Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 5

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 5
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags r Olafur Arnalds og Sigmar Metúsalemsson Sandfoká SUÐURLANDI 5. OKTÓBER 2004 Sandar á íslandi eru náttúrufyrirbæri sem eiga sér varla sinn líka. Sandar gerðir af gosefnum eru fremur fátíðir og basísk efnasamsetning íslenskra sandauðna eykur enn á sérstöðuna. Auðnir í fremur röku og svölu loftslagi á norðurslóðum eru einnig sérstæð fyrirbæri ef miðað er við veðurfar á öðrum eyðimerkursvæðum. Greint var frá uppruna, eðli og sérstöðu íslenskra sandsvæða í grein sem birt var í Joumal of Arid Environments.1 Yfirborð sandauðna er óstöð- ugt og vindrof getur orðið mjög mikið, mun meira en flestir gera sér í hugarlund. Mýrdals- sandur og Landeyjasandur em góð dæmi um sanda þar sem gífurlegt sandfok getur átt sér stað. Þartn 5. október 2004 gerði mikið norðan- veður með foki á söndum Suður- lands. Klukkan 13:40 tók einn gervi- hnatta bandarísku geimvísinda- stofnunarinnar (NASA) þessa ein- stæðu mynd af suðurhluta landsins (1. mynd, sjá einnig forsíðu). A henni sjást sandstrókar berast langt suður í höf, meira en 400 kílómetra leið. Áhrifasvæði sandanna er gríðarlega stórt í þessum stormi. Vindur var um 20 m/sek af hánorðri þegar myndin var tekin og nokkra klukkutíma þar á undan samkvæmt mæli á Mýr- dalssandi. Haraldur Ólafsson fjallar nánar um vinda í þessu veðri í annarri grein í þessu hefti Náttúm- fræðingsins.2 Fokið yfir hafi sést vel en ekki eins glöggt yfir landi. Greina má sandfok allt vestan frá Ölfusárósi austur undir Ingólfshöfða. Mestur er strókurinn af Mýrdalssandi, en miklir strókar standa einnig af Landeyjasandi, Meðallandsfjörum og Skeiðarársandi og sandfok er af nánast öllum fjömm austan Mýr- dalsjökuls svo langt sem myndin nær. Þá virðist efni berast ofan af hálendinu austan Mýrdalsjökuls. At- hygli vekur hve upptök foksins em víða vel afmörkuð, eins og greini- legast kemur fram á Mýrdalssandi en þar em upptökin austan Hafurs- eyjar. I stormum sem þessum verður sandurinn ófær bílum. Mælingar hafa sýnt að við þær aðstæður sem ríktu á Mýrdalssandi þennan dag getur magn fokefnis sem er á ferð yfir einum lengdar- metra lands numið nokkmm tonn- um á klukkustund (jafnvel >10 t). Mest af efninu skokkar með yfir- borðinu neðan 30 cm hæðar (saltation). Magn fokefnis sem berst yfir hafflötinn er mun minna, oft er það 10-30% af heildarfokinu. Efnið dreifist yfir stórt svæði og fínasta efnið berst um lengstan veg. Svæði með suðurströnd landsins sem fauk af þann 5. október nam tugum kílómetra að breidd, og því er ljóst að efnismagnið sem þama barst út yfir hafið á einum degi var gríðar- lega mikið. jARÐVEGSMÓTUN Myndin sýnir vel áfok sem er sá þáttur sem einna helst mótar ís- lenskan jarðveg. Afok frá auðnum, sérstaklega sandauðnum, berst í yfirborð nánast alls jarðvegs á Islandi, mest næst gosbeltinu og auðnum Náttúrufræðingurinn 72 (3-4), bls. 90-92, 2004 91

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.