Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 16
Náttúrufræðingurinn 8. mynd. Þéttleiki Dinophysis norvegica i yfirborði sjávar á athugunarstöðvum í Hvalfirði árið 1997. Rauða strikalínan sýnir viðmiðunarmörk fyrir hættu á DSP-eitrun sem notuð eru víða í Norður-Atlantshafi. - Density of Dinophysis norvegica in the surface layer at the sampling stations in Hvalfjörður in 1997. The broken red line shows concentration limit above which there is considered to be a potential risk ofDSP. ni H 3 S £ T3 G G '3 xx úr vexti þörunganna (3. mynd). Það voru kísilþörungar sem fyrst birtust um vorið (4. mynd). Þeir náðu miklum fjölda og mynduðu svo- kallaðan vorblóma í apríl og maí. Þegar styrkur næringarefna minnk- aði, í byrjun sumars, urðu smáir svipuþörungar ríkjandi ásamt smá- vöxnum kísilþörungum, svo sem Skeletonema costatum og Pseudo- nitzschia pseudodelicatissima, auk ýmissa skoruþörunga1 (5. mynd). Hliðstæð gróðurframvinda hefur fundist í fjörðum vestanlands.10 Fyrir austan land virðist gróður hins vegar fara talsvert seinna af stað á vorin, en árstíðabreytingar eru að öðru leyti svipaðar.11 Eins og fram hefur komið þá fundust í Hvalfirði nokkrar tegundir sem vitað er að geta valdið skelfisk- eitrun. Allt eru það tegundir sem algengar eru í sjó við Island. Hér á eftir verður rætt nánar um þær tvær eiturmyndandi tegundir sem fund- ust í mestum þéttleika í Hvalfirði; skoruþörunginn Dinophysis norveg- ica og kísilþörunginn Pseudo-nitz- schia pseudodelicatissitna. Dinophysis norvegica 9. mynd. Þéttleiki Pseudo-nitzschia pseudodelicatissima í yfirborði sjávar á athugunarstöðvum í Hvalfirði Arið 1997. Rauða strikalínan sýnir viðmiðunarmörkfyrir hættu á ASP-eitrun setn notuð eru víða í Norður-Atlantshafi. - Density of Pseudo- nitzschia pseudodelicatissima in the surface layer at the sampling stations in Hvalfjörður in 1997. The broken red line shows concentration limit above which there is considered to be a potential risk ofASP. daga sem þéttleiki eiturþörunga var það mikill að hætta var talin á að kræklingur væri eitraður. Valin voru 13 kræklingssýni frá stöð 1 við Fossá og sjö sýni frá stöð 2 við Bjarteyjarsand til mælinga á DSP-eitrun (2. tafla). Ekki þótti ástæða til að mæla PSP- né ASP- eitrun. Þær tegundir sem geta valdið PSP- eða ASP-eitrun náðu ekki þeim fjölda eða stóðu það stutt við að ekki var talin hætta á eitrun. Fyrst varð vart við DSP-eitrun í litlum mæli í byrjun júlí á stöð 1.1 lok júlí hafði hún aukist talsvert og var kræklingur, sem safnað var á stöð 1, óhæfur til neyslu frá lokum júlí þar til í nóvember þegar nokkuð hafði dregið úr styrk eitursins. Á stöð 2 var eitrun mæld á tímabilinu frá lokum júlí til loka september. Kræklingurinn var óneysluhæfur vegna eitrunar í fimm skipti sem dreifðust yfir allt tímabilið sem mælingamar náðu yfir. I tvö skipti, 8. ágúst og 13. september, mældist lítil eða engin eitmn, en þó mældist eitrun í báðum tilfellum aftur strax viku seinna. Umfjöllun Eins og áður sagði varð fyrst vart við svifþörunga í Hvalfirði um miðjan mars en aðalgróðurtímabilið stóð frá miðjum apríl og fram í miðjan sept- ember, þegar fór að draga verulega Blómi Dinophysis norvegica í Hval- firði varð í júlí og ágúst þegar hitastig var hæst í sjónum, eða um 11°C, og lagskipting stöðug.1 Dansk- ar rannsóknir á blóma Dinophysis norvegica sýna að hans er að vænta þegar hitastig sjávar er komið í 10-11°C.17 Aðrar athuganir á vexti Dinophysis spp. benda til þess að lagskipting sjávar skipti einnig máli og að Dinophysis spp. nái ekki að fjölga sér verulega fyrr en hún er orðin stöðug.18 I Hvalfirði greindist Dinophysis norvegica í sýnum frá því í júní og þar til rannsóknum lauk í nóvember. I fyrri athugunum í Hvalfirði varð tegundarinnar vart seinna og vöxtur hennar stóð skemur, eða frá því í júlí og þar til í byrjun september.19 Athuganir hafa verið gerðar á árs- tíðabreytingum á svifþörungagróðri í Isafjarðardjúpi og Eyjafirði,20 við Vestfirði10 og í Mjóafirði.11 Þær sýndu allar að Dinophysis tiorvegica 102

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.