Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 33
kýrnar eru með tvær eða fjórar lappir,“ segir Gunnar Stefán og er full alvara. „Það kom stúlka til að vinna í fiskverk- uninni sem þekkti ekki í sundur ufsa, þorsk og ýsu. Þó er þetta ekkert eins, langur vegur frá því!“ Fjárhús með svölum Gunnar Stefán byggði útihúsin í Grímsey fyrir tuttugu ár- um og hefur tvíbyggt við þau. „Mér leiddist að slátra og geyma kjötið í fjárhúsunum; það var ekki nógu hreinlegt. Þannig að ég byggði við þau aðstöðu til þess. Nú er ég að ganga frá eftir sauðfjárslátrunina og er að fara að slátra kálfunum. Sumir eru að þessu undir húsvegg í drullunni. En fyrir mér eru þetta matvæli. Það fé sem slátrað er fer ofan í kistu hjá mér og þeim sem eiga hjá mér. Það eru fjögur heimili og þetta endist þeim allt árið; ekkert er selt.“ Gengið er eftir nokkurskonar verönd á annarri hæð úti- húsanna. „Það er búið að hlæja mikið að mér fyrir að vera með fjárhús með svölum,“ segir Gunnar Stefán kíminn. „En það er þægilegra að moka undan þeim út af svölunum.“ Hann er með fjörutíu kindur, landnámshænur og þrjá kálfa, sem eiga tvo daga ólifaða þegar blaðamann ber að garði. Hann sækir brauð til þess að hægt sé að ná mynd af honum með kálfunum, sem koma hlaupandi um leið og þeir sjá hann. „Þetta eru brauðætur,“ segir hann og hlær. Blaðamaður er með skrifblokkina og hripar niður í hana athugasemdir. „Hvern andskotann ert þú að skrifa,“ kallar Gunnar Stef- án af svölunum. – Það sem mér dettur í hug, svarar blaðamaður. „Skrifarðu það allt,“ spyr hann. – Það skynsamlegasta af því, svarar blaðamaður. „Þá er nú ekki mikið birt,“ segir hann og hristir höfuðið. Eftir það röltir hann upp í brekkuna. Kindurnar koma hlaupandi á móti honum, hópast um hann og éta brauð úr hendi hans. Fáeinar fara til blaðamanns, sem heldur á sam- anvöðluðum blöðum með punktum á. „Leyfðu þeim að éta þessa klausu,“ segir Gunnar Stef- án. „Hún getur ekki verið það merkileg.“ Hann segist þekkja rollurnar allflestar með nöfnum og að forystukindin sé flekkótt. Landið undir fótunum Grímsey. „Mér þykir gott að búa hérna,“ segir hann. „Einu sinni fór ég til Grindavíkur á vertíð og ég var hrika- lega feginn að komast heim. Ég hefði ekki búið hér alla mína hundstíð annars.“ – Ferðu reglulega til Akureyrar? „Það eru fimm ár síðan ég fór á milli fjarða. Mig vantar ekki neitt.“ Hann hugsar sig um og bætir við: „Mér finnst ekkert verra að eiga skepnur en snjósleða eða bíl. Ég á engan bíl, enda skaffar hann ekkert utan ánægju, en skepnur færa manni bæði ánægju og mat.“ – Þarf bíl í Grímsey? „Það hafa verið heimili með tvo bíla í hlaði og jafnvel þrjá bíla, þar sem þrír eru með bílpróf. Þetta finnst hérna líka,“ segir hann íbygginn, lítur stoltur yfir fjárhópinn og bætir við: „Þetta er lífféð.“ – Yndisleg þessi útvera? „Í júlí er fuglalífið ótrúlegt, lóa, hrossagaukur, kría, verpir allt við nefið á manni,“ svarar hann. – Ertu trúaður? „Já,“ svarar hann og reisir við girðingarstaur. „Ég fer ævinlega í messu. Enda er það ekki mikil fyrirhöfn. Prest- urinn á að skila fjórum messum á ári, en ég held það verði aðeins ein á þessu ári – jólamessan. Þannig að það er mikil skömm ef ég mæti ekki í kirkju. Annars er Dalvíkurprest- urinn Magnús [Gunnarsson] bara nokkuð góður.“ Að skilnaði við hliðið að útihúsunum segir blaðamaður: – Ég verð hérna næstu daga svo við hittumst áreið- anlega aftur. „Já, þú getur hringt og sagt mér hvaða leið þú ferð, þá fer ég ekki þá leið,“ svarar hann og rigsar í átt að heimili sínu hinumegin götunnar. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 33 Staðalbúnaður: • Hátt og lágt drif • Álfelgur • Stigbretti • Vindskeið • Skyggðar rúður • ABS hemlalæsivörn Pajero sport Sjálfskiptur með V6 bensínvél, 177 hestöfl 3.395.000 kr. Aflmeiri 136 hestafla dísilvél 3.595.000 kr. 3.395.000 kr. Fullbúinn alvörujeppi á einstöku verði Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is 35.539 kr. á mánuði H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Miðað við 30% útborgun og gengistryggðan bílasamning SP til 84 mánaða. Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006 Guðfinna S. Bjarnadóttir Valfrelsi og skapandi umhverfi www.gudfinna.is Allir eldri borgarar eru velkomnir í skemmtilegt kaffiboð sunnudaginn 15. október kl. 15:00 á kosningaskrifstofu okkar í Landsímahúsinu við Austurvöll. Verið velkomin. Stuðningsfólk, Guðfinnu S. Bjarnadóttur. Lifandi tónlist með Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvaldssyni Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.