Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
64° 25’
64° 20’
64° 15’
22° 00’
21° 40’
21° 20’
2. mynd. Sýnatökustöðvar í Hvalfirði, par sem sýmim afkræklingi og svifpörungum var
safnað 27 sinnum á tímabilinu fébrúar til nóvember árið 1997. - Sampling stations in
Hvalfjörður southwest Iceland. At each station samples were taken at 27 dates dispersed
throughout the year 1997.
Enn aðrir telja einfaldlega að aukin
þekking á þessu sviði og stóraukið
eftirlit valdi því að við verðum oftar
en áður vör við blóma skaðlegra
þörunga. Hver sem ástæðan er, þá
valda eiturþörungar miklum skaða í
heiminum um þessar mundir og
virðist vandinn fara vaxandi.
Samfara vaxandi umsvifum í
fisk- og skeldýraeldi hafa á undan-
förnum árum verið gerðar síauknar
kröfur um eftirlit með vexti eitraðra
þörunga og eitrun af þeirra
völdum. Á það einnig við hér á
landi.12 Þekking á eitruðum teg-
undum hefur aukist gífurlega og
nýjar aðferðir hafa komið fram til
að greina eiturefnin. Undanfarna
áratugi hefur einnig uppgötvast
eitur í fleiri og fleiri tegundum
svifþörunga. Nýjar gerðir þörunga-
eiturs eru einnig að finnast og æ
oftar er tilkynnt um eiturþörunga-
blóma.8
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐl R
Rannsóknarsvæði og sýnataka
Til þess að rannsaka framvindu svif-
þörungagróðurs í Hvalfirði var
safnað sýnum á tveimur stöðvum
innarlega í firðinum (2. mynd). Stað-
setning stöðvanna var m.a. valin
með tilliti til útbreiðslu og þéttleika
kræklings og var þá stuðst við niður-
stöður úr athugunum Guðrúnar G.
Þórarinsdóttur á útbreiðslu krækl-
ings í Hvalfirði sem gerðar voru árið
1994.13 Einnig var haft í huga hvar í
Hvalfirði fólk tínir sér helst krækling
til matar. Stöð 1 er á móts við Fossá
þar sem botndýpi er 10 m. Stöð 2 er
út af Bjarteyjarsandi en þar er botn-
dýpi 15 m. Á stöð 1 voru sýni tekin á
2 m og 7 m dýpi en á stöð 2 á 2 m og
12 m dýpi.
Á tímabilinu 6. febrúar til 11. nóv-
ember 1997 voru famir 27 leiðangrar
í Hvalfjörð til sýnatöku. Safnað var
vikulega frá apríl til loka september
en í upphafi og lok sýnatökutímans
leið lengra á milli sýnatöku.
Sjósýnum var safnað með 1,7 lítra
sjótaka á um 2 m dýpi. Ur sjótökun-
um vom tekin sýni til mælinga á
næringarefnum, blaðgrænu, seltu og
til greininga og talningar á svif-
þömngum. Hiti, selta og blaðgrænu-
styrkur vom mæld samfellt frá yfir-
borði niður að botni með síritandi
mælitæki, sondu. Á báðum stöðvum
voru tekin háfsýni til tegunda-
greininga með svifþörungaháf, með
20 pm möskvastærð.
Við veiðar á kræklingi var notuð
lítil þríhyrnuskrapa. Skrapan var
dregin á lítilli ferð eftir botni þar sem
líklegt þótti að búsvæði kræklings
væru. Hún var dregin á 5-6 m dýpi
nálægt stöðvunum tveimur þar sem
þömngum var safnað. Kræklings-
sýnin vom fryst um leið og komið
var í land.
Meðhöndlun gagna
og mæliaðferðir
I sjósýnum voru auk blaðgrænu
mæld næringarefnin nítrat (NO3),
fosfat (P043 ), silíkat (Si02), ammón-
íum (NH4+), heildarköfnunarefni og
heildarfosfór. Nánari lýsingu á með-
höndlun þeirra sýna og greiningu er
að firtna í ritgerð Agnesar Eydal um
framvindu svifþömnga í Hvalfirði.1
Háfsýni vom skoðuð í smásjá og
þörungarnir í sýninu greindir til
tegunda. Við mat á þéttleika svif-
þömnganna vom þörungar úr 50 ml
sjósýni látnir setjast á smásjárgler og
þeir taldir í smásjá.14
Með hliðsjón af niðurstöðum svif-
þömngatalninga var ákveðið í hvaða
kræklingasýnum þörungaeitrun
skyldi mæld með svokölluðu músa-
prófi.15 Prófið fólst í því að þykkni
sem unnið var úr kræklingnum var
sprautað í mýs og fylgst með
hvemig þeim reiddi af.
N IÐURSTÖÐUR
Gróðurframvindan í Hvalfirði
Árið 1997 var gróðurframvinda í
Hvalfirði á þá leið að í kjölfar seltu-
lagskiptingar í byrjun apríl jókst
gróðurmagnið verulega og náði
hámarki síðar í apríl og í byrjun maí
(3. mynd). Síðan skiptust á gróður-
toppar og -lægðir fram á haustið. 1
grófum dráttum má segja að um fjóra
gróðurtoppa hafi verið að ræða, í
apríl-maí, júní, júlí og i ágúst-
september. Sveiflur í gróðurmagn-
inu voru áþekkar á athugunar-
stöðvunum tveimur. Gróðurmagnið
féll síðan hratt í september og var í
lágmarki fram á vetur.
1 lok mars varð fyrst vart við kísil-
þörunga og seinni hluta apríl var
talsvert af þeim í Hvalfirði (4.
mynd). I júlí varð fjöldi kísilþörunga
mestur (600-1500 þúsund fmmur í
lítra). í byrjun ágúst hurfu þeir
nánast alveg úr svifinu en birtust á
99