Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 22
daglegt líf
22 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
E
fst uppi í háu fallegu
timburhúsi í Þingholt-
unum hefur Ágústa
Eva Erlendsdóttir
hreiðrað um sig í lítilli
tveggja herbergja íbúð. Beint á
móti býr Baltasar Kormákur og
fjölskylda hans en þrátt fyrir ná-
lægðina tókst Ágústu ekki að fá
Baltasar til að leyfa sér að sjá Mýr-
ina, fyrstu kvikmyndina sem hún
leikur í, fyrir frumsýningu. Hún
varð að bíða eins og allir hinir og
var að sjálfsögðu afar spennt að sjá
árangurinn þegar viðtalið fór fram
en þá voru enn nokkrir dagar til
frumsýningar.
Ágústa er í rifnum gallabuxum,
íþróttatreyju og með þrílitt hárið í
tagli. Útvarpsstöðin Rondó leikur
ljúfan djass fyrir okkur og Ágústa
hefur kveikt á kertum og reykelsi.
Þrjár rósir standa tígulegar í vasa
og kleinur liggja makindalega í skál.
Boxhanskarnir í gluggakistunni eru
í nokkurri andstöðu við notalegheit-
in í stofunni. „Pabbi minn gaf mér
þá. Þeir höfðu verið geymdir í húsi
sem brann. Það er því ekki nóg með
að þeir séu antík, heldur er líka svo-
lítið sót á þeim,“ útskýrir Ágústa.
Hún sest í Chesterfield-stól, sveiflar
fótunum yfir annan arminn og spyr
svo: „Er bannað að plata í þessu
viðtali?“
„Nei, nei,“ svara ég. „Ef fólk
skrökvaði ekki stundum í viðtölum
myndi það aldrei segja neitt
skemmtilegt.“
Síðan spyr ég hana um ljósmynd
úti í glugga af litlum dreng. „Þetta
er systursonur minn. Hann heitir
Emanúel.“
Emanúel. Ekki er það nú algengt
nafn, hugsa ég með mér. Ætli hún
hafi tekið mig á orðinu og sé strax
byrjuð að skreyta? Ég sé mér þann
kost vænstan að snúa mér að Mýr-
inni, kvikmynd Baltasars eftir einni
af bestu bókum Arnaldar Indr-
iðasonar. Hún fjallar um leit hins
sjónumhrygga lögreglumanns Er-
lends að morðingja miðaldra karl-
manns sem fundist hefur látinn. Í
íbúð hans rekur Erlendur augun í
gamla ljósmynd af leiði barns og
teymir myndin hann aftur í tímann
þar sem glæpirnir liggja við hvert
fótmál.
Ágústa Eva fer með hlutverk
Evu Lindar, dóttur Erlends, sem
glímir við fíkniefnavandamál og býr
meira og minna á götunni. Nöfn
þessara tveggja stúlkna eru furðulík
því báðar heita þær Eva og eru Er-
lendsdætur. „Því fleiri bækur sem
ég les eftir Arnald því meira finn ég
sameiginlegt með okkur Evu Lind.
Foreldrar hennar eru fráskildir eins
og mínir og báðar eigum við bræður
sem eru ári yngri en við. Síðan
langar Evu Lind líka til að hætta að
drekka en það langaði mig líka einu
sinni og svo gerði ég það bara.“
Hin óræða Eva Lind
Í hlutverk Evu Lindar vildi Balt-
asar fá unga leikkonu sem gæti
túlkað bæði sakleysið og spillinguna
sem stúlkan býr yfir. „Hún er hörð
og illkvittin við pabba sinn en um
leið er hún svo umkomulaus,“ segir
Baltasar. „Til að fá samúð áhorf-
enda þurfti leikkonan að búa yfir
báðum þessum hliðum. Ég kann-
aðist við Ágústu Evu því hún vann
á leikskólanum þar sem synir mínir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hin hliðin Ágústa Eva Erlendsdóttir verður í hlutverki Evu Lindar Erlendsdóttur í myndinni Mýrin og segist eiga ýmislegt sameiginlegt með henni fyrir utan það að þær séu nánast nöfnur.
Það flýr
enginn
sjálfan sig
Ágústa Eva Erlendsdóttir leikur Evu Lind, ráð-
villta dóttur lögreglumannsins Erlends, í Mýr-
inni, kvikmynd Baltasars Kormáks. Gerður
Kristný sem og raunar öll þjóðin kannast eflaust
betur við hana í hlutverki alræmdrar söngkonu
en nú sýnir Ágústa Eva á sér allt aðra hlið. Til hamingju Ísland Í hlutverki Sylvíu Nætur klæddi Ágústa Eva sig í skrautlega búninga, setti á svið mikla sýn-
ingu og söng sig inn í Evróvisjón fyrir Íslands hönd, en náði þó ekki inn í aðalkeppnina.
»Mér fannst skemmti-
legast að leika mér
með krökkum sem voru
svolítið öðruvísi en aðrir
og af þeim var nóg í
Hveragerði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg