Morgunblaðið - 15.10.2006, Side 29
þau 30 til 40 lög. Yfirleitt spilar hann
undir á skemmtarann, en stundum
spila þau elstu undir.
Íþróttasalur og sparkvöllur
Eftir að stúlkurnar eru flognar
heldur spjallið áfram, Dónald hálfur
inni í kyndiherbergi og eiginlega í
hvarfi við eldhúsinnréttinguna.
„Það verður að segjast eins og er
að það vantar íþróttahús. Það hefur
einfaldlega verið of dýrt, enda leggst
það meira og minna á sveitarfélögin.
Þó að sundlaugin sé góð, ég kenni þar
tvisvar í viku, og gangi alveg fyrir lík-
amsræktina, þá þurfum við að geta
boðið upp á íþróttasal. Það þarf ekki
að vera dýrt að reisa hann hjá sund-
lauginni, þannig að öll aðstaða sam-
nýtist, svo sem búningsklefar.“
„Það kom sterklega til tals að
koma upp litlum sparkvelli með
gervigrasi, en við erum bara svo fá,“
segir Helga Mattína Björnsdóttir,
eiginkona Dónalds, sem sér einnig
um skólastarfið.
Adam rekur inn nefið og segir:
„Hún er orðin hálf!“
– Hvað gerist þá, spyr blaðamaður
forvitinn.
„Nammi,“ svarar Adam.
„Einu sinni í mánuði fá krakkarnir
nammi á opnu húsi,“ segir Helga
Mattína. „Svo erum við með opið
bókasafn og sjoppu í hálftíma á viku.
Þá kemur allur bærinn, börnin kaupa
laugardagsnammi og það er líf og
fjör í Múla.“
„Fólk er líka duglegt að styrkja
krakkana,“ segir Dónald. „Við höfum
farið einu sinni á ári undanfarin tólf
ár með eldri deildina í skólaferðalag
til að skoða söfn og fleira merkilegt
og stoppum þá í öllum sjoppum. Vor-
ferðin stendur yfir í þrjá daga og við
höfum tvisvar farið til útlanda.“
Fyrir utan skólann er Ingólfur á
hjólinu hans Sigga. Hann tilkynnir
blaðamanni að hann ætli að fá sér
hjólabát og kynnir „meðeiganda
sinn“. „Ég á eftir að fá laun fyrir
stokkunina,“ segir hann svo drjúgur.
– Hvað ætlarðu að verða þegar þú
verður stór?
„Sjómaður, alveg eins og pabbi.“
– Og hvar viltu búa?
„Hérna.“
– Þig langar ekkert í land?
„Mér finnst þægilegra að vera
hér,“ svarar hann og yppir öxlum.
Þróunin ef menn hætta
Fyrir rúmri viku var gengið frá
sölu á svokölluðum Grímseyjarkvóta,
tveimur bátum og 1.160 tonnum af
þorski úr eynni, sem eru rúm 40% af
aflaheimildum í Grímsey. Þar af var
báturinn Bjargey seldur með 433
tonna kvóta til GPG fiskverkunar á
Húsavík og eru uppi hugmyndir um
að sá fiskur verði veiddur frá Gríms-
ey, en nú þegar er GPG með tvo báta
þar í föstum viðskiptum.
„Þetta er þróunin ef menn hætta
og enginn á staðnum treystir sér til
að kaupa,“ segir Sigfús. „Þá fer þetta
til stærstu útgerðarfyrirtækjanna og
byggð hér hlýtur að leggjast af. Það
byrjar ekkert ungt fólk í útgerð, því
veiðiheimildir eru of dýrar.“
„Það hefur ekki góð áhrif þegar
svona mikill kvóti er seldur,“ segir
Garðar Ólason útgerðarmaður. „Því
fylgir mikil vinna, því margt fólk
vann við útgerðina. Þeir gerðu út
fjóra báta, þar sem sex unnu, og svo
var fjöldi manns að stokka upp fyrir
tvo línubáta. Auk þess fer minna um
fiskmarkaðinn en áður og með ferj-
unni.“
Biðstaðan erfiðust
Fregnin af kvótasölunni barst á
sama tíma og tilkynnt var að til stæði
að loka einu matvörubúðinni í Gríms-
ey, þar sem ekki fengjust nýir rekstr-
araðilar, en það rættist úr því þegar
Anna María Sigvaldadóttir og Magn-
ús Bjarnason ákváðu að taka við
rekstrinum. „Kannski var biðstaðan
erfiðust, los á fólki og mikil óvissa,“
segir Brynjólfur Árnason sveit-
arstjóri með meiru. „Fólk situr að-
eins kyrrt á meðan það veit ekki
neitt. Við gátum ekki sótt um
byggðakvóta, sem ætlaður er sveit-
arfélögum sem missa frá sér afla-
heimildir, á meðan kvótinn var skráð-
ur hér. Nú getum við farið að byggja
upp aftur. Grímseyingar hafa alltaf
verið duglegir að bjarga sér og hafa
sem betur fer keypt mikið af afla-
heimildum undanfarin ár.“
Hann segir að íbúafjöldinn hafi oft
sveiflast, það hafi fækkað úr 130 í um
70 manns á tíunda áratugnum, svo
fjölgað aftur og síðan hafi íbúar verið
um 100.“
– Er það lágmarksfjöldi?
„Ég held að það megi ekki vera
miklu færri. Þetta getur gengið með
50 til 60 manns í eitt til tvö ár. En
hvað samfélagið í eyjunni varðar
myndi ég segja að 90 manns væri lág-
mark. Annars verður þetta svo erfitt,
sömu mennirnir að gera allt og alltaf
að skemmta sjálfum sér.“
Það er töggur í Sigrúnu Þorláks-
dóttur: „Ég hef stundum sagt í gríni
að ég verð ein eftir til að Grímsey fari
ekki í eyði. Það hefur verið órói í
stuttan tíma og ég veit ekki hvert
stefnir. Ég vona bara til Guðs að það
fylgi alltaf einhver lukka Grímsey –
og góður andi.“
Og það ríkir bjartsýni hjá Sigurði
Henningssyni, sem rekur fiskmark-
aðinn, enda hafi nýr bátur, Selma,
bæst við fyrir rúmum mánuði. Sig-
urður er að stokka upp ásamt fimm
öðrum, en á gólfinu leikur Henning
sér, sem er fjögurra ára. „Það er eng-
inn leikskóli, svo við tökum börn-Leikir Strákarnir njóta frelsisins á opnu húsi í skólanum.
» „Ég myndi segja að
90 manns væri lág-
mark. Annars verður
þetta svo erfitt, sömu
mennirnir að gera allt
og alltaf að skemmta
sjálfum sér.“
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is
Við bjóðum fjölbreytta tíma í sal, margvísleg
námskeið, tækjasal og leiðsögn
• TT 1 Vertu í góðum málum!
Átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri
Lokuð 9 vikna námskeið, 3 x í viku
• TT 2 Áfram í góðum málum!
Lokuð 9 vikna framhaldsnámskeið eftir TT 1
• TT 3 og 4 Taktu þér tak!
Lokuð 5 vikna átaksnámskeið 3 x í viku
fyrir stelpur16-20 og 21-30 ára
• Rope Yoga
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi
Lokuð 5 vikna námskeið 2 x í viku
• 6o +
Líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri
Lokuð 5 vikna námskeið 2 x í viku
• Mömmumorgnar
Lokuð 5 vikna námskeið 2 x í viku
Þinn tími er kominn!
Opna kerfið
1. Almenn þjálfun, þol, styrkur og liðleiki
2. Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi , styrktar- og liðleikaþjálfun
3. Pallatími, samsett spor, mikil brennsla
4. Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi , unnið með þyngd og mótstöðu,
lóð, stangir, teygjur
5. Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur
6. Yoga
7. Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi , salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð.
8. Sprengitími, 30 mínútna hádegispúl
9. Stöðvaþjálfun, fjölbreyttir vaxtamótunartímar
Barnagæsla - Leikland JSB
Glæsilegur nýr tækjasalur!
Vertu velkomin í okkar hóp!
Innritun hafin núna
á öll námskeið
í síma 581 3730:
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 29