Morgunblaðið - 04.02.2007, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.02.2007, Qupperneq 38
vísindi 38 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ                                         !  "  #$$  %  &"  '' ( ! )*$$ ( +*,$                 -  *        !  "# $    % &  ' %  ! ( )&      *& "+&    , -, ! (   %, .  /,-   . '     +, 0   &,   1   ,    2+   & ,    ! ( 3444#1# 5    , 36'75 88  9  !        2+     ,    Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur rsv@mbl.is Stjarneðlisfræðingar eru ekki margir hér á landi, en nú ber svo við að tveir ungir menn hafa nýlokið doktorsprófi í faginu, annar frá Háskóla Íslands og hinn frá Háskólanum í Kaup- mannahöfn. Í þeirri borg er ung íslensk kona að vinna að dokt- orsrannsóknum sínum í faginu í þessum rituðum orðum. Karl- arnir tveir hafa heillast af gammablossum, en konan einbeitir sér fyrst og fremst að þyngdarlinsum. Þessi orð, gammablossar og þyngdarlinsur, segja leik- mönnum fátt. Gunnlaugur Björnsson, stjarneðlisfræðingur og vísindamaður á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, lýsti gammablossum svo í samtali við Morgunblaðið árið 1999 að þeir væru öflugar sprengingar sem yrðu langt úti í alheimi og sæjust einstaka sinnum frá jörðu. „Fyrstu vísbendingar um þessi fyrirbæri komu í kalda stríðinu rétt fyrir 1970,“ sagði Gunnlaugur. „Þá sendu Bandaríkjamenn á braut gervitungl til að fylgjast með gammageislun sem verður samfara tilraunum með kjarnorkuvopn, en gammageislar eru líkir röntgen- geislum, bara mun orkumeiri. Tilgangurinn var að fylgjast með því hvort slíkar tilraunir færu fram á jörðinni í trássi við sáttmála. Mælingar sem þessi gervitungl gerðu bentu til til- vistar slíkrar gammageislunar en þegar betur var að gáð kom geislunin úr öfugri átt – utan úr geimnum.“ Gunnlaugur er einn þeirra íslensku stjarneðlisfræðinga sem notið hafa leiðsagnar fyrsta og eina prófessorsins í stjarneðl- isfræði við Háskóla Íslands, Einars H. Guðmundssonar. Einar ritaði grein í Morgunblaðið árið 1997, ásamt Örnólfi E. Rögn- valdssyni, þar sem þyngdarlinsum var lýst. „Samkvæmt al- mennu afstæðiskenningunni hefur allt efni áhrif á ljós með þyngd sinni. Þannig geta til dæmis stjörnur, svarthol, vetr- arbrautir og hópar vetrarbrauta sveigt ljósgeisla af upp- haflegri braut og bjagað, magnað og klofið myndir af fjarlæg- ari ljósuppsprettum, rétt eins og um venjulegar linsur væri að ræða. Slík fyrirbæri eru því nefnd þyngdarlinsur. Hópur vetr- arbrauta getur til dæmis mótað og magnað tvær eða fleiri myndir af daufri vetrarbraut, sem er handan við hópinn. Mynd- irnar eru venjulega ílangar og stundum bogadregnar.“ Ungu íslensku stjarneðlisfræðingarnir, Árdís Elíasdóttir, Guðlaugur Jóhannesson og Páll Jakobsson, hafa greinilega val- ið sér verkefni sem eru ekki á allra færi. Þau eru sammála um að rannsóknir þeirra séu grunnrannsóknir og hagnýt not séu ekki í sjónmáli. En enginn sér framtíðina fyrir, ekki einu sinni þeir sem rýna til stjarnanna. Horft upp í himinhvolfið Ég hef verið hugfanginn afhimingeiminum frá því aðég man eftir mér. Með fyrstu bernskuminningum eru sam- ræður við afa um norðurljósin, tunglið, flóð og fjöru. Ég hef líklega fæðst með þetta gen. Það var aldrei nein spurning hvað ég vildi fást við þegar ég yrði stór,“ segir Páll Jak- obsson, sem lauk doktorsprófi í fag- inu frá Kaupmannahafnarháskóla sumarið 2005. Þegar hann hóf námið var hann stundum spurður hvort hann væri virkilega að læra þetta í háskóla. „Sumir rugluðu þessu saman við stjörnuspeki. Mér finnst raunar synd að vísindin skuli ekki hafa náð að halda því heiti, því það hljómar ekki sem verst.