Morgunblaðið - 15.10.2006, Side 38
daglegt líf
38 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
skeiði fyrir allt að tólf einstaklinga
sem hafa náð bata. Markmiðið er að
kenna fólki að þekkja fyrstu merki
endurtekins þunglyndis og að draga
úr tilhneigingunni til þess að loka
augunum fyrir þeim. Aðferðirnar
fela meðal annars í sér hugleiðslu-
tækni þar sem maður einbeitir sér að
andardrætti sínum og jógateygjur,
sem auka vitund um blæbrigði breyt-
inga í líkama og huga á sérhverju
augnabliki, fræðslu um þunglyndi og
æfingar úr hugrænni atferlismeðferð
sem sýna tengslin milli hugsana og
tilfinninga. Fyrstu vísbendingar úr
tveimur rannsóknum með slembiúr-
taki og samanburðarhópi gefa til
kynna að MBTC sé árangursrík að-
ferð til þess að draga úr hættunni á
niðursveiflu hjá fólki sem orðið hefur
alvarlega þunglynt þrisvar eða oftar,
segir Mark Williams.
Þunglyndi skilur eftir sig ör
Hvað er það sem veldur endur-
tekningu eftir fyrsta þunglyndið?
„Svo virðist sem erfðafræðilegir
þættir séu ráðandi í sumum tilvikum.
Hjá öðrum er ástæðan kannski
óhamingja í æsku eða á unglings-
árum, sem eykur líkurnar á þung-
lyndi síðar meir, hvort sem erfða-
fræðilegir þættir eru fyrir hendi eða
ekki. Við vitum líka að fólk sem þetta
á við getur samt lifað ánægjulegu lífi
og því verðum við að komast til botns
í því hvað það er sem fyrsta þung-
lyndið skilur eftir sig. Þunglyndi skil-
ur eftir sig ör. Það geta verið margar
ástæður fyrir því hvers vegna það
kom fram til þess að byrja með en af-
leiðingarnar eru mjög mismunandi
og í sumum tilvikum eru þær aukin
viðbragðshæfni, þannig að þó að allt
sé í lagi á yfirborðinu er viðkomandi
mjög viðkvæmur fyrir minnstu
breytingu á hugarástandi og litlar
breytingar geta leitt til mikilla
hvarfa í hugsanamynstri. Í því virðist
varnarleysið liggja.“
Eru líkamlegar afleiðingar líka
eða er það aðallega hugsanamynstrið
sem breytist?
„Um leið og hugsanirnar breytast
fer ferlið af stað. Þá er átt við lík-
amleg einkenni, kraftleysi, verki,
uppnám, seinvirkni, að vilja ekki fara
út, missa áhuga á hlutum og þess
háttar. Þunglyndi er dálítið eins og
stórt verkefni, en munurinn er sá að
verkefninu lýkur ekki eftir viku eða
innan fyrirséðs tímaramma. Þung-
lyndi er verkefni sem snýst meðal
annars um það að koma skikki á líf
sitt og hugarástand og vinna í því
sem maður þarf að laga í sjálfum sér.
Það er meiriháttar viðfangsefni og
vandinn er sá að aðferðin sem við
beitum í þunglyndi er að hugsa um
það og hugsa og fara í hringi. En það
gerir bara illt verra. Ef það er raunin
að auknar líkur á afturkipp eða end-
urtekningu séu vegna aukinnar við-
kvæmni fyrir minnstu neikvæðu geð-
sveiflum má velta því fyrir sér hvort
hægt sé að finna leið til þess að
kenna fólki, sem glímt hefur við
þunglyndi og jafnvel tekið þunglynd-
islyf en líður betur í augnablikinu, að
koma í veg fyrir næsta tilfelli með að-
ferðum sem hjálpa því til að viðhalda
heilbrigði sínu. Þar kemur hug-
leiðslan til skjalanna.
Rannsóknir sýna að maður getur
ekki bælt niður tilfinningar sem gera
vart við sig þegar þunglyndi verður
eða falið þær og maður getur fest sig
í endalausum vangaveltum um það,
hvers vegna manni líður illa eða
reynt að bæla það niður. Gjörhygli-
þjálfun felst í því að reyna hvorki að
bæla niður hugarástand sitt né
hugsa um það. Galdurinn er að læra
að kynnast augnablikinu og hugsa
vinsamlegar hugsanir um sjálfan sig
og hinar neikvæðu tilfinningar,
þannig fá þær að koma og fara eins
og hvert annað veðramynstur.“
Hugsanir koma fram og hjaðna og
það eina sem maður gerir er að fylgj-
ast með þeim?
