Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 54

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 54
N áttúrufræðingurinn -38 -36 -34 -32 -30 -28 -26 -24 -22 -20 -18 -16 -14 -12 -10 -8 -6 -4 -2 1. mynd. Yfirborðsstraumar í hafinu umhverfis ísland. Hlýir straumar rauðir, kaldir straumar bláir og blandaðir straumar grænir3. - Surface currents in lcelandic waters. Warm currents red, cold currents blue and mixed currents green.1 og er það sú tilgáta sem almennt hefur verið viðurkennd meðal haf- fræðinga á síðustu árum. Þröskuldurinn í Grænlandssundi er á um 630 m dýpi, þannig að það er sjór af þessu dýpi eða minna norðan þröskuldsins sem myndar yfirfallssjóinn. Sunnan sundsins hefur komið í Ijós við straum- mælingar að þótt streymið sé mjög breytilegt yfir stuttan tíma þá er það mjög stöðugt ef litið er á meðaltöl nokkurra vikna og sýnir engar árs- tíðasveiflur eða breytingar milli ára.7,8 Þess vegna verður flæði þessa sjávar norðan sundsins og nálægt þröskuldinum einnig að sýna þessa eiginleika, þ.e. skort á árstíða- sveiflum og breytingum milli ára. Straummælingar sem gerðar voru á árunum 1988-1991 yfir landgrurtns- hlíðinni bæði Islands- og Græn- landsmegin sundsins, um 200 km norðan þröskuldsins, sýndu að straumur á 500 m dýpi Grænlands- megin sýndi miklar árstíðasveiflur og að hann umsnerist yfir sumarið og streymdi þá til norðurs.9 Aftur á móti var straumur á 500 m dýpi Islandsmegin, á stöð IS7 (2. mynd) stöðugur og sýndi lítil merki um árstíðasveiflur og litlar brejtingar frá ári til árs. Straumurinn Islands- megin yfir landgrunnshlíðirmi er því líklega sá straumur sem flytur yfirfallssjóinn að þröskuldinum og þaðan inn í Grænlandshaf. Til að kanna hvort þessi straumur næði lengra inn í Islandshaf var mældur straumur á Hombankasniði (2. mynd) og verður gerð grein fyrir þeim mælingum hér. Mælitæki og mælingar A síðustu árum hefur Hafrann- sóknastofnunin tekið í notkun nýja gerð straummæla, svokallaða ADCP-mæla (Acoustic Doppler Current Profiler) (3. mynd). Á íslensku hafa slíkir mælar verið kallaðir straumsjár. I mælinum er bæði hljóðgjafi og móttakari og nemur hann hljóð sem endurkastast frá ögnum í sjónum. Þetta geta verið lífrænar agnir (svifþörungar eða lítil krabbadýr) eða ólífrænar agnir (gmgg o.fl.) sem berast með straumi. Straumhraðinn er síðan metinn út frá tíðnibreytingum milli hljóðsins 2. mynd. Myndin sýnir botnlögun í Grænlandssundi. Dýptarlínur sýna 200, 500, 1000 og 2000 metra dýpi. Þrjú snið, Hornbanka- Kögur- og Látrabjargssnið, eru táknuð sem grænar línur. Straurn- mælingar voru gerðar samfellt á mælistöð sem merkt er IS7 á árunum 1988-1991. Rauða örin táknarflæði Atlantssjávar inn á Norðurmið en sú bláa strauminn sem ber yfirfallssjóinn að þröskuldinum í Grænlandssundi. - Map showing the topography in the Denmark Strait area. The depth contours are 200, 500, 1000 and 2000 metres. Three hydrographic sections, Hornbanki, Kögur and Látrabjarg, are indicated as green lines. Continuous current measurements were made at IS7 in 1988-1991. The red arrow shows theflow of Atlantic water while the blue arrow mdicates the new current carrying the Denmark Strait overflow water towards the Irminger Sea. 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.