“ Páll, sem stendur á þrítugu, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og lagði því næst stund á eðlisfræði við Háskóla Íslands. Að loknu BS-prófi hélt hann til Kaup- mannahafnar. „Við háskólann í Kaupmannahöfn er einn fremsti rannsóknarhópur heims á þessu sviði,“ segir hann. Hasar í mælingum Þótt Páll hafi í bernsku rýnt upp í himininn þá beinast rannsóknir hans núna langt út fyrir okkar vetrarbraut. „Ég fæst aðallega við mælingar á gammablossum og síð- astliðið vor fékk ég 3½ árs stöðu sem sérfræðingur við háskólann í Hertfordshire á Englandi.“ Gervitungl á braut um jörðu nema geislun frá gammablossum og senda skilaboð til jarðar. „Ég fæ skilaboð í gemsann minn um leið og gervitunglin nema geislunina,“ seg- ir Páll. „Það getur auðvitað gerst hvenær sem er, að nóttu eða degi. Að meðaltali eru blossarnir tveir á viku, en stundum þrír á dag. Það fyrsta sem ég geri er að kanna hvar á himinhvolfinu blossinn er og hvaða sjónauka sé heppilegast að nota til að gera athuganir á honum. Norræni stjörnusjónaukinn á Kan- aríeyjum spannar til dæmis norð- urhvelið, en þyrping fjögurra 8 metra sjónauka í Chile suð- urhvelið.“ Stundum rýkur Páll á fætur um miðjar nætur eftir sms frá gervi- tunglum, fer inn á heimasíður sjón- aukanna og fyllir út beiðni um að beina þeim að blossunum. „Ég verð að hafa hraðar hendur, því stundum hafa fleiri rannsóknarhópar fengið úthlutað sama tíma í sjónaukanum og þá er sá afgreiddur fyrst sem er fljótari að koma beiðninni á fram- færi. Það er því oft mikill hasar í þessu. Blossarnir ráða auðvitað vinnutímanum, enda ómögulegt að spá fyrir um hvenær þeir eiga sér stað.“ Þegar gögnin berast frá sjónauk- anum mælir Páll m.a. birtustigið. „Við rannsökum glæður, sem eru í sýnilegu ljósi og með því að mæla ljósdofnun glæðanna yfir ákveðið tímabil getum við sagt til um nán- asta umhverfið gammablossans, eða öllu heldur risastjörnunnar sem sprakk. Við fylgjum þessum glæð- um venjulega eftir í u.þ.b. viku til mánuð, eftir því hversu bjartar þær eru. Við mælum líka litróf, sem ger- ir okkur kleift að ákvarða fjarlægð- ina til blossans. Að lokum berum við mæliniðurstöðurnar saman við hin ýmsu líkön og getum þannig hafnað eða rennt stoðum undir kenningar annarra sem vinna í fag- inu.“ Páll á ekki von á að skreppa út í geim, þótt hann myndi ekki slá hendinni á móti ferð til Mars. „Slík- ar ferðir verða áreiðanlega eftir mína tíð, kannski eftir 30 ár í fyrsta lagi. Kannski að sonurinn fari.“ Sonurinn er reyndar nýfæddur, svo hann hefur tímann fyrir sér. Og þegar hann fæddist reyndist fað- irinn ágætlega í stakk búinn til að sinna honum, eftir vöktunina á gammablossunum. „Ég er vanur að spretta upp úr rúminu þegar ég fæ sms, núna geri ég það ef heyrist grátur.“ Þyngdarbylgjur heilla Hann hyggst starfa við rann- sóknir alla ævi. „Ég get ekki hugs- að mér annað. Núna eru rannsóknir á gammablossum mjög spennandi, en ég get alveg ímyndað mér að ég snúi mér að einhverju öðru eftir 5– 10 ár. Ætli þyngdarbylgjur verði ekki mest spennandi þá?“ Talið er að miklar hamfarir, eins og til dæmis árekstur og samruni tveggja svarthola, myndi truflun sem breiðist út með þyngdarhraða líkt og gárur á vatni. Þessar bylgj- ur kallast þyngdarbylgjur. Þær hafa aldrei greinst í tilraunum, en núna er verið að byggja þyngd- arnema víða um heim. „Eftir um áratug verða einnig þrjú mjög næm gervitungl send á loft og verður að telja líklegast að þau nái að greina bylgjurnar, ef þær eru á annað borð til.“ Stjarneðlisfræði er ekki þurr vís- indi, langt í frá, segir Páll. Að- spurður segir hann myndir af hin- um ýmsu fyrirbærum alheimsins vera ægifagrar og mestu listaverk sem hægt er að hugsa sér. „Svo þarf ekki annað en að vippa sér út fyrir bæjarmörkin á stjörnubjartri nótt til að njóta norðurljósanna eða dást að slæðu Vetrarbrautarinnar.“ Morgunblaðið/ÞÖK Hugfanginn Páll Jakobsson stjarneðlisfræðingur hefur verið hugfanginn af himingeiminum frá því að hann man eftir sér. Vakinn með sms frá gervitungli ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.