Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 56
Náttúrufræðingurinn
6. mynd. Myndin sýnir hitastig og seltu á fjórum stöðvum í nóvember árin 2001, 2002 og 2003. Báðar bláu línurnar eru frá
Hornbankasniði í kjarna straumsins þar sem dýpi er 600 m. Fjólubláa línan erfrá Kögursniði þar sem botndýpi er um 500 m og rauða
línan er dýpsta stöðin (660 m) á Látrabjargssniði rétt sunnan þröskuldsins. Aðeins eru sýnd gögn þar sem eðlisþyngdin er meiri en
1027,9 kg/m3 en jafneðlisþyngdarlínur eru sýndar á myndinni sem punktalínur. - T-S diagram from four stations in November 2001,
2002 and 2003. Both blue lines are from the Hornbanki section tvhere the depth is about 600 m. The magenta line is from the Kogur
section where the bottom depth is about 500 m and the red curve is the deepest station (660 m) on the Latrabjarg section just south
of the sill. Oniy values where the density is greater than 1027.9 kg/m3 are shown. Isolines of density are shown as dotted lines.
frá 67°10'N til 67°40'N fyrir hvert ár
eru sýnd á 5. mynd. Uppi á land-
grunninu er Atlantssjór sem streym-
ir til austurs meðfram Norðurlandi.
Yfir landgrunnshlíðinni verður
straumurinn stöðugt veikari eftir því
sem utar dregur þar til hann að
lokum snýst við og stefnir þá til
vesturs þar sem botndýpi er um
500 m. Þegar komið er á enda
sniðsins hefur straumurinn snúist
aftur. Þessi lýsing á við öll árin og
reyndar um hverja yfirferð og þetta
er þess vegna ekki unnt að rekja til
sjávarfallastrauma. Straumurinn til
vesturs er um 15-20 km breiður og
nær frá botni (500-700 m dýpi) og
upp að u.þ.b. 100 m dýpi, en
stundum nær hann þó upp að
yfirborði. Straumurinn sýndi svip-
aða gerð öll árin en hann var mun
veikari 2001 en 2002 og 2003. Þessi
munur stafar ef til vill af skamm-
tímabreytingum í styrk straumsins
eins og hefur sést í flæði yfirfalls-
sjávarins sunnan Grænlandssunds.7
I nóvember 2002 náði hámarks-
hraði í straumnum meira en 40
cm/s í kjarna hans.
Flutningur sjávar með þessum
straumi hefur verið metinn fyrir öll
árin og var hann 0,6 Sv" árið 2001,2,7
Sv árið 2002 en 1,7 Sv árið 2003.
Ymsir hafa metið flutning á yfirfalls-
sjó yfir þröskuldinn í Grænlands-
sundi á bilinu 2,1-3,3 Sv.10,11,12
Straumurinn sem hér er greint frá
gæti borið megnið af þessum sjó,
sérstaklega ef gert er ráð fyrir að
hann bæti í sig einhverju af um-
lykjandi sjó á leið sinni að þröskuld-
inum.
Sjógerðir eru oft skilgreindar út
frá eiginleikum sínum, t.d. hita og
seltu. Þegar verið er að bera kennsl á
eða bera saman mismunandi sjó-
gerðir er oft notað svokallað hita-
seltulínurit og eru þrjú slík sýnd á 6.
mynd, eitt fyrir hvert ár. Þar eru
sýnd hita- og seltugildi frá Hom-
banka, á 67°30'N þar sem botndýpi
er 600 m, frá Kögursniði þar sem
dýpi er 500 m (67°20'N, 23°40'V) og
loks rétt sunnan þröskuldsins á
Látrabjargssniði, þar sem botndýpi
er 660 m (66°05'N, 27°03'V). Punkta-
línumar sem sjást á 6. mynd em jafn-
eðlisþyngdarlínur og aðeins eru
sýnd gildi þar sem eðlisþyngd
sjávarins er meiri en 1027,9 kg/m3 en
oft er yfirfallssjórinn skilgreindur
sem sá sjór í sundinu sem hefur
eðlisþyngd 1027,95 kg/m3eða hærri.3
Samsetning djúpsjávarins á Kögri
og Hombanka er nánast sú sama.
Yfirfallssjórinn á Látrabjargssniði er
hins vegar ögn léttari; sérstaklega
var hann það 2001, jafnvel þótt sú
stöð sé dýpri en hinar stöðvamar.
Sjórinn er örlitið heitari á Látra-
bjargssniðinu en munurinn í seltu er
hinsvegar hverfandi. Þetta er eðlilegt
þar eð að straumnum liggur hlýrri
sjór á báðar hliðar. Austanmegin
streymir Atlantssjór til norðurs en að
vestan liggur sjór sem ættaður er frá
Svalbarða og er örlítið heitari og
saltari en yfirfallssjórinn. Arin 2002
og 2003, þegar straumurinn var
sterkur, var minni munur á
Látrabjargssniðinu og stöðvunum
norðar. Arið 2001, þegar straumur-
inn var veikari, reyndist meiri
munur á milli stöðva, sem bendir til
að þá hafi verið meiri blöndun við
sjóinn í kring en hin árin. Straum-
urinn þynnist sennilega, þ.e. hann
dregst saman lóðrétt, og hraði hans
eykst þegar nær kemur þröskuld-
inum. Þetta veldur líklega sterkara
iðuflæði og meiri blöndun. Af
sjógerðum norðan Grænlandssunds
líkist sú sem er í þeim straumi sem
hér er lýst mest þeim sjó sem er að
finna í dýpsta hluta sundsins við
þröskuldinn. Sjógerðagreiningin
a Einingín Sverdrup (Sv) er notuð þegar talað er um flutning sjávar með hafstraumum og er 1 Sv = 106 m3/s eða 1 milljón rúmmetrar á sekúndu.
142