Morgunblaðið - 15.10.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 39
velta sér upp úr hugsunum sínum
eða bæla þær niður sá að einbeita sér
að því hvar í líkamanum neikvæða
hugarástandið gerir vart við sig.
Fyrstu tvær vikurnar á námskeiðinu
eru notaðar í einskonar líkams-
skönnun þar sem við einbeitum okk-
ur bara að því að gaumgæfa líkam-
ann frá toppi til táar, ekki til þess að
breyta einhverju eða slaka á, heldur
bara til þess að taka eftir því sem þar
er. Margir tala um tilfinningu ein-
hvers staðar í búknum, en hún getur
gert vart við sig hvar sem er, jafnvel
í andlitinu með því að vera þungur á
brún. Einn af skjólstæðingum mín-
um nefndi á námskeiði rétt áður en
ég kom til Íslands að hún fyndi fyrir
sársauka í hælunum. Ef hún einbeitti
sér að honum hvarf hann en um leið
og hún hugsaði um erfiðleika í lífi
sínu kom hann aftur. Þannig getur
maður byrjað að nota líkamann sem
einskonar loftvog á veðrabrigði og
skynjað hvar spenna gerir vart við
sig, alveg eins og maður bankar í
raunverulega loftvog til þess að gá að
veðri.
Það tilheyrir þróunarmynstri
mannsins að þegar eitthvað fór úr-
skeiðis var orsökin ávallt í ytri að-
stæðum, annaðhvort vegna rándýrs
eða hættu af einhverju tagi, og fyrstu
líkamlegu viðbrögðin voru þau að
frjósa þar til hættan var liðin hjá, eða
ef hún leið ekki hjá að flýja eða berj-
ast. Sérhvert þessara viðbragða felur
í sér vöðvasamdrátt af einhverju tagi
og sá hluti heilans sem stýrir honum
þróaðist löngu áður en hugsunin þró-
aðist. Nú hefur hugsunin þróast og
eins dásamlegt tæki og hún er geta
hugsunin og ímyndunaraflið nú séð
okkur fyrir hættum sem knúnar eru
áfram hið innra.“
Eins og viðbrögð við hættu
Er hugsunin að snúast gegn okk-
ur?
„Hún getur gert það í þeim skiln-
ingi að við getum upplifað minningar
úr fortíðinni sem hrinda af stað
samskonar líkamlegum viðbrögðum
og við hættu eða við getum hugsað
inn í framtíðina og haft áhyggjur
sem kalla fram sömu viðbrögð og ef
við hefðum rekist á ljón í frumskóg-
inum. Vöðvasamdrátturinn er sams-
konar, þó að við séum að hugsa fram
á við og að ekkert hafi gerst eða
muni gerast og við einhverju í fortíð-
inni, við lifum framtíðina fyrirfram
eða endurupplifum fortíðina og lík-
amlegu afleiðingarnar eru hinar
sömu og við fyrrgreindar aðstæður í
frumskóginum. Það hefur alls kyns
afleiðingar, meðal annars þær að
maður á erfitt með að greina hvað er
að gerast í núinu, annars vegar höf-
um við það sem gerðist í fortíðinni og
hins vegar það sem gæti gerst í
framtíðinni. En hvað um núið?“
Við eigum talsvert erfitt með að
dvelja í augnablikinu, virðist vera?
„Já, alveg ótrúlega, því enginn hef-
ur kennt okkur það. Í skóla er okkur
kennd gagnrýnin hugsun enda eru
allar stærstu framfarir mannsins
byggðar á vísindalegri hugsun en
vandamálið í þunglyndi er það að við
hugsum of mikið og að hugsunin er
of gagnrýnin. Við byrjum að reiða
okkur um of á gagnrýna hugsun, eins
og hún sé eina tækið sem við ráðum
yfir. Á ensku er orðatiltæki sem seg-
ir: ef eina verkfærið sem maður hef-
ur við höndina er hamar byrjar allt
að líta út eins og nagli. Ef hugsunin
er eina tækið sem við höldum að við
höfum teljum við okkur trú um að við
getum hugsað okkur í gegnum allt og
ef hugsunin um sum vandamál okkar
byrjar að vinna gegn okkur verður
útkoman alger óreiða.“
Þunglyndi að aukast
Er tíðni þunglyndis að aukast í
samfélaginu eða er það betur greint?
