Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 15
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
ný í talsverðum mæli í lok ágúst.
Þeim fækkaði síðan smám saman og
voru að mestu horfnir úr svifinu í
bynun október.
I innanverðum Hvalfirði varð
skoruþörunga vart í apríl-maí (5.
mynd). Þeim fjölgaði talsvert í júlí og
náðu hámarki í byrjun ágúst. Eftir
það fækkaði þeim en þeir fundust þó
í svifinu allt fram í nóvember.
Eiturþörungar
I Hvalfirði fundust nokkrar tegundir
svifþörtmga sem vitað er að geta
valdið skelfiskeitrun. Það voru
skoruþörungamir Dinophysis acumin-
ata, Dinophysis acuta, Dinophysis
norvegica og Phalacroma rotundatum,
sem allar geta valdið DSP-eitrun,
Alexandrium ostenfeldii og Alexand-
rium tamarensis, sem geta valdið PSP-
eitrun, og loks kísilþörungarnir
Pseudo-nitzschia pseudodelicatissima og
Pseudo-nitzschia seriata, en þeir geta
valdið ASP-eitrun (1. tafla). Aðeins
tvær þessara tegunda, D. norvegica (6.
mynd) og P. pseudodelicatissima (7.
mynd), fundust í umtalsverðum
mæli, en hinar vom allar sjaldgæfar.
Athygli vekur að tegundir sem geta
valdið skelfiskeitmn vom í svifinu í
Hvalfirði nánast allt árið.
Skoruþörungurinn Dinophysis
norvegica fannst í miklum þéttleika í
júlí og ágúst á báðum stöðvum. A
stöð 1 við Fossá fór fjöldinn upp í
rúmar 12 þúsund fmmur í hverjum
lítra af sjó og yfir 11 þúsund fmmur
í lítra á stöð 2 (8. mynd). Þéttleiki D.
norvegica var oftast heldur meiri á
stöð 1 en 2.
6. mynd.
Skoruþörungurinn
Dinophysis
norvegica. -
The dinoflagellate
Dinophysis
norvegica.
'Sr-•
7. mynd. Kísilþörungurinn Pseudo-nitzschia pseudo-
delicatissima. - The diatom Pseudo-nitzschia pseudo-
delicatissima.
Þegar eitmðum þömngum fjölgar
vex hætta á eitrun af þeirra völdum.
Þegar meta skal hvort hætta sé á
ferðum og hvort ástæða sé til að vara
fólk við að borða skelfisk af tiltekn-
um svæðum er miðað við tiltekinn
þéttleika þörunga. Viðmiðunar-
mörkin em mismunandi eftir teg-
undum og geta einnig verið mis-
munandi eftir svæðum. Fyrir
Dinophysis norvegica er oftast miðað
við 1000 fmmur í lítra.16 Innst í Hval-
firði var þéttleiki D. norvegica yfir
1000 frumna mörkunum nánast á
öllu tímabilinu frá miðjum júní þar
til um miðjan október (8. mynd).
Kísilþörungsins Pseudo-nitzschia
pseudodelicatissima varð fyrst vart í
svifinu seinni hluta maí, en honum
fór ekki að fjölga að ráði fyrr en í
byrjun júlí með hámarki 21. júlí á
báðum stöðvum; 435 þúsund og 255
þúsund fmmur í lítra á stöðvum 1
og 2 (9. mynd). Tegundin fannst ekki
í fyrri hluta ágústmánaðar en í lok
ágúst birtist hún aftur og fannst öðm
hverju eftir það þar til rannsóknun-
um lauk í nóvember. Viðmiðunar-
mörk fyrir hættu á eitrun af völdum
P. pseudodelicatissima em 100 þúsund
frumur í lítra!6 Fjöldi P. pseudo-
delicatissima í Hvalfirði fór langt yfir
þessi viðmiðunarmörk og varð
mestur um 435 þúsund fmmur í lítra
en aðeins í stuttan tíma.
Eitur í kræklingi
Athuganir vom gerðar á þömnga-
eitri í kræklingi, sem var safnað
samhliða þömngunum eins og áður
hefur komið fram. Kræklingi var
safnað við báðar stöðvamar. Ein-
ungis var mælt eitur í kræklingi þá
* getur valdið DSP-eitrun
** getur valdið PSP-eitrun
*** getur valdið ASP-eitrun
'3
L_
(D
maí c 4—l (/) '3 4—1 CL 4-ú >
Q. CT> QJ 'O
(O i ■■—i 'íU 01 o £=
Dinophysis acuminata*
Dinophysis acuta *
Dinophysis norvegica*
Phalacroma rotundatum*
Alexandrium ostenfeldii**
Alexandrium tamarensis**
Pseudo-nitzschia pseudodelicatissima
Pseudo-nitzschia seriata***________
DSP-eitrun af kræklingi árið 1997
1. tafla. Svifþörungategundir sem fundust í Hvalfirði 1997 og vitað er að geti valdið
skelfiskeitrun. Græni liturinn í töflunni sýnir hvenær árs eiturþörungarnir fundust í
svifinu. Rauður litur sýnir þá mánuði sem DSP-eitrun mældist í kræklingi.- Toxic
marine phytoplankton species found in Hvalfjörður during 1997. The green colour
shows the seasonal occurrence of the respective potentially toxic species. Red colour
indicates ivhen diarrhetic shellfish poisoning was above safety limits in Mytilus edulis.
101