Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 82
82 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
The Devil Wears Prada kl. 8 og 10
Texas Chainsaw Massacre kl. 6 og 10 B.i. 18 ára
Draugahúsið m. ísl. tali kl. 2 (450 kr.), 4 og 6 B.i. 7 ára
Talladega Nights kl. 4 og 8
Grettir2 kl. 2 (450 kr.)
The Devil Wears Prada kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
The Devil Wears Prada LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
Monster House m.ensku.tali kl. 12, 2, 4, 6 og 8 B.i. 7 ára
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 12, 2, 4 og 6 B.i. 7 ára
Talladega Nights kl. 3, 5.30, 8 og 10.25
John Tucker Must Die kl. 12, 8 og 10
Þetta er ekkert mál kl. 10
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 12 og 1.30
Meryl
STREEP
Anne
HATHAWAY
„Stórskemmtileg hryllingsmynd fyrir
alla fjölskylduna sem kemur ekki í
veg fyrir svefn hjá smáfólkinu!“
FG, FBL
Æðislega spennandi
ævintýramynd fyrir alla
fjölskylduna með ensku
og íslensku tali
HÚSIÐ ER
Á LÍFI OG
ÞAU ÞURFA
AÐ BJARGA
HVERFINU
STÆR
STA G
AMAN
MYND
ÁRSIN
S Í US
A
eee
MMJ Kvikmyndir.com
eee
Topp5.is
HEILALAUS!
BREMSULAUS
DRAUMASTARFIÐ
MEÐ YFIRMANNI
DAUÐANS!
eeeee
„Eitt orð: Frábær“
-Heat
Frábær
gamanmynd
með Meryl
Streep
og Anna
Hathaway.
Ung og
óreynd stelpa
kemur til New
York og fær fyrir
tilviljun vinnu
sem aðstoðarkona
hjá ritstjóra stórs
tískublað.
eeee
Empire
staðurstund
Síminn 100 ára, nýjar lifandi sýn-
ingar. Innreið nútímans og upphaf
símasambands við útlönd. Símritari
sýnir gamla ritsímabúnaðinn í
fyrstu ritsímastöð landsins. Vjela-
smiðja Jóhanns Hanssonar – Málm-
steyperíið, Kapalhúsið og húsin á
Wathnestorfunni. Opið virka daga
kl. 13–16. www.tekmus.is.
Tækniminjasafn Austurlands var stofnað 1984 og fjallar aðallega um
þann tíma er nútíminn var að hefja innreið sína á landinu um 1880–1950.
Safnið sýnir hvernig tæknibreytingar á fjölmörgum sviðum, t.d. á sviði vél-
tækni, rafmagns, fjarskipta, samgangna og byggingalistar, eru samofnar
breytingum á lifnaðarháttum og umhverfi. Sýningar eru lifandi og leitast
er við að endurvekja andrúm tímans sem fjallað er um. Safnasvæðið er
jafnframt útivistarsvæði tilvalið fyrir gönguferðir og samveru.
Söfn
Tækniminjasafnið á Seyðisfirði –
Síminn 100 ára
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Stafkirkjan á Heimaey | Það má reikna
með hressandi tónleikum í stafkirkjunni á
sunnudag þar sem norska tríóið POING
heldur tónleika kl. 16 ásamt íslensku há-
tæknihljómsveitinni Sæborg og tveimur
norsk-afrískum tónlistarmönnum, Becaye
Aw gítarleikara og Kouame Sereba sem
leikur á ýmis afrísk hljóðfæri.
Myndlist
Anima gallerí | Hjörtur Hjartarson. Á
sýningunni eru málverk unnin á þessu og
síðasta ári, þar sem myndlistarmaðurinn
vinnur með náttúruform, liti og ljós. Opið
þri.–lau. kl. 13–17. www.animagalleri.is.
Art-Iceland.com | Charlotta Sverrisdóttir
með sýninguna Litasinfóníu í Míru-Art,
Bæjarlind 6, Kópavogi. Íslenski mosinn og
hraunið greypa sig sterkt í undirvitund
Charlottu og leitast hún við að flétta
þessi hughrif inn í sköpunina.
Gallerí 100° | Guðmundur Karl Ásbjörns-
son – málverkasýning í sýningarsal Orku-
veitunnar – 100°. Opin frá kl. 8.30–16 alla
virka daga og laugard. frá kl. 13–17.
