Morgunblaðið - 04.02.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 55
FRÉTTIR
Í tilefni af útgáfu á Sælureit 2007 efnir Húsasmiðjan til
samkeppni af bestu myndinni af „Sælureit“, mynd sem
sýnir uppáhaldsstaðinn þinn í garðinum eða pallinum.
Veitt verða vegleg verðlaun fyrir 5 bestu myndirnar að
mati dómnefndar, og að auki munu bestu myndirnar
birtast í Sælureit 2007.
Á heimasíðu okkar www.husa.is má nálgast upp-
lýsingar um það hvernig þú sendir okkur myndir af
Sælureitnum þínum.
af „Sælureit“
Áttu mynd
AF TILEFNI 10 ára afmælis Borg-
arholtsskóla var stefnt að því, í
samvinnu við ABC barnahjálp, að
safna a.m.k. 2,5 milljónum króna til
byggingar skóla í bænum Jaram-
wala í Pakistan. Nú hafa safnast 2,4
milljónir svo takmarkinu er nánast
náð. En ef einhver vill leggja mál-
efninu lið minnum við á banka-
reikning söfnunarinnar sem er:
1155-15-41414 kennitala 690688-
1589.Söfnun Ungir nemendur við skóla í bænum Jaramwala í Pakistan.
Safna fyrir
skóla í
Pakistan
RÁÐSTEFNAN „Er veraldavef-
urinn völundarhús?“ verður haldin á
Alþjóðlega netöryggisdeginum hinn
6. febrúar nk. í sal Íslenskrar erfða-
greiningar á Sturlugötu 8. Ráð-
stefnan hefst kl. 15 með ávarpi
Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra. Ráðstefnan er öllum
opin en hún verður einnig send út
beint af Netinu á www.saft.is.
Meðal fyrirlesara er Anna Kirah
sem starfað hefur sem yfirhönnuður
hjá Microsoft ásamt því að vera rekt-
or alþjóðlegs háskóla í Kaupmanna-
höfn, 180 Academy. Hjá Microsoft
hefur hún stjórnað alþjóðlegu rann-
sóknarstarfi með það að markmiði
að hafa áhrif á vöru- og þjón-
ustuþróun Microsoft með notkun og
þarfir notandans í huga, m.a. borið
ábyrgð á þróun MSN.
Aðrir fyrirlesarar eru Johnn Ken-
nedy, framkvæmdastjóri Int-
ernational Federation of Phonogra-
pich Industry, sem m.a. mun fjalla
um málefni tengd höfundarrétti og
Netinu, Eiríkur Tómasson lagapró-
fessor og Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Símans. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra setur ráðstefn-
una og fundarstjóri er Hallgrímur
Kristinsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá Samtökum banda-
rískra kvikmyndaframleiðenda.
„SAFT, vakningarverkefni Heim-
ilis og skóla um jákvæða og örugga
netnotkun barna og unglinga á Net-
inu og tengdum miðlum, hefur á síð-
ustu árum staðið fyrir viðburðum á
Alþjóðlega netöryggisdeginum, sem
nú er haldinn í fjórða sinn. Í ár taka
um 40 lönd um allan heim þátt í deg-
inum. SAFT, Síminn, Microsoft,
SMÁÍS og Samtónn boða til ráð-
stefnu um skynsamlega notkun og
örugg samskipti á Netinu á Al-
þjóðlega netöryggisdeginum í ár.
Meðal markmiða ráðstefnunnar
er að vekja umræður og umhugsun
um Netið sem opinberan vettvang
og gagnvirkan fjölmiðil, nauðsyn
þess að almennt siðferði og um-
gengnisreglur færist yfir á þennan
miðil og að samfélagið og stjórnvöld
bregðist við gjörbreyttum aðstæðum
í upplýsingasamfélaginu,“ segir í
fréttatilkynningu.
Er veraldar-
vefurinn
völundarhús?
LETTERSTEDTSKI-sjóðurinn hef-
ur það hlutverk að styrkja norrænt
samstarf og samstarf við Eystra-
saltsríkin á sviði rannsókna, lista,
vísinda og fræða. Íslandsdeild
sjóðsins hefur auglýst eftir um-
sóknum um styrki úr sjóðnum árið
2007 og er umsóknarfrestur til 15.
febrúar nk.
Ekki er um eiginlega námsstyrki
að ræða, heldur koma þeir einir til
greina, sem lokið hafa námi og
hyggja á frekari rannsóknir eða
þekkingarleit á starfssviði sínu, svo
sem við rannsóknir á vísinda- eða
fræðastofnun eða með þátttöku í
fundum eða ráðstefnum, segir í
fréttatilkynningu.
Upplýsingar um sjóðinn og styrk-
veitingar úr honum er og að finna á
slóðinni: www.letterstedtska.org.
Ferðastyrkir
Letterstedtska-
sjóðsins
MEISTARAMÓT Hellis 2007 hefst á
morgun, mánudag, klukkan 19 en
mótið er opið kappskákmót í sjö
umferðum. Skv. upplýsingum móts-
haldara verða vegleg og fjölbreytt
verðlaun í boði á mótinu, sem er öll-
um opið og er það reiknað til al-
þjóðlegra skákstiga. Allt stefni í
góða þátttöku og eru 20 keppendur
nú skráðir til leiks, þar af Björn
Þorfinnsson, sexfaldur skákmeist-
ari félagsins, og Davíð Ólafsson,
sem sigraði á meistaramóti félags-
ins 2002, með fullu húsi vinninga.
Teflt er á mánu-, miðviku- og
föstudögum en hlé gert á mótinu
vikuna 14.–21. febrúar vegna Norð-
urlandamótsins í skólaskák.
Búist við góðri
þátttöku á
meistaramóti
Hellis
RÖSKVA – samtök félagshyggju-
fólks við Háskóla Íslands – boðar
til fundar um stöðu hugvís-
indadeildar í hádeginu á mánu-
daginn 5. febrúar, kl. 12–13.10, í
stofu 423 í Árnagarði. Hugvís-
indadeild er sú deild sem er neðst
flokkuð í reiknilíkani mennta-
málaráðuneytisins. Það þýðir að
peningar sem deildin fær úthlutað
eru alltaf af mjög skornum
skammti; hún er fjársveltasta
deild skólans, segir í frétt frá
Röskvu.
Þess vegna boðar Röskva til
málfundar um hugvísindadeild.
Fundarstjóri verður Hrönn Guð-
mundsdóttir heimspekinemi, sem
einnig skipar 2. sæti á lista
Röskvu til stúdentaráðs. Þau
Hólmfríður Garðarsdóttir úr skor
rómanskra og slavneskra mála, og
Gauti Kristmannsson þýðingafræð-
ingur ræða stöðu deildarinnar. Í
framhaldinu verða almennar um-
ræður.
Ræða stöðu
hugvísinda-
deildar
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111