„Ég held að þunglyndi sé að
aukast. Ein ástæðan er sú að fólk
verður þunglynt í fyrsta sinn mun
yngra en áður. Við höfum fullt af vís-
bendingum um það alls staðar að úr
heiminum. Fyrir fimmtíu árum var
tilhneigingin sú að þunglyndi gerði
fyrst vart við sig upp úr fertugu, eða
í kringum miðjan aldur og þunglyndi
milli tvítugs og fertugs var mjög
sjaldgæft. Núna er ljóst að á síðustu
fimmtíu árum verður sífellt yngra
fólk þunglynt í fyrsta sinn, sumir á
unglingsárum eða upp úr tvítugu.
Meðalaldur fólks sem fær þunglyndi
í fyrsta sinn hefur því lækkað niður í
miðjan þrítugsaldur. Fleiri verða því
þunglyndir því yngra fólk er að verða
þunglynt í fyrsta sinn. Hin ástæðan
er sú að ef fyrsta þunglyndið gerir
vart við sig á unga aldri eru meiri lík-
ur á því að það komi fyrir aftur á lífs-
leiðinni. Við vitum að þunglyndi er
endurtekið vandamál hjá mörgum og
þess vegna hefur fjöldi þeirra sem
verða fyrir því í annað, þriðja eða
fjórða sinn aukist.“
Þáttur velmegunar
Hvað er það sem veldur auknu
þunglyndi hjá yngra fólki?
„Það er erfitt að segja. En ým-
islegt bendir til þess að þegar sam-
félag vinnur bug á stórfelldum sjúk-
dómum og dauðsföllum byrja
sjúkdómar að tengjast velmegun, til
dæmis ef velmegunarástandinu er
spillt eða það er hindrað eins og með
vaxandi bili á milli ríkra og fátækra.
Sjálfsvígstíðni fylgir sömu þróun. Í
Bretlandi, til að mynda, og víðar í
Evrópu, þar sem bilið milli þeirra
20% sem eru ríkust og þeirra 20%
sem eru fátækust er mjög breitt er
tilhneigingin sú að veikindi og vanlíð-
an fari vaxandi. En ef munurinn er
minni virðist almenn vellíðan meiri í
samfélaginu. Á síðustu fimmtíu árum
hefur bilið milli þeirra ríkustu og fá-
tækustu vaxið enn meira, og vandinn
er sá að það er erfitt að ráða við það.“
Hvað er það sem gerist þegar bilið
milli þeirra ríkustu og fátækustu
vex?
„Fólk lifir lengur þar sem minni
stéttamunur er, til dæmis í Japan og
Skandinavíu. Ýmislegt bendir til
þess að neysla á áfengi og vímuefn-
um fari vaxandi þar sem stéttamun-
ur eykst. Ástæðan virðist sú að mað-
urinn hefur ekki sérstaklega góða
hæfileika til þess að meta algildar
stærðir. Ég gæti ekki svarað því
hversu löng vegalengdin er frá þeim
stað sem við sitjum á núna og út á
bílastæði. En ég á auðvelt með að
segja að sjónvarpið sem er hérna
inni sé mun nær okkur en bílarnir úti
og að þú sért nær mér en sjónvarpið,
með öðrum orðum eigum við auð-
veldara með að dæma afstæða fjar-
lægð. Ef maður hugsar um þróun-
arsöguna þurftum við bara að geta
þekkt hlutfallslega fjarlægð að
næstu trjágrein og hversu mikinn
kraft þyrfti til að stökkva milli trjáa.
Ef maður ber sig saman við ná-
granna sinn og báðir eiga venjulegan
bíl, er allt í lagi. Svo tekur nágrann-
inn sig til allt í einu til og fær sér
Porsche eða Audi, svo dæmi séu tek-
in, þá staldrar hinn við þó að gamli
bíllinn hans sé enn í fullkomlega
góðu lagi. Margt bendir til þess að
við þessar aðstæður finnist fólki það
útundan, þannig að ef fólk einhvers
staðar í samfélaginu byrjar að auðg-
ast, þó að hinir séu ekki að verða fá-
tækari, finnur það fyrir þessum hlut-
fallslega mun og fer að finnast það
fátækara, þó að það beri jafnmikið
úr býtum og áður. Fólki finnst það
vera að missa af einhverju og það
leiðir til alls kyns viðbragða í ónæm-
iskerfinu til að mynda, magn nýrna-
hettuhormóna eykst lítillega í blóð-
inu, hlutfall karlkynshormóna
lækkar örlítið og það finnur fyrir
meira vonleysi, eða niðurlægingu, þó
að ekkert hafi gerst annað en að ein-
hver varð ríkur eða ríkari. Ef maður
kvefast, verður hann veikari en ella,
og í samfélögum þar sem þetta bil er
orðið verulega breitt er munur á
ævilengd allt að sjö ár milli þeirra
ríkustu og fátækustu, þó að hinir fá-
Njar sendingar
!
