Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 70

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 70
Náttúrufræðingurinrt 1. mynd. Yfirlitskort yfir Bárðardals- hraunin þrjú, Laxárdalshraun og fleiri hraun sjást einnig á myndinni. Sjá einnig þversnið á 8. mynd. - The three lavas of Bárðardalur valley, the Laxárdalur lavas and som eother lavas are also shown. See the cross section on Fig. 8. miðri. Þama em ystu totur Bárðar- dalshrauns. Neðan við þessa brún er lægra hraun sem að mestu er kaffært í sand og annan framburð úr fljótinu. Eftir útliti að dæma er þetta Kinnarhraun. Það teygir sig síðan áfram út dalinn þar sem verður æ dýpra á það í sandinum. Haukur Jóhannesson jarðfræðingur hefur eftir bændum að vart verði við hraunið þegar grafið er fyrir skurð- um allt norður fyrir Þóroddsstaði að vestan en hálfa leið út að Húsabakka að austan. Það gæti náð mun lengra til norðurs, hugsanlega allt í sjó fram. Ekki er vitað hvar ströndin var þegar hraunið rann en næsta víst má telja að hún hafi ekki verið þar sem hún er nú. Kinnarhraun er úfið apalhraun þar sem til þess sést og með þykkum karga. Þversnið í það er að finna þar sem Svartá hefur brotið sér leið í gegn um það í sundinu austan við Hátungur. Utan hraunsins á þessum slóðum sér í gjall og bombur úr því sem er afleiðing af sprengingum og gervigígamyndun í því þegar það braust fram. Hraunið hefur síðan borið gervigígana brott með sér svo ummerkin utan hrarrns vitna ein um þá. Hraunið er með stórum hvít- leitum plagíóklasdílum og er magn þeirra 5-15% af berginu, breytilegt frá einum stað til annars. Stakir smáir ólivíndílar sjást víða. Gosstöðvar Kinnarhrauns eru óþekktar en hugsanlega eru þær á svipuðum slóðum og uppkomu- staður Bárðardalshrauns en hann er hér talinn vera í Gígöldum austan Trölladyngju, eins og síðar verður vikið að. Ekki er heldur vitað hvar ystu totur þess liggja en frá gíg- öldum að Skjálfandafljótsbrú hjá Ofeigsstöðum eru 110 km. Þetta er því næstlengsta hraun landsins, einungis Þjórsárhraunið mikla tekur því fram en það er talið 140 km langt.4 Með samanburði við útreikn- 156

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.