Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 60

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 60
Náttúrufræðingurinn að sjá fugl á hreiðri og artnan nærri á verði. Einnig kemur fyrir að aðeins álegufuglinn sjáist. Stundum standa tveir fuglar saman án merkis um að þeir eigi hreiður. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því; þeir geta verið óorpnir, búnir að verpa en álega ekki hafin, hreiðrið hafi misfarist eða að parið verpi ekki viðkomandi ár. Oll pör eru tekin með þegar niðurstöður eru teknar saman. Mesta hættan á skekkju er ef vörp verða fyrir stórfelldum áföllum, t.d. vegna vorflóða, en þá eiga fuglamir til að hverfa frá varpstöðunum í stómm stíl. Talningum á hreiðrum (2) hefur einkum verið beitt við Akureyrar- flugvöll og í óshólmum Eyjafjarðar- ár, en þar em aðstæður þannig að erfitt er að ná fram nákvæmum talningum á fjölda fugla. Hreiður- talningar gefa lágmarkstölu varp- para þar eð sjaldnast er hægt að gera ráð fyrir að öll hreiðrin finnist. Við hreiðurtalningar er einnig reynt að meta fjölda fugla til samanburðar og frekari áréttingar, líkt og gert er við talningu hettumáfa Larus ridi- bundus.5,6,9 Farið var skipulega um allt taln- ingarsvæðið þar sem líkur vom tald- ar á varpi stormmáfa. I Eyjafirði em flest varpsvæðin nokkuð greinileg frá vegum, sbr. 2. mynd, og þess vegna þarf ekki að eyða miklum tíma í göngur til að komast að varp- stöðunum. Yfirferð er því ekki eins tímafrek og ætla mætti miðað við stærð svæðisins en tekur þó nokkra daga. Helstu undantekningar eru Hrísey, blettir á Árskógsströnd, óshólmar Hörgár, Akureyrarflug- völlur, óshólmar Eyjafjarðarár norðan gamla þjóðvegar nr. 1, („Brautarinnar") stöku staðir í Eyja- fjarðarsveit og viss svæði í Höfða- hverfi. Á þessa staði verður að ganga til hreiðurleitar eða til að fá góða sýn yfir varpsvæðið til að telja fuglana. Þorsteinn Þorsteinsson telur rjúpur Lagopus mutus árlega í Hrísey fyrir Náttúrufræðistofnun íslands13 og hefur hann að beiðni okkar talið stormmáfa á sama tíma. Árið 1980 voru stormmáfar í Eyjafirði taldir 1., 15. og 16. júní. Árið Varpstaðir á árunum 1980, 1990, 1995 og 2000 o Varpstaðir önnur ár SIGLUFJÖRÐUR Vöktunarsvæði ■JÖRÐUR Laufáshólmsri TROLLASKAGI /ALBARÐl Tungnahryi jökull AKUI j Öshólmar Eyiafjarðarár • Laígaland o. ikkjarflatir Hæð yfir sjávarmáli stækkað svæði 2. mynd. Eyjafjörður er stærsta samfellda svæðið hér á landi þar sem fylgst er með breytingum á stofni og útbreiðslu stormmáfs. Getið er ýmissa örnefna sem komafyrir í greininni. Einnig eru vegir sýndir. - Eyjafjörður (N-Iceland) is the largest continuous region in the country where the numbers and distribution of the Common Gull is monitored. A number oflocal names mentioned in the text are also shozvn on the map. The road system is also shown. 1990 fór talning fram á tímabilinu 30. maí til 3. júní, 1995 á tímabilinu 4. til 13. júní en 2000 á tímabilinu 21. maí til 5. júní. í Hrísey var yfirleitt talið nokkru fyrr, eða í seinni hluta maí. Talningu var ekki fyllilega lokið í óshólmum Eyjafjarðarár sumarið 1995 þegar flóð kom í ána og sumir 146

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.