"
# $
#
%
&
%
' ( )*
(
+
,
"
Gríðarlegar breytingar virðast nú eiga sér stað á búsetu og eignar-
haldi jarða í dreifbýli. Landnotkun breytist ört og verð á jarðnæði
hækkar víða mjög mikið. Bújörðum er núna víða skipt upp í smærri
skika til annarra landnota en áður. Þessi þróun hefur áhrif á mögu-
leika til áframhaldandi notkunar á landi til landbúnaðar og það
vakna margar spurningar. Þar má nefna hvort ríkið eigi að láta sig
varða hvort land sé tekið úr landbúnaðarnotum? Jafnframt hefur
hagur margra landeigenda og seljenda batnað mikið á sama tíma
og erfiðara er að festa kaup á jarðnæði til búskapar. Mikilvægt er
að þjóðfélagið hafi yfirsýn yfir þessar breytingar og meti áhrif þeirra
gildi fyrir búsetu í landinu til framtíðar.
Ráðstefnunni er ætlað að beina athyglinni að þessum málaflokki
þannig að staða hans skýrist.
Dagskrá
13:00 Setning og stutt yfirlit um þróun. Ágúst Sigurðsson, rektor
LbhÍ.
13:10 Kaup og sala landbúnaðareigna í Noregi. Sølve Bærug,
Universitetet for miljø- og biovitenskap (UMB), Ási, Noregi.
13:40 Landbúnaður, byggðaþróun og jarðalög. Atli Már Ingólfs-
son, lögfræðingur, landbúnaðarráðuneytinu.
14:00 Skipulagsáætlanir og breytingar á búsetu. Stefán Thors,
skipulagsstjóri.
14:20 Kaffihlé
14:50 Byggðir Borgarfjarðar. Torfi Jóhannesson, formaður skipu-
lags- og Byggingarnefndar.
15:10 Fasteignamarkaður í dreifbýli: Jákvæðar eða neikvæðar
breytingar. Magnús Leópoldsson, fasteignasali.
15:30 Pallborðsumræður. Frummælendur og fleiri fulltrúar sitja
fyrir svörum.
16:25 Ráðstefnuslit – samantekt. Ólafur Arnalds.
Ráðstefnustjórar: Hafdís Hafliðadóttir (Skipulagsstofnun) og Margrét
Hauksdóttir (Fasteignamati ríkisins).
Ráðstefnuna halda Landbúnaðarháskóli Íslands, Skipulagsstofnun og
Fasteignamat ríkisins í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga,
landbúnaðarráðuneytið o.fl. aðila.
Þeir sem áhuga hafa geta keypt súpu og brauð í hádeginu á Hvanneyri.
Vinsamlega látið vita fyrir kl. 13 þriðjudaginn 17. október til Margrétar
Jónsdóttur á netfang margretj@lbhi.is ef óskað er eftir mat.
Málþing:
SKIPULAG OG
BÚSETUÞRÓUN Í
DREIFBÝLI
• Er íslensku bújörðinni ógnað?
• Jákvæð þróun eða ógnun?
• Hver eru áhrif frístundabyggðar
og annarrar búsetu í dreifbýli?
Miðvikudagur 18. október kl. 13:00-16:30
Landbúnaðarháskóli Íslands,
Ásgarði, Hvanneyri
Einfalda,
gagnsæja og
lága skatta.
www.sigridurandersen.is
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík,
27. og 28. október.
Kosningaskrifstofa stuðningsmanna Sigríðar
Andersen er í Landssímahúsinu við Austurvöll.
Síminn er 561 4567. Alltaf heitt á könnunni.