Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags umar vom settar út 13. júlí og vom tæmdar á hálfs mánaðar fresti til loka nóvember. b. Til að meta fræframleiðslu eftir aldri lúpínu var 28 gildrum komið fyrir á Háamel í Heiðmörk. Þar var lúpína að breiðast út yfir lítt gróinn mel, en jafnframt byrjuð að gisna þar sem hún hafði fyrst verið sett um 1965." I júlíbyrjun var gildrum komið fyrir á 52 m löngu sniði sem náði frá gisnum elsta hluta breiðunnar, út í gegn- um jaðarinn og 11 m út á melinn fyrir utan breiðuna. Gildmmar vom settar niður á 14 mismunandi stöðum (tvær saman) og var not- að meðaltal tveggja gildra þegar fræfall var reiknað fyrir hvem stað. Gildrumar vom fjarlægðar 29. nóvember, eftir að fræfalli var lokið. c. Til að meta frædreifingu inn á svæði þar sem lúpína hafði hörfað var Sauðaás í Heiðmörk valinn. Þar var lúpínubreiða frá 1958 sem byrjaði að láta undan síga fyrir graslendi á árabilinu 1979-1987." I byrjun júlí vom lögð út tvö 40 og 20 m snið sem mættust á miðju því svæði sem lúpínan hafði hörf- að af en náðu inn í gisna lúpínu- breiðuna umhverfis. Gildrum var komið fyrir þannig að 10 gildmr vom í gisnum jaðri og lengra inni í lúpínubreiðunni, en 10 gildrur vom staðsettar á svæðinu sem lúpínan hafði hörfað af. Gildrum- ar vom fjarlægðar 29. nóvember. 1. mynd. Alaskaliípína í blótna - Floivering Nootka lupin. Ljósm./Photo:Bjarni Diðrik Sigurðsson. Hvað er fræforði og hvert er mikilvægi hans? í flestum gróðursamfélögum eiga sér stað hægfara breytingar á tegundasamsetningu, svokölluð gróðurframvinda. Jafnvel í hástigssamfélögum eru tegundir dauðadæmdar á ákveðnum stað þegar til lengri tíma er litið, nema þær geti numið land á nýjum stöðum.12 Plöntur geta dreift fræjum sínum á tvennan hátt: í rúmi og tíma. Margar tegundir hafa fræ sem eru vel aðlöguð því að berast langa leið með vindi, vatni eða dýrum. Þannig aukast líkur á að einhverjir afkomendur hitti á bletti sem eru hagstæðir fyrir vöxt og nái að þroskast þar. Frædvali er hinsvegar aðferð til að dreifast í tíma og hefur þróast hjá tegundum sem búa við óstöðug vaxtarskilyrði.12 Frædvali er tiltölulega óalgengur hjá plöntum í hitabeltinu, þar sem uinhverfisskilyrði breytast lítið, en verður að jafnaði algengari eftir því sem norðar dregur.13 Þannig getur planta aukið líkur á að afkomendur komist af með því að tefja komu þeirra fram á sjónarsviðið. Flestar norðlægar plöntur nota báðar þessar dreifingaraðferðir að einhverju marki og eftir frædreifingu tekur við tímabil frædvala, til dæmis fram til næsta vors. Hjá sumum tegundum getur þó frædvalinn varað árum saman. Oft er í þessu sambandi talað um fræforða eða fræbanka (e: seed bank), sem hefur verið skilgreindur sem: Forði spírunarhæfra fræja á yfirborði og í jarðvegi. 111

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.