Morgunblaðið - 15.10.2006, Page 70
|sunnudagur|15. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Ragna Sigurðardóttir dæmir
myndlistarsýningu Guðmundar
Karls Ásbjörnssonar í Listasal
Orkuveitunnar. » 72
Ritað frá Færeyjum um Global
Battle of the Bands, vinalega
eyjaskeggja, menningarlíf og
færeyska grámósku. » 73
af listum
Árni Matthíasson fjallar á
sunnudegi um ævi og störf
frönsku söng- og leikkonunnar
Charlotte Gainsbourg. » 74
tónlist
Rop, fret og magakveisa er
meðal þess sem kemur fyrir í
gagnrýni Ríkarðs Ö. Pálssonar
um orgeltónleika. » 71
gagnrýni
Nýr geisladiskur þar sem ýmsir
tónlistarmenn flytja lög Harðar
Torfasonar fær þrjár stjörnur af
fimm mögulegum. » 74
umsögn
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
EITT af þeim grónu áhugaleik-
félögum sem starfandi eru hérlendis
er Hugleikur. Þorgeir Tryggvason,
félagi í Hugleik, segir að það hafi
verið stofnað 1984 sem úrræði fyrir
fólk í Reykjavík sem vildi njóta þess
sama og fólk úti á landsbyggðinni,
þ.e. að leika í áhugaleikfélagi.
„Stofnfélagar vildu vinna upp úr
menningararfinum og fyrsta sýn-
ingin var leikritið Bónusförin, sem
var elsta leikritið sem hópurinn fann
á bókasafni,“ segir Þorgeir, og bætir
því við að stofnfundurinn hafi ein-
mitt verið haldinn á bókasafni.
Strax ári seinna hófst frum-
sköpun hjá félaginu því þá var
Skugga-Sveinn tekinn fyrir og leik-
ritinu breytt og það stytt auk þess
sem öllum kynhlutverkum var snúið
við. Sýningin var kölluð Skugga-
Björg. Því næst fékkst félagið við
Sálina hans Jóns míns en eftir það
hefur nánast allt viðfangsefni fé-
lagsins verið frumsamið efni.
„Í stofnandahópnum er fólk sem
hefur hæfileika til að skrifa og það
hefur verið aðalsmerki félagsins að
skrifa leikrit og setja þau upp. Í fé-
laginu er á þriðja tug fólks sem hef-
ur skrifað leikrit,“ segir Þorgeir.
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, í
stjórn Hugleiks, segir að þetta sé
hinn svokallaði höfundahópur innan
Hugleiks. Sumir höfundanna skrifa
jafnvel fyrir aðra leikhópa.
„Núna erum við stödd þar sem
félagið nær ekki að sýna öll þau
leikrit sem félagsmenn skrifa. Eitt-
hvað fer ofan í skúffur og slatti fer
til annarra leikfélaga,“ segir Sigríð-
ur Lára.
Lengi vel setti Hugleikur ein-
ungis upp eina sýningu á ári en síð-
an fór að þróast sú hefð innan fé-
lagsins að menn fóru að setja upp
stutta einþáttunga. Á sama tíma
fengu margir félagsmanna áhuga
fyrir því að leikstýra og upp úr því
hefur dagskrá með styttri verkum
sem alfarið eru unnin af fé-
lagsmönnum orðið stór þáttur í
starfi Hugleiks.
Á síðasta ári setti Hugleikur upp
tvö leikrit í fullri lengd og fimmtán
einþáttunga, allt frumsamið.
„Á síðasta ári borguðum við eng-
um laun heldur var þetta drifið
áfram af sköpunargleði fé-
lagsmanna. Með aðsóknartekjum og
styrkjum frá ríki og borg gengur
dæmið upp en fyrst og fremst
vegna þess að vilji er til þess að
vinna innan hópsins,“ segir Þorgeir.
Ný verkefni
Um 60 virkir félagar eru í Hug-
leik um þessar mundir en á fé-
lagaskrá eru um 120 manns. Sumir
taka þátt í einu verkefni en aðrir
taka þátt í öllum verkefnum en taka
sér síðan hlé í einhvern tíma.
Félagið er öllum opið en Þorgeir
segir ekki öruggt að allir fái hlut-
verk í leikritum. „En það er alveg
fullvíst að þeir sem bera sig eftir
því fá að taka þátt í starfseminni á
einhvern hátt. Við höfum reyndar
ekki haft úr mörgum leikurum að
velja undanfarin ár eftir að svo
margir fóru að hafa áhuga á því að
skrifa og leikstýra. Það er því pláss
í félaginu fyrir leikara,“ segir Sig-
ríður.
En hvað er svo framundan í
starfseminni?
„Við vorum með sýningar einu
sinni í mánuði í Þjóðleikhúskjall-
aranum í fyrra sem við kölluðum
Þetta mánaðarlega. Þessu verður
haldið áfram í vetur, frá október til
maí, og setjum þá upp sex til sjö
sýningar með nokkrum einþátt-
ungum. Við erum því í raun að setja
þar upp sex til sjö leikrit í hverjum
mánuði. Við reynum að hafa ekki
sömu leikarana á milli þátta sem
kallar á marga þátttakendur. Einn-
ig ætlum við að setja upp eina stóra
sýningu eftir áramót en það liggur
ekki ennþá ljóst fyrir hvað það
verður,“ segir Sigríður Lára.
Þorgeir bætir því við að tekin hafi
verið upp frá síðasta leikári sýning
sem heitir Systur og er nú sýnd í
Möguleikhúsinu. „Hún gekk af-
skaplega vel í fyrra og við ákváðum
að bjóða upp á nokkrar sýningar
líka núna. Verkið skrifaði Þórunn
Guðmundsdóttir. Þetta er fjöl-
skyldudrama með kómísku ívafi.“
Leikhópurinn hefur farið víða um
lönd og sett upp sýningar og á
þessu ári var t.a.m. farið með sýn-
ingu í langa leikferð til Rússlands
og aðra sýningu til Færeyja í sam-
starfi við Leikfélag Kópavogs. Hóp-
urinn hefur einnig farið til Litháens
og fleiri landa með sýningar.
Nánar er hægt að kynna sér
starfsemi Hugleiks á www.hugleik-
ur.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söngleikur Hugleikur sýndi söngleikinn Kolrössu árið 2002 sem fékk góðar viðtökur áhorfenda. Nú í vetur sýnir leikfélagið m.a. leikverkið Systur og frumsýnir eitt stórt verk eftir áramót.
Drifkraftur og sköpun hjá Hugleik
Áhugaleikfélagið Hugleikur hefur starfað af krafti síðan árið 1984 og telur nú um 120 félagsmenn
dómur