Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 13
Samstaða til sigurs!
Ásdís Halla Bragadóttir
forstjóri
„Ég hef þekkt Björn og starfað með
honum um árabil. Ég treysti engum
betur til að bæta öryggi borgaranna,
hvort heldur sem er í löggæslumálum
eða björgunarmálum“
Hanna Birna Kristjánsdóttir
forseti borgarstjórnar
„Skýr pólitísk stefna, yfirburða þekking
og víðtæk reynsla gera Björn að einum
öflugasta stjórnmálamanni sem ég hef
kynnst. Forysta hans í mörgum stórum
málaflokkum, eins og utanríkis-, mennta-
og dómsmálum, hefur skipt afar miklu
á undanförnum árum og þess vegna
treysti ég Birni svo vel til að takast
á við brýn verkefni næstu ára.“
Sr. Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprestur og fyrrv. þingmaður
„Ég hef kynnst Birni Bjarnasyni
sem afar traustum og ábyggilegum
stjórnmálamanni. Hann hefur góða
yfirsýn, er skipulagður og vinnur hvert
verk af samviskusemi og heilindum.
Sem ráðherra vinnur Björn frábær
verk. Ég vil sjá hann í forystusveit
Sjálfstæðisflokksins áfram.“
Guðmundur H. Garðarsson
fyrrv. alþingismaður
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
laganemi
Jónmundur Guðmarsson
bæjarfulltrúi
„Það er merki mikils styrks þegar
stjórnmálamenn láta ekki stjórnast af
síbreytilegum vindum þjóðmálaumræðu,
heldur fylgja hugsjónum eftir af stað-
festu. Björn hefur haldið merkjum
sjálfstæðisstefnunnar örugglega á lofti
með skýrum markmiðum og einstakri
vinnusemi. Ég set Björn því í 2. sætið.“
„Í stöðugt vályndari heimi eykst þörf
Íslands fyrir öfluga og stöðuglynda
stjórnmálamenn. Styrkur Sjálfstæðis-
flokksins og mikið framlag til varnar
og sóknar íslenskri þjóð hefur
byggst á vali flokksmanna á helstu
forystumönnum hans á hverjum tíma.
Björn Bjarnason er einn þeirra.“
„Björn er einstaklega kröftugur og traustur
stjórnmálamaður. Hann er úrræðagóður
og hefur um skýra sýn á mótun
samfélagsins á grundvelli sjálfstæðis-
stefnunnar. Ég tel einkar mikilvægt fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að Björn verði áfram
einn af helstu forystumönnum flokksins
á þeim miklu umbreytingartímum sem
nú einkenna íslenskt samfélag.“
Halldór Blöndal
fyrrv. forseti Alþingis
„Björn er dugnaðarforkur, öruggur
og framsýnn stjórnmálamaður.
Hann hefur áunnið sér virðingu fyrir
störf sín og fyrir að svara erindum
jafnharðan.“
Ragnhildur Helgadóttir
fyrrv. ráðherra og þingmaður
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
„Mikil þekking og glöggur skilningur
á utanríkis- og öryggismálum þjóðar-
innar skipar Birni í fremstu röð.
Þess vegna styð ég hann í 2. sæti
í prófkjörinu.“
„Björn framkvæmdi og tók ákvarðanir
í menntamálum sem losuðu um
ramma og hleyptu frumkvöðlum inn
í skólaumhverfið. Góð áhrif verka
hans í menntamálum eru enn
að koma fram. Framsýni Björns
og atorka verða seint metin til fulls.“
Kosningamiðstöð Björns Bjarnasonar / Skúlagötu 51 / 551-6300 / www.bjorn.is
Opið alla virka daga frá kl. 16:00 til 20:00 og frá kl. 13:00 til 17:00 um helgar.
Birgitta Haukdal
söngkona
„Björn er kraftmikill og vinnusamur
stjórnmálamaður, sem stutt hefur
ötullega við menningu og listir.
Þess vegna styð ég Björn.“
Pétur Gautur Svavarsson
myndlistarmaður
„Björn Bjarnason er einn kröftugasti
stjórnmálamaður sem ég hef kynnst.
Hann er heill í öllu sem hann tekur
sér fyrir hendur og fylgir góðum
málum eftir af festu.“
Ólafur Stefánsson
handknattleiksmaður
„Björn er framsýnn og ábyrgur
stjórnmálamaður. Hann er mikil-
vægur forystumaður í þingflokki
sjálfstæðismanna.“
Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi
„Ég hef þekkt Björn Bjarnason frá
því ég byrjaði í pólitík. Hann er góð
fyrirmynd allra þeirra sem vilja
leggja á þá braut, hvikar ekki
frá sannfæringu sinni, er víðsýnn
og ákaflega duglegur.“
Sr. Þórir Stephensen
fyrrv. dómkirkjuprestur
„Í 35 ár hef ég notið þess að eiga
Björn sem tryggan kirkjugest, góðan
vin og sterkan boðbera þeirra gilda,
er ég met mest í kristinni lífsskoðun.
Hann er harðduglegur við að gera
hugsjónir að veruleika. Þess vegna
kýs ég hann.“
Ingvi Hrafn Óskarsson
lögfræðingur og fyrrv. formaður SUS
„Björn Bjarnason er einstakur forystu-
maður í stjórnmálum. Hann býr yfir
þeirri áræðni, skipulagshæfileikum,
þekkingu og sýn sem duga til að sigla
góðum málum í höfn.“
Prófkjör sjálfstæðismanna fer fram dagana 27. og 28. október 2006.
Við styðjum
Björn Bjarnason
í 2. sæti