Morgunblaðið - 15.10.2006, Síða 72

Morgunblaðið - 15.10.2006, Síða 72
MARY LOU FALLIS OG PETER TIEFENBACH Í SALNUM Heimsókn prímadonnunnar Mary Lou Fallis og meðleikara hennar, Peter Tiefenbach, í Salinn vorið 2005 er ógleymanleg öllum viðstöddum. Nú snúa þau aftur með nýja og bráðfyndna efnisskrá. Föstudaginn 20. október kl. 20 Miðasala og nánari upplýsingar á www.salurinn.is og í síma 5 700 400 A P al m an n at e n g sl / H 2 h ö n n u n 72 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning GUÐMUNDUR Karl er menntaður í myndlistinni, við Myndlistarskólann í Reykjavík, Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands, Listaháskóla í Flór- ens, og Listaháskóla í Barcelona. Hann hefur sýnt list sína allt frá átt- unda áratugnum, bæði hér heima og erlendis. Nú sýnir hann fjölda olímál- verka og nokkrar vatnslitamyndir í sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur. Guðmundur er augljóslega undir áhrifum frá Kjarval og fleiri íslensk- um landslagsmálurum á fyrri hluta síðustu aldar en myndefni hans á þessari sýningu er landslag, oftast með hrauni. Jafnvel má þekkja kunn- uglegt mótíf á borð við sjónarhorn Fjallamjólkur í málverkum Guð- mundar og það getur í sjálfu sér ver- ið áhugavert að reyna sig við svo þekktar stærðir innan myndlist- arinnar. En það er varla sanngjarnt að bera nokkurn málara saman við Kjarval og skal það heldur ekki gert hér. Í sal Orkuveitunnar raðar Guð- mundur stórum málverkum mjög þétt á veggi, allir veggir eru þaktir til hins ýtrasta og um leið eru flestar myndirnar nokkuð keimlíkar hvað varðar myndefni, uppbyggingu, vinnuaðferð og litaval, þannig eru nokkuð bjartir, bleikir og allt að því sætir litir áberandi innan um. Ef til vill hefði að ósekju mátt fækka myndum á sýningunni, þannig hefði skapast meira andrúm í kringum málverkin. Guðmundur leitast við að birta náttúruna sem lifandi afl eftir sannri íslenskri hefð og mannsandlit, líkamar og svipir gægjast all- greinilega fram úr mörgum steinum og klettum. Markmið listamannsins er augljóslega að mála innan hefð- bundins íslensks landslagsmálverks eins og við þekkjum það frá síðustu öld, málverk af þessum toga prýða fjölmörg heimili á landinu og eiga sinn sérstaka sess í íslenskri menn- ingu. Þar sem frumleiki eða persónu- leg sýn er ekki aðalmarkmiðið er heldur tæpast hægt að brigsla verk- unum um skort á slíku. Nálgun lista- mannsins og afstaða hans til náttúr- unnar eiga sér samhljóm innan íslenskrar alþýðulistar, og séu verkin skoðuð sem slík eiga þau þar sinn ágæta sess. Þó er vart hægt að flokka málverk svo lærðs og reynds listamanns sem alþýðulist því þá er yfirleitt átt við myndverk ólærðra listamanna. Ef til vill má fara hér bil beggja og tala um alþýðlega list. Vatnslitamyndir listamannsins leit- ast á nokkuð persónulegri máta við að fanga náttúru landsins og nú eru álfar og tröll víðs fjarri, hér sýnist mér sem léttleiki vatnslitanna komi verkunum til góða. Sýningar á vegum Orkuveitunnar hafa verið ærið fjölbreyttar, þar hef- ur mátt sjá bæði framsækna mynd- list, hönnun og alþýðlega list. Slík fjölbreytni getur verið af hinu góða en mikilvægt er að endurskoða sýn- ingarstefnu og markmið sýning- arsala reglulega eigi þeir að halda dampi yfir lengri tímabil. Í fótspor feðranna MYNDLIST Listasalur Orkuveitunnar Guðmundur Karl Ásbjörnsson Út októbermánuð. Opið mán. til fös. frá kl. 8:30-16. Aðgangur ókeypis. Málverk Landslag „Guðmundur er augljóslega undir áhrifum frá Kjarval og fleiri íslenskum landslagsmálurum á fyrri hluta síðustu aldar,“ segir í dómnum. Ragna Sigurðardóttir Hinn virti blaðamaður DavidFricke frá bandaríska tónlist- artímaritinu Rolling Stone mun heimsækja Iceland Airwaves- hátíðina annað árið í röð en hátíðin hefst í næstu viku. Fricke lýsti Airwaves-hátíðinni sem flottustu tónlistarhátíðinni í bransanum í um- fjöllun sinni um hátíðina á síðasta ári. Var hann bæði hrifinn af þeim ís- lensku listamönnum sem þar komu fram og þeim erlendu listamönnum sem hann var þar að kynnast í fyrsta sinn. Í grein sinni um Airwaves í fyrra fer David lofsamlegum orðum um framkomu Ghostigital, Benna Hemm Hemm, My Summer as a Salvation, Apparat Organ Quartet, Kira Kira, Daníels Ágústs og Jak- obínarínu á hátíðinni. Þessir lista- menn spila allir aftur á Iceland Airwaves í ár. Fólk folk@mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.