Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 37
við að setja myntina í raufina á kaffi-
sjálfsala og ýta á takkann fyrir
þyrsta ferðamenn. Í hverri einustu
dúndurbúllu voru um það bil tíu
manns klesstir á bak við afgreiðslu-
borðið og það leit oft út fyrir að af-
köstin væru ekki sérlega mikil. Sum-
ir voru sofandi undir borði og alltaf
var tími til að spjalla. Húsasund
gegndu líka opinberu hlutverki og
víða mátti sjá karla sitja saman í
hring. Lífið virtist svo einfalt og lát-
laust, á yfirborðinu í það minnsta.
Háklassamiði í bátskel
„Hvar er myndatökuvélin?“ Mér
leið eins og ég væri í falinni mynda-
vél þegar ég fór í stóra matvörubúð.
Skilyrði fyrir inngöngu var að bak-
pokinn væri skilinn eftir í öryggis-
geymslu við innganginn. Eftir að
hafa ratað í gegnum neyslufrum-
skóginn vísaði einn mér á afgreiðslu-
kassann, annar stimplaði inn í búðar-
kassann, enn annar opnaði inn-
kaupapokann og svo voru nokkrir í
að skella varningnum í pokana. Við
útganginn stóð síðan þessi elska
pungsveittur við að stimpla „Exit“ á
kassakvittunina áður en haldið var í
röðina að öryggisgeymslunni að
nýju. Næsta dag afgreiddu mig ein-
ungis átta manns þegar ég fjárfesti í
svitalyktareyði. Með yndislegum
hreim reyndu afgreiðslukarlarnir að
lokka til sín viðskiptavini og oftar en
ekki varnarlausa ferðalanga. Síðan
rugguðu þeir hausnum eins og gorm-
ur tengdi höfuð við búk. Svör við
misgáfulegum spurningum mínum
voru því óljós þar sem þessi hreyfing
minnir á eitthvað mitt á milli „já“ og
„nei“ hjá hinum dæmigerða Íslend-
ingi. Svona eins og þegar sagt er hæ
en vinkað bless á sama tíma.
Frá Mumbai lá leiðin til eyj-
arinnar Elephanta Island, en síðan
var meiningin að bruna suður til Góa
og blanda geði við eilífðarhippa, sem
gleymdu að fara heim:
Eftir nokkra daga í Mumbai höfðu
ferðaplönin skýrst eilítið og ætlunin
var að bruna suður til litla fylkisins
Góa. Blanda geði við eilífðarhippa
sem gleymdu að fara heim á síðari
hluta síðustu aldar. Ég ákvað að
ferðast þangað með lest til að sjá
landslagið á leiðinni og upplifa
lestarferð sem af mörgum er talin
ein-stök reynsla. Það átti alltaf að
vera pláss fyrir einn í viðbót sama
hversu troðningurinn var mikill. En
fyrst ætlaði ég að útrýma minnis-
blaðinu yfir þá hluti sem mig langaði
að gera og sjá í Mumbai, áður en
lengra yrði haldið. Ég fór að Gate-
way of India eða Hliði Indlands sem
er risastór bogi sem snýr að höfn-
inni. Hliðið var reist til minningar
um komu Georgs konungs V og
Maríu drottningar árið 1911 og talið
táknmynd Mumbai. Iðulega safnast
margt fólk saman við bogann og al-
gengt er að útsendarar frá Bolly-
wood leiti til ferðamanna og fái þá til
að leika aukahlutverk í kvikmynd.
Ég var ekki ein af þeim útvöldu en
keypti mér háklassamiða í bátsferð
til eyju sem heitir Elephanta Island.
Hefði nefið á manninum í miðasöl-
unni stækkað eins og á Gosa þá hefði
það stækkað um svona þrjá metra
þar sem ég var flutt út í eyju á al-
gjörum dalli. „Could you please turn
it down!“ sagði ein fín frú með strá-
hatt. Það var eitthvað óskiljanlegt
daður á milli ærandi teknótónlistar
og ferðamennsku á Indlandi. Konan
var ekki sú eina sem andaði léttar
eftir að vírunum á græjunni var
kippt í sundur.
„Lífið er ferðalag en ekki áfanga-
staður eins og maðurinn sagði: Kon-
ur eru líka menn og ferðalagið held-
ur áfram,“ eru lokaorð Andreu
Róbertsdóttur í bókinni. En áður
fara lesendur með henni til Taílands,
Kambódíu, Laos og fleiri staða.
Spennið beltin – Til Asíu með Andreu
Róberts kemur út hjá JPV útgáfu og
er 173 blaðsíður.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík sími 585-1300 www.heilsugaeslan.is
Bólusetning gegn inflúensu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli almennings á því að skipulögð
bólusetning gegn inflúensu hefst á öllum heilsugæslustöðvunum mánudaginn 16. október 2006.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
• Öllum sem orðnir eru 60 ára.
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
• Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast
leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeigandi
heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Firði, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi s: 561 2070
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann
verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á
sína heilsugæslustöð. Upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is
Reykjavík 15. október 2006.
Jón Sigfús Sigurjónsson,
Hdl.& Löggiltur FFS.
gsm: 893 3003,
jon@vidskiptahusid.is
Haraldur A. Haraldsson,
Viðskiptafræðingur.
gsm: 690 3665
haraldur@vidskiptahusid.is
Glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði á þremur hæðum. Byggingin er samtals 7.273,7 fm og er fyrsta hæðin um 4.822 fm, þar af 3.600 fm rými sem t.d. er hægt
að nota undir verslun eða sem sýningarsal. Önnur hæð er 1.442 fm og þriðja hæðin er 1.010 fm. Um 230 bílastæði. Til afhendingar 1. febrúar 2007.
Skúlagata 17 - 101 Reykjavík - Sími 566 8800 - Fax 566 8802
vidskiptahusid@vidskiptahusid.is
www.vidskiptahusid.is
Víkurhvarf - Glæsileg nýbygging
Atli Viðar Jónsson,
Sölumaður.
gsm: 898 2533
atli@vidskiptahusid.is
Þórhallur Björnsson,
Lögg. leigumiðlari.
gsm: 899 6520
thorhallur@vidskiptahusid.is
Jóhann Ólafsson,
Löggiltur FFS.
gsm: 863 6323,
johann@vidskiptahusid.is