Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HELSTI gallinn á velferð-
arkerfum ríkis og sveitarfélaga er
oft hve ósveigjanleg þau eru. Þessi
stirðleiki stafar meðal annars af
því að eitt verður yfir alla að
ganga þegar deilt er
úr sameiginlegum
sjóðum landsmanna. Í
opinberum kerfum er
oft lítið hægt að taka
tillit mismunandi
þarfa og aðstæðna
ólíkra einstaklinga.
Það er hins vegar við-
varandi verkefni
stjórnmálamanna að
laga slík kerfi að
breyttum aðstæðum í
þjóðfélaginu almennt.
Á undanförnum árum
hafa sífellt fleiri gert
athugasemdir við tekjutengingu
lífeyris.
Skattskyldar tekjur aðrar en
greiðslur frá Tryggingastofnun,
húsaleigubætur og fjárhagsleg að-
stoð sveitarfélaga geta skert lífeyri
ef einstaklingur fer yfir viss tekju-
mörk. Grunnlífeyrir byrjar að
skerðast ef atvinnutekjur ein-
staklings fara yfir ákveðin mörk
og fellur alveg niður þegar
ákveðnum tekjum er náð.
Það hefur því oft á tíðum verið
lítið upp úr því að hafa fyrir menn
sem bæta við sig vinnu þegar þeir
tapa öllum grunnlífeyrinum af
þeim sökum og þurfa því til við-
bótar að greiða tekjuskatt af laun-
unum. Lækkun tekjuskatts ríkisins
á undanförnum árum hefur þó gert
þann þátt skárri en
áður þrátt fyrir að út-
svarshækkanir R-
listans hafi unnið þar
á móti Reykvíkingum.
Þessu hafa margir
eldri borgarar staði
frammi fyrir. Þeir
vilja taka þátt í at-
vinnulífinu, ýmist
hluta úr degi, með því
að taka nokkrar helg-
ar- og kvöldvaktir eða
einfaldlega með fullu
starfi við sitt hæfi.
Svo mikið er víst að
atvinnulífið óskar eftir þessum
reynslumiklu og áreiðanlegu
starfskröftum.
Hinn 19. júlí í sumar skilaði
nefnd á vegum forsætisráðherra
tillögum til úrbóta í þessum efnum.
Í nefndinni sátu fulltrúar eldri
borgara auk fulltrúa ríkistjórn-
arinnar. Það er ánægjulegt að í
þessum tillögum, sem ríkisstjórnin
hefur samþykkt fyrir sitt leyti, er
reynt að einfalda og skýra kerfið
með fækkun bótaflokka. Þá er
dregið verulega úr skerðingu bóta
vegna tekna og kerfið gert sveigj-
anlegra en áður með þeim hætti að
fresti menn töku lífeyris, til dæmis
vegna atvinnu, fram yfir 67 ára
aldur þá hækka lífeyrisgreiðslur
þegar taka lífeyris hefst um allt að
30%. Dæmi um minni tekjuteng-
ingu er lækkun skerðingar vegna
tekna úr 45% í 38,35% við útreikn-
ing á tekjutryggingu.
Í tillögunum er jafnframt lagt til
að heimaþjónusta verði stóraukin.
Afnám eignarskatta á síðasta ári
var mikilvægt skref í þá átt að
auðvelda eldra fólki að reka eigið
húsnæði. Eignarskattar komu sér
afar illa fyrir tekjulága ein-
staklinga í eigin húsnæði, ekki síst
þá sem lokið hafa starfsævi sinni
og eiga enga möguleika á að afla
viðbótartekna. Aukin áhersla á
heimaþjónustu mun einnig stuðla
að því að eldri borgarar geti sem
allra lengst notið lífsins á sínum
eigin heimilum.
Það er til marks um að stjórn-
málamenn standi vaktina þegar
velferðarkerfið tekur breytingum
með þessum hætti og eldri borg-
unum er bæði auðveldað að stunda
áfram atvinnu að vild og létt undir
með því að þeir haldi eigin heimili.
Það ber að halda áfram á þess-
ari braut.
Eldri borgarar, atvinnuþátt-
taka og heimilishald
Sigríður Andersen skrifar um
kjör eldri borgara »Margir eldri borg-arar vilja taka þátt í
atvinnulífinu, ýmist
hluta úr degi, með því að
taka nokkrar helgar- og
kvöldvaktir eða einfald-
lega með fullu starfi við
sitt hæfi.
