Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 53 UMRÆÐAN FRAMSÆKIÐ atvinnulíf felur tvennt í sér. Góð launakjör og góða afkomu fyrirtækja. Við stöndum frammi fyrir miklum breytingum í efnahagslífi heimsins og erum komin í hringiðu breyt- inga sem við höfum litla stjórn á eða svo er okkur sagt. Hnattvæðingin Oft er hnattvæð- ingin skilgreind sem framför í sam- skiptatækni. Svo er ekki þó tæknilegar framfarir leiki veiga- mikið hlutverk í að drífa hana áfram. Hnattvæðingin felst fyrst og fremst í sam- skiptunum sjálfum en ekki hvernig þau fara fram. Fram til þessa hefur hnattvæðingin ver- ið drifin áfram af viðskiptalífinu og með hagsmuni þess í huga. Unnið hefur verið markvisst að því að fella niður hindranir í við- skiptum milli landa. Þau ríki sem veikast standa hafa verið þvinguð til þess að opna markaði sína fyrir framleiðslu iðnríkjanna sem á sama tíma hafa lagt hömlur á út- flutning þeirra á grundvallarfram- leiðslu sinni sem oftast er land- búnaðarvörur. Iðnríkin hafa hvatt þau til útflutnings á hráefnum og „tilteknum“ landbúnaðarafurðum. Þær afurðir eru í mörgum til- vikum einungis framleiddar til út- flutnings og framleiðsla þeirra hefur lagt hefðbundinn landbúnað og lífshætti þróunarríkjanna í rúst. Stórfyrirtækin hafa sagt sig úr lögum við einstök ríki og tekið upp „hnattvædd“ heimilisföng allt frá því að vera skráð undir pálma- trjám í Kyrrahafinu til þess að vera skráð alstaðar og hvergi. Þau flytja mannfreka framleiðslu til þeirra svæða þar sem laun eru lægst, réttindi launafólks minnst og skattar til samfélagsins lægst- ir. Með öðrum orðum birtist hnattvæðingin stórum hluta jarð- arbúa sem kapphlaup á botninn. Hlutverk og staða okkar Staða Íslands í hnattvæðingunni er góð því við búum við hátt menntunar- og tæknistig og njót- um óspart samvinnu okkar innan EES og við hin þróuðu iðnríki. Engu að síður höfum við fundið harkalega fyrir áhrifum hennar því heilar iðngreinar hafa flúið land og fjöl- þjóðleg fyrirtæki haslað sér völl innan- lands með vinnuafl sem oftast nýtur verri ráðningarkjara en innlent launafólk. Hætt er því við að heildaráhrifin verði þrýstingur niður á við hvað al- menn laun og starfskjör varðar. Hér þurfum við að bregðast við og taka stöðu með þeim ríkjum og hagsmunasamtökum sem vilja taka stjórn hnattvæðingarinnar af stórfyrirtækjunum og viðskiptalíf- inu og koma henni undir stjórn lýðræðislega kjörinna fulltrúa. Það verður ekki gert öðruvísi en að hvert ríki fyrir sig axli ábyrgð á þróuninni og setji sér viðskipta- reglur byggðar á mannréttindum og gagnkvæmu tilliti og geri það í samvinnu við aðrar þjóðir. Þannig byggjum við upp framsækið at- vinnulíf. Það er verk að vinna Ég tel að Samfylkingunni sé best treystandi til þess að vinna þau í sátt við allt samfélagið. Ég hvet þig eindregið til þess að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi 4.11. næst- komandi og leggja þitt af mörkum til að móta sterkan og fram- bærilegan framboðslista í kjör- dæminu. Ég vil taka 2.–3. sætið á þeim lista og óska eftir stuðningi þínum. Framsækið atvinnulíf í hnattvæddum heimi Magnús M. Norðdahl skrifar um atvinnulíf » Staða Íslands íhnattvæðingunni er góð því við búum við hátt menntunar- og tæknistig og njótum óspart samvinnu okkar innan EES og við hin þróuðu iðnríki. Magnús M. Norðdahl Höfundur er lögfræðingur ASÍ og býður sig fram í 2.