Gallerí Fold | Rætur – Sýning Soffíu Sæ-
mundsdóttur. Soffía er með MFA-gráðu
frá Mills College. Hún útskrifaðist úr MHÍ
1991 og frá Kunstschule í Vín 1995. Soffía
hefur haldið margar einkasýningar hér á
landi, í Noregi og Belgíu. Til 22. okt.
Gerðuberg | Sýning á afrískum minjagrip-
um sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mann-
fræðingur hefur safnað saman. Skemmti-
leg blanda af gömlum munum og
nýstárlegum en saman mynda þeir heild
sem gefur góða mynd af minjagripaúrvali
í Afríku.
Sýning á mannlífsmyndum Ara í tilefni
220 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Ljós-
myndirnar sýna mannlíf í Reykjavík sem
fáir veita eftirtekt í daglegu amstri. Lítil
augnablik í lífi fólks á götum og opinber-
um stöðum borgarinnar. Sýning Sig-
urbjörns Kristinssonar stendur yfir. Í lýs-
ingu sýningarstjórans, Sigríðar
Ólafsdóttur, segir: Litir og form, heimur
blárra, gulra og brúnna tóna eða er það
kanill, skeljasandur, sina og haf? Á sýn-
ingunni má sjá abstraktmyndir í anda
gömlu íslensku meistaranna. Opin virka
daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16.
www.gerduberg.is.
Grafíksafn Íslands | Anna Snædís Sig-
marsdóttir sýnir grafíkverk unnin í stá-
lætingu. Opið fimmtudaga–sunnudaga kl.
14–18. Salur íslenskrar grafíkur er á
Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Til 22.
október.
Hafnarborg | Einkasýning á verkum Val-
gerðar Hauksdóttur 7.–30. október. Á efri
hæð sýnir Valgerður ný verk, ljósmyndir
og grafíkverk unnin með blandaðri tækni.
Í Sverrissal er kynning á hugmyndum og
aðferðum er liggja að baki myndsköpun
Valgerðar.
Hallgrímskirkja | Haustsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju á myndverkum
Hafliða Hallgrímssonar í forkirkju Hall-
grímskirkju til 23. október.
Hoffmannsgallerí | „Tölvuprentið tekið
út“. Myndlistarverk í formi tölvuprents
eftir 11 listamenn í Hoffmannsgalleríi í
húsnæði Reyjavíkurakademíunnar, fjórðu
hæð, opið kl. 9–17 alla virka daga.
Hrafnista Hafnarfirði | Þórhallur Árna-
son og Guðbjörg S. Björnsdóttir sýna
myndlist í Menningarsal til 24. október.
Kynningarstofa CIA og SÍM | Bryndís og
Mark fjalla um myndlist sína og nýlega
heimildarmynd kl. 17.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Eirún
Sigurðardóttir – Blóðhola. Blönduð tækni.
Gryfja og arinstofa: Pétur Örn Friðriksson
– Halkíon. Farartæki, fyrirbæramódel,
landhermar. Sýningarnar standa til 5.
nóvember. Opið kl. 13–17. Aðgangur
ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn er alltaf opinn.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið
eftir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin
rekur þróunina í málverkinu frá upphafi
níunda áratugar tuttugustu aldar fram til
dagsins í dag. Á annað hundrað verk eftir
56 listamenn eru á sýningunni. Til 26.
nóv.
Listamannaspjall kl. 14 á sunnudag.
Myndlistarmennirnir Erla Þórarinsdóttir
og Vignir Jóhannsson munu fjalla um
sýninguna og tímabilið út frá persónu-
legri reynslu og sýn á söguna. Ókeypis
aðgangur. Allir velkomnir.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Í dag
er opnuð sýning á verkum margverðlaun-
aðra listamanna af ættum frumbyggja
Kanada. Verkin koma frá nokkrum af
merkustu myndlistarsöfnum Kanada.
Þessi nútímaverk endurspegla húmor,
stolt, fegurð og ríka tilfinningu fyrir
merkum menningararfi sem endurspegl-
ast í einstöku handverki. Kanadísk menn-
ingarhátíð í Kópavogi – þrjár sýningar á
nútímalist frumbyggja í Kanada. Kaffi-
stofa og safnbúð. Til 10. des.
Listasafn Reykjanesbæjar | Verk Stein-
unnar Marteinsdóttur frá 1961–2006.
Keramikverk og málverk. Til 15. okt.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ás-
mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti
listamaðurinn notaði mismunandi efni –
tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Stúka Hitlers liggur sem hrúgald í Hafn-
arhúsinu og bíður þess að fá á sig upp-
runalega mynd.