Sigríður Andersen
Höfundur er lögfræðingur og býður
sig fram í 5.-7. sæti í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Reykjavík.
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS Í DAG, BÓKIÐ SKOÐUN
ÁLFHEIMAR 28, 104 RVK. 2. HÆÐ. LAUS STRAX.
VERÐ 21,9 MILLJ.
119 fm, 2-3 svefnherb., rúmgóð stofa m. stórum suðursvölum.
Rúmgott eldhús. Húsið var nýlega tekið í gegn að utan. Sameign til
fyrirmyndar. Stutt í skóla og aðra þjónustu. Frábært
útivistarsvæði í göngufæri. Barnvænn staður.
Laus við kaupsamning.
Gunnar Valdimarsson, s. 895-7838.
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - LAUGATEIGUR
FALLEG HÆÐ ÁSAMT BÍLSKÚR
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Laugateigur 20, 105 Reykjavík. Opið hús í dag frá kl. 16-17. Glæsileg og þó
nokkuð endurnýjuð hæð ásamt bílskúr á eftirsóttum stað. Hæðin er alls 141
fm ásamt 28,9 fm bílskúr. Samtals er eignin því 170 fm. Íbúðin er mjög opin
og björt. Þrjár samliggjandi stofur, parket á gólfum. Eldhús er rúmgott með
nýjum tækjum og innréttingu. Hannað af innanhúsarkitekt. Baðherbergi er
flísalagt hólf í gólf með fallegum tækum. Rúmgott svefnherbergi. UM ER AÐ
RÆÐA FALLEGA EIGN Á AFAR EFTIRSÓTTUM STAÐ VIÐ LAUGATEIG Í
REYKJAVÍK. Verð 39,7 milljónir.
Úlfar tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 16-17.
Haukanes - Sjávarlóð
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Vel staðsett 402 fm einbýlishús á 1500 fm sjávarlóð. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist þannig:
Á efri hæð er forstofa, hol, gestasnyrting, þrjú herbergi, þrjár stofur, eldhús, búr, snyrting og
baðherbergi. Tvöfaldur bílskúr. Á jarðhæð er hol, gestasnyrting, 4-5 svefnherbergi, bátaskýli og stór
útgrafin rými sem nýtast sem hobbýherbergi, þvottahús, baðherbergi og geymslur. Húsið er í
upprunalegu ástandi. V. 79,0 m. 6179
Skógarhlíð - Þóroddsstaðir í Reykjavík
Eignin nr. 22 við Skógarhlíð (Þór-
oddsstaðir) í Reykjavík. Hér er um
að ræða þrílyft steinhús sem er
skráð fm hjá Fasteignamati ríkis-
ins en er um 400 fm að stærð skv.
upplýsingum eigenda. Húsið var
upphaflega gamalt býli, stein-
steypt 1927. Húsið hefur verið
mikið endurnýjað og virðist vera í
góðu ásigkomulagi. Lóðin er
1.397 fm að stærð og eru á henni mörg bílastæði. Húsnæðinu hefur verið breytt í
skrifstofuhúsnæði, m.a. hefur lýsing verið stórbætt, lagnastokkar settir meðfram
veggjum, raflagnir hafa verið endurnýjaðar o.fl. Nýtt öryggis- og brunavarnakerfi er í
húsinu. Fjöldi skrifstofa er u.þ.b. 12 auk 3ja stórra vinnurýma. Frábær eign sem höf-
uðstöðvar fyrir t.d. arkitekta, lögfræðistofur, endurskoðendur o.fl. 6116
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Húsnæðið er steinsteypt og er í
dag 746 fm að gólffleti. Fasteignin
er stúkuð niður í þrjú misstór rými
með léttum veggjum sem má færa
eða fjarlægja. Lofthæð er 3,70 m.
Rafknúnar innkeyrsludyr eru 3,70
m á breidd og 3,13 m á hæð. Gólf
eru máluð og með niðurföllum.
Lýsing er góð og upphitun er með hitablásurum. Ágætis breið aðkoma er
að rýminu niður upphitaðan ramp. Til staðar er nýtt hillukerfi sem væri
hægt að selja sérstaklega ef áhugi er fyrir því. V. 86,0 m. 6201
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Rúmgott lagerhúsnæði
í kjallara við Faxafen í Reykjavík
Fréttir
í tölvupósti