Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
2. viðauki. Heimildir frá fyrri tíma um felli svartfugla. - Information on earlier alcid wrecks in Iceland.
Ár Year Athuganir Observations Heimild - References
1327
"Dó svartfygli svá margt um Vestfjörðu at eydd voru fuglberg um sumarit." Flateyjarannáll, Storm 1888.
1327
"Fjell svartfygli um Strandir norður svo at mikill fjöldi fannst liggja saman víða um fjörur ok á sjó fljóta en fuglbergit eyddist af því um sumarit." Gottskálksannáll, Storm 1888.
1708
"Rak af sjó mikil og fáheyrð mergð af svartfugl[i]." Setbergsannáll: bls. 203.
1797
"I vor hefur mergð af dauðum svartfugli rekið á land á milli Hrútafjarðar og Langaness. Dauður fugl er einnig á reki um allan sjó fyrir Norðurlandi." Jón Helgason 1982: bls. 235.
1841
"Fátt bar til tíðinda vetur þennan í Skagafirði, nema mikill fjöldi af svartfugli fló á land og dó hundruðum saman; var hann hordauður, og var ei gagn að honum." Jón Espólín: bls. 134.
1929
"Fregnir berast um það, að fár mikið sé í svartfugli um þessar mundir og rekur mjög mikið af dauðum fugli fyrir norðan land." Tíminn, 6.4.1929.
-1930
Tjömes. Mikið drapst af svartfugli þrjá vetur í röð, mest fyrsta veturinn. Steingrímur Bjömsson, 11.3.2002.
-1940
Reykjafjörður á Ströndum. Mikið rak af svartfugli (sjórotaður). Fiður hirt í sængur. Skúli Alexandersson, 28.1. 2002.
1979
Vorið 1979 var óhugnanlega mikill svartfugladauði við Skjálfanda. Stór hluti af því vom lundar, en einnig langvíur, stuttnefjur og álkur. Menn töldu að afföllin stöfuðu af ætisskorti, enda brögguðust þeir fuglar fljótt sem teknir voru í fóstur og gefið verklega að éta. Gaukur Hjartarson, 15.1. 2002.
1980
Dauðan svartfugl rak við Ólafsfjörð 23.1.1980. Á 50 m kafla í fjörumri lágu 30-40 dauðir fuglar. 12 fuglar sendir NÍ, 8 stuttnefjur, 3 langvíur og 1 æðarfugl. Gylfi Ragnarsson, 23.1.1980.
1991
Mikið af svartfugli rak í byrjun janúar 1991 í Skagafirði í kjölfar norðanáhlaups. Bara á Borgarsandi vom fuglar í hundraðatali. Feykir, 9.1.1991
1991
Við Hvítserk á austanverðu Vatnsnesi fannst dálítið af dauðri stuttnefju rekið þann 7.3.1991. 30-40 fuglar á um 2 km leið. Ekki olía í fiðri en fuglar mjög magrir. Jón Stefánsson 19.3.1991.
127