„Já, og maður lærir að fylgjast
urtekningu á alvarlegu þunglyndi.
Mark Williams segir miklar líkur á
því að þeir sem glíma einu sinni við
alvarlegt þunglyndi upplifi annað-
hvort bakslag eða endurtekið þung-
lyndi. „Við fáum sífellt fleiri vísbend-
ingar um það, að líkurnar á endur-
tekningu séu mestar hjá þeim sem
eru það viðkvæmir fyrir jafnvel
minnstu neikvæðu geðsveiflum að
neikvætt hugsanamynstur frá fyrri
þunglyndistilvikum framkallast þeg-
ar í stað aftur,“ segir hann.
Aðferðin sem hefur verið þróuð
nefnist „mindfulness-based cognitive
therapy“ (MBCT) á ensku og eru
streituþjálfun, sem Jon Kabat-Zinn,
sérfræðingur í læknisfræði hugar og
líkama við læknadeild Massachu-
setts-háskóla, hefur þróað og aðferð-
ir hugrænnar atferlismeðferðar
fléttaðar saman á átta vikna nám-
Hugræn atferlismeðferðbyggð á aldagamalli hug-leiðslutækni er ný aðferðtil að fyrirbyggja end-
urtekningu á alvarlegu þunglyndi
sem tekin er að ryðja sér til rúms í
Evrópu og Bandaríkjunum. Mark
Williams, prófessor í klínískri sál-
fræði við Oxford-háskóla og stjórn-
andi rannsóknateymis við Miðstöð í
sjálfsvígsrannsóknum við skólann,
hefur kynnt þessa nýjung fyrir ís-
lensku heilbrigðisstarfsfólki með
vinnufundum og fyrirlestrum á
Landspítalanum og hjá Landlækn-
isembættinu. Hann hefur einbeitt
sér að hugrænum úrræðum í með-
ferð við þunglyndi og sjálfsvígshugs-
unum um langt skeið og hefur þróað
þessa aðferð upp á síðkastið ásamt
fleirum með það fyrir augum að
koma í veg fyrir afturkipp eða end-
með þeim af áhuga, forvitni og sam-
úð. Það er reyndar talsverð vinna því
flest okkar eru upptekin af hugs-
unum sínum. Hugsanir eru yfirleitt
svo nytsamlegar og okkur hefur
aldrei verið kennt að stíga skref til
baka og velta fyrir okkur hvort þær
séu gagnlegar eða ekki, við gerum
ráð fyrir því að þær séu sannar, með
góðu eða illu.“
Neikvæði verður sjálfvirkt
Má segja að hjá þeim sem hafa
glímt við þunglyndi sé neikvæði
ósjálfrátt fyrstu viðbrögðin við öllu
sem hendir? Af hverju kemur þetta
alltaf fyrir mig? Ég er svo óheppinn
og svo framvegis, tilhneigingin sé sú
að koma alls staðar auga á vandamál.
„Einmitt og það sem meira er,
maður getur alltaf fundið vísbend-
ingar sem styðja það sem manni
finnst. Við vitum að depurð gerir
minnið hlutdrægt og gerir gleðilegar
upplifanir fremur óaðgengilegar. Ef
maður glímir við vanlíðan og reynir
að rifja upp eitthvað ánægjulegt úr
fortíðinni finnur maður bara rifrildi,
óhöpp, vonbrigði og vont veður. Það
tilheyrir gamla hugsanamynstrinu
og er ekki okkur að kenna. Þetta ger-
ist bara. Hugleiðslan hjálpar okkur
við að sjá það skýrar og æfa viðbrögð
við hlutum sem eru ekki svo stór-
vægilegir. Við einbeitum okkur að
því að kenna fólki sem er í bata því
það getur æft sig með svo margt
þegar það hugleiðir. Við æfum það til
að mynda að setjast niður og fylgjast
með önduninni eða öðru í líkaman-
um, eftir fáeinar sekúndur er hug-
urinn farinn að reika, það er ekki
endilega víst að við byrjum að hugsa
eitthvað neikvætt, en kannski förum
við að spá í hvað við eigum að hafa í
matinn í kvöld, hugsa um bréfið sem
við eigum eftir að skrifa einhverjum
eða erindi sem við þurfum að sinna.
