Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 32
Náttúrufræðingurinn
1. mynd. Dauðir svartfuglar á Víkingavatnsreka. - Part of the auk wreck at
Víkingavatn, Öxarfjörður. 16.1. 2002. Ljósm./Photo: Ólafur Karl Nielsen.
hygli. í kjölfarið höfðu margir sam-
band við Náttúrufræðistofnun
íslands og greindu frá sams konar
atburðum sem voru að gerast í
þeirra heimahögum. Einnig var haft
samband við nokkra aðila til að
spyrjast fyrir um hvort þeir hefðu
orðið varir við dauðan svartfugl á
reki. Auk þess voru menn beðnir um
að safna fuglum þar sem slíkt var
hægt og senda til krufningar á
N áttúrufræðistofnun.
Krufningar
Allir fuglar sem safnað var á taln-
ingasniðum í Öxarfirði voru skoðað-
ir í virtnustofu. Hluti þessara fugla
var heill og voru þeir krufðir, en
flestir voru vargbitnir og var þeim
hent að lokinni skoðun.
Vargbitnir fuglar voru ákvarðaðir
til tegundar, svo og hver hefði étið af
þeim og eins áætlað hversu langt var
um liðið síðan fuglinn drapst. Einu
vargamir sem vart varð við vom
aðrir fuglar, mest máfar en einnig
fálkar Falco rusticolus. Greint var á
milli þessara tveggja hópa eftir því
hvernig hafði verið gengið frá
hræinu. Máfar höggva gat á fuglinn
og éta síðan innan úr honum; stund-
um er beinagrindin nær hreinsuð og
hamurinn hangir við í heilu lagi,
ranghverfur og dreginn fram yfir
höfuð. Fálkinn, aftur á móti, reytir
fuglinn og étur bringuna og yfirleitt
er kjölurinn á bringubeininu nagað-
ur og bitinn í sundur á nokkmm
stöðum. Þegar rannsóknimar vom
gerðar var tæpur mánuður liðinn frá
því að svartfugl byrjaði að reka á
þessum slóðum. Hræin vom sett í
þrjá aldursflokka: nýtt hræ, þ.e. 5
daga gamalt eða yngra, 6-10 daga
gamalt hræ og 11-30 daga gamalt
hræ. Þessi flokkun var byggð á áferð,
útliti og lykt hræjanna.
Heilir fuglar vom kmfðir. Fyrir
kmfningu vom hræin þurrkuð í um
sólarhring. Ef sandur var í hamnum
var fuglinn hristur duglega að
þurrkun lokinni. Við kmfningu var
fuglinn fyrst vigtaður (nákvæmni ±1
g) og vænglengd mæld (nákvæmni
±1 mm). Vænglengd var mæld með
því að bregða reglustiku undir
aðfelldan væng og síðan mælt frá
vænghnúa (úlnlið) út á enda ystu
handflugfjaðrar. Við vængmælingu
var rétt úr sveignum sem er annars á
þessum ysta hluta vængsins. Að
lokinni mælingu var fuglinn opnað-
ur og hamnum svipt af bringunni og
fitulag metið og því lýst. Þessu næst
var klippt á rifjagrindina og bringu-
beininu lyft upp aftan frá þannig að
opið kviðarholið blasti við. Iðrafita
var metin á sama hátt og hér að ofan.
Fuglinn var kyngreindur á kyn-
fæmm og aldursgreindur á búrsu
(bursa Fabricii) sem annaðhvort
ungfugl eða fullorðinn fugl. Búrsa
finnst eingöngu í ókynþroska fugl-
um.1 Við aldursgreiningar á álku
Alca torda og lunda Fratercula arctica
var stuðst við neflag. Fullorðnar
álkur em með hvíta nefskom og
tvær eða þrjár svartar, ungfuglar
eldri en á fyrsta ári em með eina
hvíta skoru og annaðhvort enga
svarta skoru eða aðeins eina, fuglar á
fyrsta ári em ekki með neina skom í
gogg.2 Lunda má á sama máta
greina í nokkra aldursflokka eftir
fjölda nefskora.3
Heilir fuglar, sem fundust utan
sniða á Norðausturlandi, voru
kmfðir á sama hátt og lýst er hér að
ofan. Sama á við um alla fugla sem
bámst annars staðar frá. Höfundar
sáu um þessar kmfningar og mark-
miðið var að kyn- og aldursgreina
fuglana og meta líkamsástand
þeirra. Undantekning vom 20 fuglar
sem krufðir voru á Tilraunastöð
Háskóla Islands í meinafræði að
Keldum af Karli Skímissyni, Einari
Jörundssyni, Jarle Reiersen og
Sigurði Sigurðarsyni. Tilgangurinn
með þeim krufningum var að fá sér-
fræðimat á það hvort einhver sjúkleg
einkenni væri að finna í fuglunum.
Þar voru m.a. tekin sýni af líffæmm
til bakteríuræktar og vefjaskurðar og
eins var blóðvökva safnað hl mót-
efnamælinga. Þá var leitað að sníkju-
dýmm í meltingarvegi.
Niðurstöður
Fyrst verður fjallað um atburðarás-
ina í tímaröð, síðan um niðurstöður
útivinnu á Norðausturlandi í janúar
2002 og í lokin um niðurstöður
kmfninga og hvaða ljósi þær vörp-
uðu á örlög fuglanna.
Atburðarásin
Veturinn 2001-2002 rak óvanalega
mikið af dauðum svartfugli á fjömr
allt frá Rifi á Snæfellsnesi í vestri,
norður og austur um allt til Mjóa-
fjarðar á Austurlandi (2. mynd, 1.
viðauki). Fyrstu merki um svart-
fuglafellinn komu frá Kópaskeri 14.
desember og þar rak mikið af fugli
næstu daga á eftir. I lok desember og
fyrstu tíu dagana í janúar varð vart
við dauða svartfugla miklu víðar,
118