Innsetningar og gjörningar eftir 11 ís-
lenska listamenn sem fæddir eru eftir
1968. Sýningin markar upphaf nýrrar sýn-
ingarstefnu í Hafnarhúsinu sem miðar að
því að kynna nýjustu stefnur og strauma
í myndlist og gera tilraunir með ný tján-
ingarform. Til 22. okt. Helgi Þórsson og
Björk Guðnadóttir verða með leiðsögn
um sýninguna Pakkhús postulanna kl. 15.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Alla sunnudaga kl. 15 er leiðsögn um sýn-
ingar Kjarvalsstaða.
Sýning á verkum Þórdísar Aðalsteins-
dóttur, ungrar, íslenskrar listakonu sem
búið hefur og starfað í New York. Málverk
Þórdísar eru frásagnarkennd og vekja
spurningar um tilfinningar sem lúta að
samskiptum fólks.
Til sýnis á sunnudag kl. 14 eru valin verk
úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Til-
valin samverustund fyrir börn og full-
orðna til að fræðast og spjalla um leynd-
ardóma myndlistarinnar.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning
á nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðs-
son myndhöggvara. Safnið og kaffistofan
opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. Þar sem var verið að vinna í salnum
var ekki hægt að setja upp allar mynd-
irnar. Nú verður það hægt. Árni sýnir ol-
íumálverk 70 x 100. Opið kl. 9–17 alla
daga nema laugardaga er opið kl. 12–16.
Nýlistasafnið | Gjörningur Anthony
Schrag kl. 15.
Safn | Tilo Baumgärtel og Martin Kobe,
ungir málarar frá Leipzig í Þýskalandi,
sýna ný verk sín. Innsetning svissneska
listamannsins Romans Signer á miðhæð.
Gjörningar í Safni; 13.–28. okt. Safn,
Laugavegi 37. Opið mið.–fös. kl. 14–18 og
lau.–sun. kl. 14–17. Ókeypis aðgangur.
Safn | Egill Sæbjörnsson myndlist-
armaður sýnir innsetningu sína „Ping
Pong Dance“ í Safni 13.–28. okt. Innsetn-
ingin er hluti af Sequences-listahátíðinni:
www.sequences.is. Safn, Laugavegi 37.
Opið mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl.
14–17 www.safn.is Ókeypis aðgangur.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
Williams Thomas Thompsons stendur yfir
í listasal Saltfisksetursins. William er vel
þekktur listamaður í Bandaríkjunum. Sýn-
inguna kallar hann Sýnir og stendur hún
til 6. nóvember. William opnar aðra sýn-
ingu í Baltimore 6. október. Saltfisksetrið
er opið alla daga frá 11–18.
Skaftfell | Adam var ekki lengi í paradís.
Guðný Rósa Ingimarsdóttir og Gautier
Hubert sýna. Bjargey Ólafsdóttir sýnir
vinnuteikningar, „ég missti næstum vit-
ið“, á vesturveggnum. Til 19. okt.
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er
blanda af málverki og pólitísku innleggi í
anda hefðbundins veggjakrots. Sem mál-
verk takmarkast verkið af eðli gallerísins
VeggVerk. Þannig á þetta verk, og þau
sem á eftir munu koma, styttri líftíma en
hefðbundin málverk, því listamennirnir
munu allir nota sama rýmið. Til 25. nóv.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning
á ljósmyndum sem varðveittar eru í
Myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki
hefur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru
myndir af óþekktum stöðum, húsum og
fólki og gestir beðnir að reyna að þekkja
myndefnið og gefa upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13.
Tekið á móti hópum eftir samkomulagi.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú
búinn húsmunum og áhöldum eins og
tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Veit-
ingar í Gamla presthúsinu. Opið eftir
samkomulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586-8066.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin
KVARTS stendur yfir til 15. okt. í sýning-
arsal safnsins við Garðatorg 7, Garðabæ.
Þar sýna tvær finnskar listakonur: Ca-
milla Moberg hönnuður, sem vinnur í gler,
og Karin Widnäs leirlistakona. Opið 14–18,
nema mánudaga. Aðgangur ókeypis.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10.
öld sem fannst við fornleifauppgröft í
Reykjavík 2001. Fróðleik um landnáms-
tímabilið er miðlað með margmiðl-
unartækni. Opið alla daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands, Háskóla-
bókasafn | Sýning til heiðurs Jónasi Jón-
assyni frá Hrafnagili – 150 ára minning.
Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi
og fræðimaður, eins og verk hans Íslensk-
ir þjóðhættir ber vott um. Sýningin