Æfingin felst í því að taka eftir því að
hugurinn sé byrjaður að reika og
byrja aftur að einbeita sér að and-
ardrættinum. Ef neikvæðar hugs-
anir gera vart við sig eftir nokkrar
vikur erum við búin að æfa okkur í
því mörg þúsund sinnum í millitíð-
inni að taka eftir því hversu skamm-
vinnar hugsanir eru, fylgjast með
þeim koma og hjaðna og síðan leys-
ast upp. Þess vegna eru aðeins meiri
líkur á því að maður geti búið til ör-
litla fjarlægð á neikvæðar hugsanir
sínar, tekið eftir hvernig þær nálg-
ast, staldra við, eitra hugann og
hverfa síðan aftur.“
Vísbendingar um afturkipp
Hverjar eru fyrstu vísbending-
arnar um afturkipp í þunglyndi?
„Það er einstaklingsbundið. Sumir
verða ergilegir í samskiptum, aðrir
draga sig örlítið í hlé og vilja kannski
ekki svara í símann, svo dæmi sé tek-
ið. Ef síminn hringir finna þeir
kannski fyrir spennu, „guð minn góð-
ur, hver er þetta? Mig langar ekki til
að svara“. Eftir viku svara þeir
kannski alls ekki. Með gjörhygli-
þjálfun getur maður við fyrsta merki
um niðursveiflu hugsað með sér, gott
og vel, kannski er að byrja nið-
ursveifla, ég verð að fara vel með
mig, hvað get ég gert til þess? Al-
mennt talað eru yfirleitt einhver lík-
amleg einkenni sem hægt er að vera
á varðbergi gagnvart og í gjörhygli-
þjálfun er valkosturinn við það að
Hugleiðsla gegn þunglyndi
Hugræn meðferð
byggð á aldagamalli
hugleiðslutækni er nú
að ryðja sér til rúms í
meðferð gegn þunglyndi,
skrifar Helga Kristín
Einarsdóttir. Mælt er
með henni í viðmiðunar-
reglum fyrir breska
heilbrigðiskerfið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Þorkell
Mark Williams
Í HNOTSKURN
»Mark Williams telur aðþunglyndi sé að aukast,
m.a. vegna þess að fólk verður
þunglynt í fyrsta sinn yngra
en áður.
»Hann vill kenna fólki semglímt hefur við þunglyndi
og tekið lyf aðferðir til að við-
halda heilbrigði sínu.
»Með hugleiðslu er hægt aðkenna fólki búa til fjar-
lægð á neikvæðar hugsanir og
skilja hvernig þær eitra hug-
ann.
Mánudaginn 16. október heldur Kim Guldstrand Larsen,
prófessor í tölvunarfræði við Álaborgarháskóla, námskeið um
sannprófun líkana (“model checking”) fyrir rauntímakerfi.
Námskeiðið fer fram í húsakynnum tækni- og verkfræðideildar
HR, Kringlunni 1 (gamla Morgunblaðshúsinu), í stofu K22.
Námskeiðið er haldið á vegum Þekkingaseturs í fræðilegri
tölvunarfræði (ICE-TCS).
Námskeiðið stendur frá kl. 8:30 til 12:00 og er þátttaka
ókeypis. Skráning fer fram á netfanginu luca@ru.is
Þriðjudaginn 17. október, frá kl. 9:00 til 10:00 verður
námskeiðinu fylgt eftir á sama stað, með verkefnatíma, þar sem
Alexandre David, lektor við Álaborgarháskóla, sýnir hvernig
beita má ofangreindri aðferðafræði við lausn á hagnýtum
verkefnum.
Kim Guldstrand Larsen er með doktorspróf í
tölvunarfræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi.
Hann gegnir prófessorsstöðu við Álaborgarháskóla
í Danmörku og er iðnaðarprófessor við háskólann í
Twente í Hollandi. Hann er meðlimur í konung-
legu dönsku vísindaakademíunni og í dönsku
tæknivísindaakademíunni. Hann er sá tölvunar-
fræðingur í Danmörku sem mest var vitnað í á
árunum 1999-2004 og hlaut hann viðurkenningu
fyrir það í fyrra.
Námskeið um
líkana
fyrir rauntímakerfi
sannprófun
OFANLEITI 2 • KRINGLAN 1 • HÖFÐABAKKA 9
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
TÖLVUNARFRÆÐI