–3. sæti á fram- boðslista Samfylkingarinnar í SV- kjördæmi. TENGLAR .............................................. www.mn.is  564 1500EIGNABORG FASTEIGNASALA Iðnaðarhúsnæði á Eyrarbakka Til sölu 1,703 fm iðnaðarhúsnæði á einni hæð í um 40 mín. akstri frá Reykjavík Húsið stendur á 7,500 fm lóð. Bílastæði við hús malbikað. Góð starfs- mannaaðstaða með búningsherbergjum, sturtu og mötuneyti. Einnig er góð skrifstofuaðstaða með öll- um nauðsynlegum tengingum. Lagnir fyrir þrýstiloft og loftræstikerfi er í húsinu. Um er að ræða fjögur sambyggð hús sem hægt er að skipta í smærri einingar: • 214,6 fm eining byggð úr stáli 1970, sem er notuð fyrir skrifstofur, matsal og búningsherbergi. Húsið er klætt að utan með krossviðarsteni og á þaki er bárujárn. • 459,8 fm eining byggð úr stáli 1970, vegghæð er um 3 m. Í húsinu er m.a. annars vinnusalur, þrjár skrifstofur og kyndiklefi. • 168 fm eining byggð úr steinsteypu 1973, húsnæðið er notað sem lagerhúsnæði. • 861 fm eining byggð úr steinsteypu 1981, húsið er með ca 6 m vegghæð, innkeyrsluhurð sem er um 4 m breið og um 4,5 m há. Verð kr. 76 milljónir. Húsnæðið er til afhendigar strax. 30 ára Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar. , , Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Glæsilegt tvílyft einbýli við Birkigrund í Kópavogi ásamt tvöföldum alvöru bílskúr. Eignin skiptist m.a. í tvær forstofur, hol, íbúðarherbergi, baðherbergi, sólskála, stofu, borðstofu, þrjú herbergi og tvö baðherbergi á efri hæðinni. Vönduð eign sem mikið hefur verið lagt í. Eignin stendur á skjólsælum stað Fossvogsmegin í Kópa- voginum. Vönduð eign á eftirsóttum stað. Sérlega stór bílskúr. V. 65,0 m. 6195 LAUTASMÁRI - BÍLSKÚR Stórglæsileg 4ra herb. 110 fm endaíbúð á 3. hæð (efstu) auk 22 fm bílskúrs sem innangengt er í. Vandaðar innréttingar og gólfefni. V. 28,5 m. 6196 SKORRADALUR Tveir vel staðsettir sumarbústaðir á einni hæð við Skorradalsvatn. Bústaðarnir eru 52,8 fm að stærð auk 4,7 fm útigeymslu. Nýlegir leigusamningar. Fallegt útsýni. V. 13,5 m. 6188 FLYÐRUGRANDI Íbúðin er laus strax. Falleg 2ja herbergja, 65 fm íbúð á jarðhæð. Íbúðin skiptist þannig: Stofa, svefnher- bergi, vinnukrókur, eldhús, baðherbergi, forstofa og geymsla. V. 15,7 m. 6180 HÁALEITISBRAUT - BÍLSKÚR 4 svefnh. Mjög glæsileg 133,7 fm, 5-6 herbergja endaíbúð á 3. hæð auk 24,5 fm bílskúrs í blokk sem lítur mjög vel út að utan. Tvennar svalir. Nýtt eldhús, nýjar hurðir og gólfefni að mestu leyti. Eignin skiptist m.a. í hol, stofu, borðstofu, 4 svefnherbergi, baðher- bergi, eldhús og þvottahús/búr. Sérgeymsla í kjallara og sam. þvottahús. V. 27,5 m. 6171 SVÖLUÁS - HAFNARFIRÐI 3ja herb., 85 fm falleg og björt íbúð með sérinng. af svölum. Fallegt útsýni. Sérþvottahús. Góð stofa. Getur losnað fljótlega. V. 20,7 m. 6173 KLEPPSVEGUR - ÞJÓNUSTUÍBÚÐ 2ja herbergja björt, 64,6 fm þjónustuíbúð á 7. hæð (efstu) í lyftublokk með glæsilegu útsýni og suður- svölum. Húsið er við Hrafnistu. V. 19,0 m. 6199 HELLUVAÐ - 95% LÁN 4ra herbergja ný og glæsileg 118,9 fm íbúð á 3. hæð með suðursvölum í hinu nýja Norðlingaholti ofan við Rauðavatn í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, þrjú svefnherbergi, eldhús, stóra stofu, þvottahús og glæsilegt baðherbergi með baðkari svo og innréttingu. V. 23,6 m. 467 MÖÐRUFELL 3ja herb. 80 fm falleg íbúð á 4. hæð með Elliðaárda- linn við hliðina. Blokkin var standsett fyrir nokkrum árum og voru þá m.a. allir gluggar endurnýjaðir o.fl. V. 14,7 m. 6182 KAMBSVEGUR Frábærlega vel staðsett 3ja herbergja íbúð efst á Kambsvegi í Reykjavík. Eignin, sem er vel skipulögð og sjarmerandi, er rétt fyrir ofan Laugardalinn. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö herbergi. Lágvöruverslun, leikskóli og grunnskóli í næsta nágrenni. V. 15,9 m. 6192 ÓSAMSETTUR SUMARBÚSTAÐUR Frábært verð! Til sölu fjórir kanadískir, 107 fm bústaðir. Verð aðeins 6,5 milljón á bústað. Hver bústaður er 107 fm og er einingabústaður. Bústaðirnir eru nú á hafn- arbakkanum, tilbúnir til flutnings og ósamsettir. Nánari upplýsingar veitir Þorleifur St. Guðmundsson. V. 6,5 m. BIRKIGRUND 105 fm götuhæð í mið- bænum þar sem áður var rekin verslun. Eignin býður upp á allt að 4 inn- ganga. Möguleiki á að stúka niður í þrjár stúdíóí- búðir og leigja út eða verslun. Laust strax. Hús í góðu ástandi. V. 21,0 m. 6194 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Kárastígur - Ýmsir möguleikar Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.