, Sigríður Jóhannesdóttir, kennari og fyrrverandi alþingis- maður, og Önundur Björnsson sókn- arprestur, varaþingmaður flokksins í kjördæminu. Júlíus H. Einarsson kerfisfræðingur Sandgerði sækist eftir 2.–4. sæti en hann hefur tekið þátt í kosningastarfi og nefnda- störfum fyrir Samfylkinguna. Í Morgunblaðið/Eggert MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 11 Þeir sem vilja hasla sér völl á sviði stjórnmálannaþurfa að leggja út í mikinn kostnað. Kostnaður viðprófkjör er gjarnan á bilinu 4–6 milljónir króna.Dæmi eru um að frambjóðanda nægi 3–4 millj- ónir, en það á helzt við ef hann er einn um að sækja í ákveðið sæti. Oddvitar, sem berjast um efstu sæti lista, þurfa gjarn- an að leggja í um 10 milljón króna kostnað. Þeir sem til þekkja segja að herkostnaður manna geti jafnvel farið upp í um 20 milljónir króna. Sá sem ákveður að taka þátt í prófkjöri þarf að safna um sig her sjálfboðaliða, sem m.a. sjá um að afla fjár til kosn- ingabaráttunnar og hvetja fólk til að kjósa frambjóðandann. Kosningastjóri er oftast ráðinn og hann þiggur laun fyrir. Oftast greiða frambjóðendur húsaleigu fyrir kosninga- skrifstofu sína, þótt dæmi séu um að þeir fái húsnæðið lánað endurgjaldslaust. Sjálfboðaliðar á kosningaskrifstofu þurfa að fá einhverjar veitingar, sem og gestir sem rata þangað inn. Þá halda fram- bjóðendur gjarnan boð, þar sem gert er vel við gesti í mat og drykk og jafnvel fengnir launaðir skemmtikraftar. Stjórn- málamaður, sem hefur gengið í gegnum slíkan slag, sagði að sér hefði komið mest á óvart hversu stór liður matarkostn- aður hefði verið í útgjöldunum. Hins vegar hefði símakostn- aður alls ekki verið eins mikill og hann hefði óttast, enda veittu símafyrirtækin frambjóðendum ríflegan afslátt. Auglýsingakostnaður er langstærsti útgjaldaliður í kosn- ingabaráttu. Margir frambjóðendur prenta bæklinga, sem bornir eru í hús. Borgarfulltrúi sagði slíka bæklinga mis- dýra, en dreifing bæklings í öll hús í Reykjavík kostaði um eina milljón króna. Frambjóðendur bera sumir allverulegan kostnað af kosn- ingabaráttunni, þótt þeir og stuðningsmenn þeirra leiti bæði til einstaklinga og fyrirtækja. Stuðningurinn er oft í öðru formi en beinum peningaframlögum, t.d. með láni á húsnæði eins og áður var nefnt. Bílaumboð hafa lánað frambjóð- endum bifreiðar þeim að kostnaðarlausu og verzlanir gefið veitingar. „Laun þingmanna eru ágæt, en samt getur það tekið fólk tvö ár að borga upp kosningaskuldirnar,“ sagði stjórn- málamaður. „Mér finnst konur setja þennan kostnað meira fyrir sig en karlar.“ Þessi stjórnmálamaður segir stuðningsmenn sína fyrst og fremst hafa leitað til einstaklinga eftir fjárframlögum, enda var kosningabarátta hans ekki í dýrari kantinum. Hann tek- ur undir að það geti orkað tvímælis þegar stjórnmálamenn þiggi háa styrki frá fyrirtækjum. Slíkum styrkjum hljóti að fylgja ákveðin skuldbinding, meðvitað eða ómeðvitað. Undir þetta tekur kona, sem velti því fyrir sér um tíma að taka þátt í prófkjöri fyrir komandi kosningar. „Ég vissi að ég þyrfti að kosta a.m.k. 5 milljónum til. Þá peninga var ég ekki tilbúin til að leggja fram sjálf og það þýðir að ég hefði orðið að leita til fyrirtækja. Mér hefði ekki þótt gott að byrja þingsetu með skuldbindingar við styrktaraðila á bakinu. Þar við bætist að á þingi fengi ég töluvert lægri laun en ég hef núna. Mér finnst það ansi mikill fórnarkostnaður, þótt ég hafi áhuga á stjórnmálum.“ Auglýsingabann Samfylkingin hefur sett reglur sem takmarka auglýs- ingar í prófkjörsbaráttunni og eru auglýsingar sums staðar bannaðar með öllu. Algjört auglýsingabann er í Suðvestur- og Norðvestur- kjördæmunum, bann er við auglýsingum í ljósvakamiðlum í Suðurkjördæmi og Norðausturkjördæmi og í Reykjavík er lagt bann við sjónvarpsauglýsingum vegna prófkjörsins þar. Hér í blaðinu var haft eftir Skúla Helgasyni, framkvæmda- stjóra flokksins, að það væri óæskilegt að einstakir fram- bjóðendur þyrftu að fara út á markaðinn og safna sér háum upphæðum til að geta tekið þátt í prófkjörum. Það setti þá í mjög viðkvæma og erfiða stöðu gagnvart einstökum fyrir- tækjum. Á móti má benda á að bann við auglýsingum hlýtur að vera til þess fallið að gera nýliðum í baráttunni erfiðara fyrir en þeim sem þekktari eru. Borga milljónir með atvinnuumsókninni Í HNOTSKURN »Mánaðarlaun þingmanna; Þingfararkaupið, er485.570 krónur. »Þingmenn frá greiddan ferðakostnað; þing-menn Reykjavíkur fá 41.500 krónur og þing- menn annarra kjördæma 53.760 krónur. »Þingmenn kjördæma utan Reykjavíkur fágreiddan húsnæðiskostnað; 80.300 krónur og 32.120 krónur til viðbótar, ef þeir halda tvö heimili. »Þingmenn fá greiddar 58.840 krónur í starfs-kostnað. »Nefndaformenn, varaforsetar og þingflokks-formenn fá 15% álag á þingfararkaupið; 72.835 krónur. »Forseti Alþingis fær ráðherralaun, sem nú eru871.441 króna. Mánaðarlaun forsætisráðherra eru 966.182 krónur. 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.